Færslur fyrir janúar, 2012

Sunnudagur 29.01 2012 - 10:55

Kortsnoj á Bessastöðum

Einhver tímann skrifaði ég færslu sem bar heitið “Kortsnoj í hvíta húsinu”. Þar líkti ég Bill Clinton við rússneska skáksnillinginn Viktor Kortsnoj en sá var kunni vel  að verjast í þröngum stöðum, snúa vörn í sókn, vinna töpuð töfl. Menn minnast þess hvernig Clinton varðist í Lewinskymálinu, sneri tapaðri stöðu í sigurtafl. Ólafur Ragnar Grímsson hefur [...]

Sunnudagur 22.01 2012 - 10:35

Breiðvíkingur

Hann sat við eldhúsborðið, hellti kaffi í bollann, svo smá vodka út í. Hugsaði: “Verð að bægja frá mér allri viðkvæmni.” Tók steradósina, opnaði, hellti  nokkum  pillum í lófann,  gleypti þær svo. Hugsaði: “Nú skal þetta lið fá makleg málagjöld!” Reis á fætur, fór í leðurjakkann, gekk hröðum skrefum niður í kjallara. Opnaði vandlega duldar dyr, [...]

Föstudagur 20.01 2012 - 08:54

Sósíalismi í Singapúr?

Í bók minni Kredda í kreppu urðu mér á þau mistök að kenna Singapúr við markaðsfrelsi. Ég lét glepjast af áróðri Milton Friedmans og félaga, það þótt bókinni hafi verið beint gegn þeim. Í gærkvöldi sá ég þátt um sögu Singapúrs, þar kom í ljós að ríkið hefur löngum verið með nefið niðri í hvers [...]

Sunnudagur 08.01 2012 - 16:57

Þjóðerni og sjálfræði

Mér sýnist sú hugmynd vera ríkjandi að þjóðernisstefna og -samsemd séu andstæð einstaklings-samsemd og sjálfræði einstaklingsins. En það er ekki sjálfgefið. A.m.k. þrír virtir fræðimenn telja að þvert á móti séu tengsl milli þjóðernissamsemdar og einstaklingsfrelsis, Benedict Anderson og Craig Calhoun segja að það sé ekki einleikið  að hugmyndin um einstaklingseðlið verði til um svipað leyti [...]

Laugardagur 07.01 2012 - 14:25

Burt með forsetaembættið!

Eitt sinn fyrir langalöngu skrifaði Hannes Gissurarson grein þar sem hann hvatti til þess að forsetaembættið yrði lagt niður. Þá þótti mér þetta vond hugmynd og sagði hverjum sem það vildi heyra að refinum þættu berin súr. Hannes vissi að Sjallar ættu lítinn sem engan sjans á að fá sinn mann á Bessastaði, því vildi [...]

Föstudagur 06.01 2012 - 08:37

Vinstri og hægri hróka

Ég efast ekki eina sekúndu um að jafnt vinstri- sem hægrimenn geti verið hrókar alls fagnaðar. En ég er ekki að tala um húmor þeirra heldur það hvernig þeir hafa skipt um sess með líkum hætti og kóngur og hrókur skipta um sess þegar hrókað er í skák. Eitt sinn börðu vinstrimenn hausnum við steininn, [...]