Sumir virðast hafa fengið í hendur það vald að geta sagt um aðra að þeir séu fífl og fávitar án þess að hafa nokkuð fyrir sér í því. Ég hef aldrei fengið viðhlítandi skýringar á því hvernig á því stendur að annað grandvart og hrekklaust fólk gengur í lið með þessum vitringum og samþykkir að allir séu fífl – nema þeir að sjálfsögðu. Einhverra hluta vegna tekst þessum sumum að benda endalaust á aðra og segja að allt sem miður fer sé þeim að kenna. Það er að segja fíflunum.
Sjálfskoðun er eitt af því sem þroskar alla menn á meðan hroki er talin ein af dauðasyndunum sjö. Það er einmitt einkenni hinna hrokafullu. Þeir þurfa ekki á sjálfskoðun að halda. Hún er fyrir einhverja aðra.
Hinn hrokafulli segir: Allir eru fífl nema ég. Ég er sá eini sem veit og skil hvernig allt virkar. Ég er sá eini sem sé lausnina í sjónmáli en hinir eru svo mikil fífl og svo miklir fávitar að engu tauti verður við þá komið
Hinir hrokafullu sjá ekki lausnir annarra. Þær eru hvort sem er handónýtar að þeirra mati. Hinir hrokafullu dæma hugmyndir annarra dauðar án þess að hafa jafnvel hlustað eða kynnt sér þær að einhverju gagni. Hinir hrokafullu telja yfirleitt hag allra borgið svo fremi að þeir ráði ferðinni. Hinir hrokafullu hafa blindast af ofmetnaði þeirra sem fengið hafa í hendur vald. Vald til ákvarðanatöku. Vald til að dæma. Vald til að setja öðrum reglur. Vald til að hygla þeim sem eru tilbúnir að hjálpa þeim til að tryggja sér áframhaldandi völd.
Hinir hrokafullu óttast ekkert meir en að missa völdin í hendur fíflanna. Þó voru það þessi sömu fífl sem færðu þeim völdin.
Allir eru fífl nema ég. Ég er eini maðurinn með viti.
Svo segja hin fíflin um þann sem var hrokafyllstur þeirra allra: Hann var eini maðurinn með viti.
En fíflið segir alltaf satt.
Fíflin voru þau einu sem gátu hvíslað sannleikanum um kónginn í eyru kóngsins án þess að lenda í fangelsi fyrir vikið. Eða missa höfuðið.
Fíflin voru þau einu sem gátu hrópað á torgum sannleikann um spillingu valdsins. En þau voru fífl og engum bar að taka þau alvarlega.
Við skulum varast að vanmeta fíflin. Allir eru fífl. Fíflin eru vitringar í dulargervi. Fíflin kunna að tala á torgum. Fíflin eru með fingurinn á púlsinum. Hlustum á fíflin. Kannski kemur eitthvað af viti út úr því.
Fíflin eru nefnilega ekki hrokafull. Þau eru auðmjúk, fyndin, skemmtileg, söngvin, mannblendin, þau hafa ráð undir rifi hverju, þau eru litrík og fólk elskar þau af því þau eru þrátt fyrir allt uppfull af kærleika, óttast ekki sannleikann og eru vinir allra. Allir eru fífl. Líka ég.
Valgeir Skagfjörð, borgari.
Valgeir Skagfjörð
Dauðasyndirnar 7 voru matargræðgi, ofsareiði, öfund, losti, græðgi, stolt og leti.
Góður pistill samt.
1 palli. Minn kæri – stolt í þinni upptalningu merkir hroki. ath.
Ósammála. Hroki og stolt eru tveir mismunandi hlutir, þótt tengdir séu. Þess vegna höfum við mismunandi orð fyrir þá.