Færslur fyrir flokkinn ‘Óflokkað’

Föstudagur 26.04 2013 - 23:26

Kæru kjósendur, félagar, vinir

Á morgun laugardaginn 27. apríl 2013 eru einhverjar mikilvægustu kosningar lýðveldistímans. Kosningar sem mun ráða úrslitum um það hvort hér verði áfram við lýði gerspillt stjórnmálaumhverfi og úrkynjuð stjórnmálastétt eða hvort það takist að ná inn á Alþingi nægilega mörgum nýjum andlitum og flokkum til að stöðva hnignun lýðræðis og þess stjórnmálasiðferðis sem þarf að vera [...]

Þriðjudagur 26.03 2013 - 14:14

Þingið og stjórnarskráin

Á fundi með formönnum Samfylkingarinnar og Vinstri-grænna síðastliðinn fimmtudag lögðu þingmenn Hreyfingarinnar fram sáttaboð til að leysa þann hnút sem stjórnarskrármálið var komið í í meðförum Alþingis. Sáttaboðið laut að því að auk breytinga á 79. grein stjórnarskrárinnar sem gert er ráð fyrir í frumvarpi formanna stjórnarflokkana og Guðmundar Steingrímssonar verði að auki afgreiddar þær [...]

Mánudagur 11.03 2013 - 23:37

Ræður dagsins

Vantrauststillagan var felld í dag með stuðningi Bjartrar framtíðar sem er orðin að eins Orwellískum öfugmælasamtökum og hugsast getur. Þau hafa nú staðsett sig með þeim öflum, stjórnmálastéttinni, klíkuveldinu og valdastéttinni sem vill ekki nýja stjórnarskrá. Fá svo væntanlega einhverja brauðmola af borði Árna Páls að loknum kosningum ef þær fara illa. Hefði búist við [...]

Sunnudagur 10.03 2013 - 22:26

Vantrauststillaga

Eftirfarandi tillaga verður borin upp af mér á Alþingi nú á mánudaginn: Alþingi ályktar að lýsa vantrausti á ríkisstjórnina. Alþingi lýsir þeim vilja sínum að þing verði rofið og efnt til almennra þingkosninga. Fram að kjördegi sitji ríkisstjórn skipuð fulltrúum allra flokka á þingi. Tillagan er borin fram vegna þessa að stjórnarmeirihlutinn hefur svikið það [...]

Miðvikudagur 06.03 2013 - 14:48

Jón Gnarr???

Hvar er Jón Gnarr? Nú þegar komið er formlega í ljós að formaður Bjartrar framtíðar Guðmundur Steingrímsson er einn af aðalforsvarsmönnum þess að stöðva framgang stjórnarskrármálsins á Alþingi og hefur ásamt Árna Páli lagt fram tillögu sem er órar einir um framhald málsins á næsta þingi, þá spyr ég um afstöðu Jóns Gnarr til alls [...]

Laugardagur 02.03 2013 - 13:30

Árni Páll og lýðræðið.

Árni Páll Árnason hefur postullega tilkynnt að þjóðin fái ekki nýja stjórnarskrá þrátt fyrir afgerandi samþykkt þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hvað segja aðrir þingmenn Samfylkingar, að ekki sé talað um þingmenn VG við þessu? Held að lýðræðinu og þjóðinni hafi aldrei fyrr verið sýnd slík vanvirðing af stjórnmálamanni.

Fimmtudagur 28.02 2013 - 18:44

Að ræna auðlind

Eftirfarandi bókun var lögð fram af mér á fundi Atvinnuveganefndar Alþingis í dag í tilefni þess að nefndin ætlar að afgreiða málið með miklum hraði. Hér er um að ræða mesta auðlindarán Íslandssögunnar. Bókun á fundi Atvinnuveganefndar Alþingis þann 28. febrúar 2013 vegna máls 570, Stjórn fiskveiða.   Fulltrúi Hreyfingarinnar/Dögunar mótmælir harðlega meðferð og afgreiðslu [...]

Föstudagur 15.02 2013 - 13:39

Eðlileg stjórnmál eða aðför að löggjafarvaldinu?

Sá atburður gerðist í gær á Alþingi vegna mikillar umræðu um „Skýrslu utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál“ að fara þurfti fram úr hefðbundnum lokum dagskrártíma klukkkan 20:00 og hafa fund lengur inn í kvöldið svo hægt væri að klára umræðuna, en skýrsla þessi er árviss viðburður og umræðu um hana lýkur alltaf á einum degi. Samkomulag [...]

Þriðjudagur 12.02 2013 - 20:28

Hagræðing eða svindl?

Í umræðu í atvinnuveganefnd þingsins í morgun um breytingu á lögum um “Umgengni um nytjastofna sjávar” eins og þau heita, kom ítrekað upp að Atvinnuvegaráðuneytið sem samdi frumvarpið notar orðalagið “að hagræða vigtun” og “hagræðing vigtunar”. Þegar eftir því var gengið hvað þetta sérkennilega orðalag þýddi kom í ljós að sennilega væri um að ræða svindl á [...]

Laugardagur 09.02 2013 - 00:16

Skuldastaða ríkis og þjóðar

Eins og glöggt má sjá á stöðu Landsspítalans þessa dagana er að rætast sá spádómur að heilbrigðiskerfi landsins yrði að hruni komið vegna niðurskurðar innan tiltekins tíma frá hruninu. Eins og staðan er í dag og ef áfram heldur á sömu braut næstu sex mánuði, mun það ekki eiga sér viðreisnar von þrátt fyrir stóraukin [...]