Færslur fyrir október, 2010

Sunnudagur 31.10 2010 - 10:00

Endilega minna gelt

Ég verð að fá að taka undir með Davíð Þór í Fréttablaðinu í dag um að ræða tillögur mannréttindaráðs með minna gelti og meiri rökum. Kannski sé ég undanfarna daga með lituðum gleraugum, en óneitanlega finnst mér æsingurinn og rangfærslurnar meiri öðru megin. En, það skiptir svo sem ekki máli, ef sátt næst um að [...]

Föstudagur 29.10 2010 - 15:37

Þrjátíu ára gamalt “nammi”

Það er kannski að einhverju leyti hallærislegt að vera að halda sérstaklega upp á tímamót eins og að þrjátíu ár eru liðin frá því að við Fræbbblar gáfum út plötuna “Viltu nammi væna?” Ég get samt ekki að því gert að rifja upp þennan tíma, ákafann að koma öllum hugmyndunum að, flýtinn við að klára [...]

Fimmtudagur 28.10 2010 - 18:48

Fundafælni

Ég hef áhyggjur af að “fundafælni” bitni á mér á kynningu á framboðinu til stjórnlagaþingsins. Ég hef reyndar reynt að mæta á fundi eftir því sem ég hef getað en verið tregur til að fórna of miklum tíma í fundi. Þetta er ekki af lítilsviðringu við áhugasama eða aðra fundargesti. Mér finnst einfaldlega fundir frekar [...]

Þriðjudagur 26.10 2010 - 11:54

Að breyta eins og þú boðar

Ég var að lesa ágæta samantekt Sigurðar Hólm Gunnarssonar á málflutningi sumra talsmanna kirkjunnar í framhaldi af tillögum mannréttindaráðs og ég velti fyrir mér hvort kirkjunni færi ekki betur að vinna meira í takt við það sem mér skilst að sé nú kjarninn í hennar boðskap. Rangfærslur, útúrsnúningar, upphrópanir, skortur á umburðarlyndi og hrein og [...]

Sunnudagur 24.10 2010 - 13:46

Eru meðlimir þjóðkirkjunnar sammála biskup?

Biskupinn segir í morgun að tillögur mannréttindaráðs vegi að rótum trúarinnar. Nú er ég trúlaus en það er allt í lagi mín vegna að aðrir séu trúaðir og augljóslega er mikið af góðu fólki sem starfar innan trúfélaga og vinnur þar gott starf. En mér hefur alltaf þó mikilvægt að þau mannréttindi að fá að [...]

Fimmtudagur 21.10 2010 - 10:14

Brotinn mannréttindapottur

Ég er (næstum því) kjaftstopp eftir að fylgjast með umræðunum um tillögur mannréttindaráð Reykjavíkur. Verið er að svipta líf barnanna allri helgi, trúlausir hneigjast frekar til áfengis og vímuefnaneyslu, trúfrelsi er ekki réttur til trúleysis og ekki má breyta þessu vegna þess að þetta hefur alltaf verið svona. Einn félagi minn byrjaði á að fullyrða [...]

Mánudagur 18.10 2010 - 12:04

Fréttablaðið fyrir 150 árum

Ég velti fyrir mér hvernig ritstjóri Fréttablaðsins hefði skrifað á tímum þrælahaldsins, ekki það að ég sé að líkja trúboði við þrælahald, en skilningsleysið á mannréttindum er af sama stofni. Á nú að fara að stroka út gamlar og góðar hefðir um þrælahald úr samfélaginu? Hvernig væri að meirihlutinn léti nú í sér heyra? Það [...]

Mánudagur 18.10 2010 - 00:40

Airwaves

Ég náði nú ekki að mæta vel á Airwaves, fertugsafmæli Sæunnar á laugardagskvöldi og vinnustaðakveðjuhóf á föstudegi höfðu sjálfkrafa forgang. Kannski á ég ekkert að vera að fjalla um einstakar hljómsveitir eða viðburði fyrst við Fræbblar tókum þátt. En þarf samt aðeins. Ég náði að grípa eitthvað af viðburðum og í sjálfu sér er erfitt [...]

Fimmtudagur 14.10 2010 - 19:34

Annars konar hrun

Ég get ekki að því gert að velta fyrir mér ef hrunið hefði verið annars konar. Ef fjöldi fólks hefði misst heimili sitt að öllu eða hluta í, til dæmis, jarðskjálfta. Gefum okkur að flestir þeirra hafi flutt á stað sem var þekkt jarðskjálftasvæði. Gefum okkur líka að ásókn sölumanna hafi verið mikil og þeir [...]

Miðvikudagur 13.10 2010 - 18:29

“We Want The Airwaves”

“We Want The Airwaves” sungu Ramones 1982, af hinni frábæru Pleasant Dreams plötu, ekki besta lagið á plötunni, en syngur í hausnum á mér þessa vikuna. Að öðru leyti snýst undarleg blanda tilhlökkunar og valkvíða í hausnum á mér þessa dagana. Tilhlökkun yfir að mæta á fullt af spennandi viðburðum annars vegar og hins vegar [...]