Færslur fyrir maí, 2012

Fimmtudagur 31.05 2012 - 11:09

“Greindarleg hönnun” heimsins

Ég þarf aðeins að fjalla meira um fyrirlestur PZ Myers í boði Siðmenntar. Honum varð tíðrætt um kenningar um greindarlega hönnun heimsins, “intelligent design”. Þetta er einhvers konar tilraun til að sætta sig við staðreyndir og að þróunarkenningin hafi staðist allar prófanir en reyna samt að halda einhverri guðlegri eða yfirnáttúrulegri veru inni í myndinni. [...]

Þriðjudagur 29.05 2012 - 23:02

Fyrirlestur PZ Myers

Ég var að koma af fyrirlestri PZ Myers sem Siðmennt stóð fyrir. Yfirskrift fyrirlestrarins var “Vísindi og trúleysi” og fjallaði að mestu um óhugnanlegan uppgang sköpunarsinna í Bandaríkjunum. Myers var mjög skemmtilegur og fyrirlesturinn fróðlegur. En kannski situr aðallega eftir einhvers konar blanda af kjaftstoppandi undrun og hálfgerði skelfingu. Ótrúleg umsvif og fjárráð alls kyns [...]

Þriðjudagur 29.05 2012 - 12:15

PZ Myers um trúleysi og vísindi

Ég er aðeins farinn að hlakka til kvöldsins. PZ Myers heldur fyrirlestur um trúleysi og vísindi í (á?) Háskólatorgi. Meyers er þekktur bloggari – að mér skilst mest lesni vísindamaðurinn sem bloggar – og þó ég hafi lesið eitt og annað eftir hann, skilst mér að hann sé enn skemmtilegri í “kjötheimum”. Nánar á http://sidmennt.is/2012/05/18/p-z-myers-flytur-erindi-um-%E2%80%9Evisindi-og-truleysi-29-mai-2012/

Mánudagur 28.05 2012 - 12:19

Persónuleikapróf á forsetaframbjóðendur

Ég nefndi einhvern tíma þá hugmynd að frambjóðendur til þings þyrftu að taka próf til að sýna fram á hæfni til að sitja á þingi. Þetta þyrfti ekki að vera erfitt eða strangt, svona rétt til að sía burt þá sem eru fullkomlega ófærir um rökhugsun og fleira þess háttar. Ég var nú kannski ekki [...]

Sunnudagur 27.05 2012 - 11:00

Bænir og órannsakanlegir vegir

Nú er ég trúlaus og hef ekki mikla trú á bænum. Eða réttara sagt enga. En svo eru auðvitað margir sem nota bænina sem einhvers konar hugleiðingu, svona til að staldra við og hugsa vel til ættingja og vina. Sem svo sem gerir engum neitt. En það er nokkuð ljóst að bænir breyta engu. Það [...]

Föstudagur 25.05 2012 - 14:37

Þökk sé rokklækni Wim

Við Fræbbblar tókum þátt í Rokk í Reykjavík 2.0 í gær (fimmtudagskvöld) á Gauknum. Belgíski íslandstónlistardellukallinn og læknirinn Wim Van Hooste skipulagði þetta í tilefni af fertugsafmælinu og þrítugsafmæli Rokk í Reykjavík. Þetta var eitt af þessum ógleymanlegu kvöldum og kannski fáránlegt að reyna að segja frá í bloggfærslu. Eitthvað var tekið upp og kannski [...]

Þriðjudagur 22.05 2012 - 16:00

Rokkjavík 2

Ég verð að fá að halda áfram að fjalla um skemmtilega hugmynd Belgíska læknisins Wim Van Hooste – þeas. að halda hljómleika í tilefni af 30 ára afmæli Rokk í Reykjavík – sem er um það bil að verða að veruleika á Gauk á Stöng, næsta fimmtudag, 24. maí 2012. Dagskráin verður: 20:00 Rímur 20:05 [...]

Miðvikudagur 16.05 2012 - 15:25

Skattur á auðtrúaða

Það er oft sagt að lottó og önnur fjárhættuspil séu skattur á þá sem kunna ekki að reikna. Á sama hátt má segja að kukl-, hjávísinda-, heilunar-, detox-, álfa-, miðla-, drauga- og hómopataiðnaðurinn sé skattur á þá sem eru auðtrúa. Það var ágætis samantekt á þessu í DV um daginn. Það er nefnilega þannig að [...]

Sunnudagur 06.05 2012 - 21:44

Blogg eða blöð

Ég var að ræða við fræðimann áðan um ákveðið deilumál, sem skiptir ekki máli. Hann taldi sig hafa fært rök fyrir sinni skoðun sem enginn hefði hrakið. Ég benti á að ég hefði þvert á móti hrakið þessi rök vel og vandlega. Hvar spurði hann. Nú í bloggfærslu. Það þótti honum fullkomlega verðlaust. Að þetta [...]

Sunnudagur 06.05 2012 - 21:35

Til hamingju HK

Ég á víst varla að kalla mig Kópavogsbúa eftir að hafa búið 29 ár í Reykjavík. En mitt lið er Breiðablik og mér fannst frábært þegar liðið náði loksins Íslandsmeistaratitli í karlaflokki 2010. Og einhvern veginn er ég alltaf Kópavogsbúi þegar kemur að íþróttunum og er nýlega farinn að æfa Karate hjá Breiðabliki þrátt fyrir [...]