Miðvikudagur 29.06.2011 - 23:12 - 3 ummæli

Sumarið er komið

Sumarið er komið. Ég tími aldrei að sofa á sumrin. Ég elska þessar björtu nætur. Ég vil koma öllu í verk og meira til. Ég vil ganga á fjöll, ég vil fara til veiða, ég vil hitta fólk, ég vil njóta alls þess sem íslenskt sumar hefur upp á að bjóða.

Um daginn hitti ég mann á gangi niðri í miðbæ Reykjavíkur. Hann hélt því fram að sumarið væri búið. Bölvaði kuldanum, rokinu, dýrtíðinni, bensínverðinu og klykkti út með þessum orðum:”Á Íslandi er ekki þverfótað fyrir útlendingum. Maður heyrir varla íslensku talaða á Laugaveginum orðið.”

Nú var mér öllum lokið. Ég varð því miður að tjá honum að ég væri á öndveðrum meiði. Mér finnst veðrið dásamlegt. Ég er meira að segja búinn að slá blettinn hjá mér. Ég er búinn að fara á nokkur fjöll. Ég fór upp á heiðar til að veiða silung á flugu.  Ég hef hitt fjöldann allan af fólki og tók að mér í hjáverkum að kenna nokkrum útlendingum af svona 12 þjóðernum að tala þetta skrýtna tungumál sem er talað hér á skerinu og ekki nema rétt liðlega 300 þúsund hræður kunna að tala. Þó ekki allir alveg kórrétt alltaf. Margir fallbeygja vitlaust, fara ranglega með orðatiltæki, kunna ekki viðtengingarhátt og eiga erfitt með að ákveða sig hvort skrifa eigi yfsilon eða einfalt i þegar þeir stinga niður penna.

Samt hafa margir þeirra alið allan sinn aldur hér á landinu bláa. Menntast, komist til metorða en eiga samt eitthvað erfitt með tungumálið sitt. Svo hristum við hausinn þegar einhver af erlendu bergi brotinn er að sýna þá viðleitni að reyna að koma út úr sér einni óbrenglaðri setningu bara í því augnarmiði að panta sér kaffibolla á kaffihúsi.

Já – sumarið er komið með alla sína dýrð og dásemd og það gleður okkur öll. Meira að segja útlendingunum finnst íslenska sumarið dásamlegt. Þeir hafa að vísu vanist annars konar veðurfari en þeir reyna að vera jákvæðir í okkar garð sem göngum um hnípin og önug af því veðrið er ekki eins og við viljum hafa það. Hvernig væri nú að brosa svolítið í allar áttir? Bjóða útlendingana velkomna og gefa þeim smjörþefinn af hinni alkunnu íslensku gestrisni. Hvað er orðið um hana  - vel að merkja?

Valgeir Skagfjörð, borgari í sumarskapi.

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (3)

  • já sumarið er komið með allri sinni dýrð , ég er einn af þeim sem er í vandræðum með stafsetninguna , enn það er bara allt í þessu fína , það er komið sumar :) jibbí

  • Ásdís Jónsdóttir

    Já, ég er alveg sammála þér um að sumarið sé komið, þó ekki sé nema vegna birtunnar því nú er bjart næstum allan sólarhringinn. Mig langar að í leiðinni að þakka þér fyrir alla fallegu textana sem þú þýddir úr færeysku á plötunni “Vinalögum”, og líka textann við lagið “Vetrarnótt”, sem er svo fallegt.

  • Heinrich Heine

    ,,augnaRmiði” ???

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fjórum og þremur? Svar: