Færslur fyrir júlí, 2010
Stundum veldur einn…
Það eru mörg arfavitlaus orðtökin sem gripið er til í hugsunarleysi. Það sem truflar mig mest þessa dagana er “sjaldan veldur einn þá tveir deila”. Nú er það auðvitað þannig að stundum eiga báðir, eða allir, aðilar sök á því að deila magnast upp. En þessi sjálfkrafa frasi er orðið notaður til að afskrifa þá [...]
Víst er ég trúlaus
Eitt af því sem fer hvað mest í skapið á mér við að ræða trúmál er þegar ég segist vera trúlaus og svarið er að ég sé nú samt trúaður, ég trúi bara víst, hvað sem ég segi. Algengast er að snúið er út úr hugtakinu „trú“ og látið eins og það þýði traust, sannfæring [...]
Skemmtileg hljómleikablanda
Var að koma heim af baráttuhljómleikum á Sódómu gegn kynferðisofbeldi. Við Fræbblar misstum hálfa hljómsveitina í forföll en Guðjón, Rikki og Steini hlupu í skarðið með engum fyrirvara – var amk. mjög gaman og áhorfendum virtist ekki líka illa. En kannski var það skemmtilegasta við kvöldið hvað það gekk vel að raða saman ólíkum atriðum. [...]
Nei við nauðgunum
Í kvöld, fimmtudagskvöld, verða árlegir baráttuhljómleikar gegn kynferðiofbeldi á Sódómu (http://www.facebook.com/home.php#!/event.php?eid=101379113249768&index=1). Ég sá frétt hjá Rúv um daginn þess efnis að kærum vegna kynferðisofbeldis hefði fjölgað. Vonandi er það vegna þess að árangur af baráttunni er að fleiri þora að kæra en ekki vegna þess að tilfellum fari fjölgandi. Við Fræbblar tökum þátt en það [...]
Hverslenskt eignarhald á auðlindum
Nú er það góð og gild umræða hvort eignarhald og/eða nýtingarréttur á auðlindum þjóðarinnar megi vera í einkaeigu eða ekki. Ég ætla aðeins að láta mína skoðun á því liggja á milli hluta í þessari færslu, kem að því síðar. En svona í kjölfarið á umræðu síðustu daga.. Ef þetta má vera í einkaeigu – [...]
Fótbolti 1 – Fjölbragðaglíma 0
Ég verð að fá að óska Spánverjum til hamingju með heimsmeitaratitilinn. Besta liðið og skemmtilegasti fótboltinn hafði sigur á liði – sem var vissulega ekki alslæmt og með marga góða leikmenn – en gerði út á að spila fast og brjóta á andstæðingunum. Eina ástæðan fyrir að ég hef gaman af að horfa á fótbolta [...]
Hmmm.. spá?
Ég “verð” að spá fyrir um lokaleikina á HM. Nei, ég verð svo sem ekkert, en hef gaman af. Ekki vegna þess að ég þykist hafa eitthvert meira “vit” á fótbolta en hver annar. Og það hvarflar ekki að mér að ég geti, frekar en nokkur annar, séð framtíðina fyrir. Það er einfaldlega gaman að [...]
Græðarinn sem vill ekki græða
Ég get ekki á mér setið að benda á tilboð Vantrúar til “lithimnufræðings” sem hefur verið að auglýsa þjónustu sína að geta lesið ástand líkama og líffæra fólks út frá augunum. Lithimnufræðingurinn hafnaði tilboðinu samstundis. Svörin eru annars vegar að viðkomandi hafi allt í einu ekki tíma til að kynna sig og stinga hundrað þúsund [...]
Flottir Spánverjar
Ég ætla að fá að halda mig við að Spánverjar verði heimsmeistarar. Verulegur flottur og skemmtilegur leikur í kvöld hjá þeim á móti annars (hingað til) öflugu liði Þjóðverja, sem virkuðu nánast eins og byrjendur í samanburðinum þegar þeir voru að reyna að spila boltanum á milli sín. Lið eins og það spánska (og fleiri, [...]
Fleiri HM spár
Auðvitað ætti ég að hafa vit á að reyna ekki að spá fyrir um hverjir fara í úrslit á HM. Spáin mín fyrir átta liða úrslitin hélt ekkert sérstaklega vel. Úrúgvæ fór vissulega áfram og ég þóttist svo sem þóttist hafa grun um að það gæti verið tæpt. Spánn slapp svo sem í gegn líka [...]
Valgarður Guðjónsson
Nýlegar athugasemdir