Stefán Benediktsson

Strax
Samkvæmt Íslenskri orðabók Menningarsjóðs og Íslenskri samheitaorðabók Styrktarsjóðs Þórbergs Þórðarsonar þýðir orðið strax eftirfarandi:  að bragði, að vörmu spori, á augabragði, á stundinni, án tafar, fljótt, í hvelli, í snarhasti, í snarkasti, jafnskjótt, með hraði, nú þegar, óðara, tafarlaust, um hæl, umsvifalaust, undireins, þegar í stað.

Samkvæmt Íslensk – enskri orðabók Iðunnar þýðir orðið strax: right away, immediately.

Vextir af 300 milljarða húsnæðislánum eru um 66 milljónir á dag, um 460 milljónir á viku og um tveir milljarðar á mánuði.

Icesave-flokkarnir skulda kjósendum sínum árangur strax.

Eins og lofað var.

Milljarðamæringar semja um örlög þjóðar. Dagar 14, 15, 16 og 17.
Gildismatið er skýrt. Það fer á endanum meiri tími í að semja um skiptingu ráðuneyta og úthlutun ráðherrastóla en að semja um málefni.

Milljarðamæringar semja um örlög þjóðar. Dagur 13.
Samkomulag um framsóknarleið í skuldamálum heimila og sjálfstæðisflokksleið í fyrirgreiðslu, helmingsfjölgun ráðherra.  Blaðafulltrúar rita nú stjórnarsáttmála.

Milljarðamæringar ræða örlög þjóðar. Dagur 12.
Mennirnir sem sögðust geta flutt fjöll stöðvast við sögu af þúfu.

Milljarðamæringar ræða örlög þjóðar. Dagur 11.
Staðan slæm, en ráðherrastólum verður fjölgað og hag útgerðaheimila verður bjargað. Annað fer í nefnd.

Milljarðamæringjar ræða örlög þjóðar. Dagur 10.
Í fjögur ár vissu þeir alltaf allt betur og heimtuðu lyklana strax. Nú er eins og þeir þori ekki að taka við þeim.

Milljarðamæringar ræða örlög þjóðar. Dagur 9.
Það eina sem við fáum að vita er hvað þeir borða.

71. greinin og stjórnarskráin
Enn er nægur tími tl að ræða og afgreiða stjórnarskrármál. Hvort sem stjórnarskrárfrumvarp er rætt allt eða að hluta getur það bara farið á tvo vegu.

Umræðan er stutt og frumvarpið fer til næsta þings eða ef ekki semst um afskiptaleysi stjórnarandstöðu  eru tveir möguleikar.  Samþykkt er að beita 71. greininni og stjórnarskrá er síðan samþykkt eða beitingu 71.  greinarinnar er hafnað og þar með frumvarpinu. Búið spil.

Ef frumvarpið er samþykkt getur tvennt gerst. Málið fer hratt í gegn á næsta þingi og ný stjórnarskrá verður til eða umræðan dregst á langinn. Núverandi stjórnarskrá tryggir að næsta þing getur alls ekki komið sér undan því að samþykkja eða hafna því sem núverandi þing samþykkir.  Ef umræðan dregst gerist annað tveggja. Umræðu lýkur með samþykki og frv. verður að stjórnarskrá eða frumvarpinu er hafnað.  Búið spil.

Einu gildir hvort stjórnarskrárfrumvarpið er afgreitt nú í heild eða í pörtum, ein grein eða fleiri í einu. Samþykki næsta þings á stjórnarskrá eða breytingum á stjórnarskrá er nauðsyn til þess að hvað sem nú er samþykkt taki gildi.

Kjósendur skiptir miklu máli að vita hvar frambjóðendur standa í þessu máli. Líka þeir sem ekki eru á þingi.

Hver er afstaða stjórnarandstöðunnar?  Þær greinar sem nú er talað um að fá samþykktar virðast hljóma allar jafn illa og frumvarpið sjálft í eyrum þeirra. Trúlega af því að þeir hafa  hagsmuna að gæta.

Í þeirra augum taka allar breytingar frá þeim völd og hagsmuni sem gamla stjórnarskráin lætur afskiptalaus. Þeir munu því verjast af öllu afli.

Augljóst er að enn einu sinni, líkt og fyrir einni öld, erum við þáttakendur í sígildri orrustu um hag fárra fjölskyldna annarsvegar og „heimilanna í landinu“ hinsvegar.

Fjölskyldurnar vilja ekki að “heimilin”  fái  aðgang að þeim völdum og auðsuppsprettum sem þau ráða yfir.

Ef ljúka á stjórnarskrárumræðu með atkvæðagreiðslu  og stjórnarandstaðan er ófáanleg til samninga verður að beita 71. grein þingskapalaga. Ef beita á 71.greininni, á annað borð, er eins gott að tilefnið sé stórt. Þá dugir ekkert minna en stjórnarskrárfrumvarpið allt.

Name and shame
Nú fer fram hið eina sanna þolpróf stjórnarskrár.  Veitir stjórnarskráin valdhöfum  aðhald? Hún á að tryggja að málefnaleg afstaða fullrúa á þingi og í ríkisstjórn sé öllum kunn, alltaf. Nýja stjórnarskráin ræður vel við þetta verkefni en sú gamla greinilega ekki.

Bak við tjöldin er ónafngreindur hópur Samfylkingar- og VG þingmanna, sem hugsanlega styðja ekki frumvarpið.  Engir hafa haft betri möguleika á að koma athugasemdum á framfæri en stjórnarþingmenn og því illskiljanlegt að við skulum frétta um meintan ágreining á síðustu dögum þingsins. Við verðum að fá að sjá hverjir svokallaðir “unnendur nýrrar stjórnarskrár” eru. Kjósendur eiga rétt á að vita hug þessara þingmanna til stjórnarskrármálsins.  „Name and shame“  er stjórnarskrárvarinn réttur okkar þegar um valdhafa er að ræða.

Frumvarpið hefur ekki tekið miklum breytingum.  Að teknu tilliti til ótal athugasemda er efnislegt innihald frumvarpsins enn óbreytt.  Meintur ágreiningur er því enn óskiljanlegri en ella.

Árni Páll segir frumvarpið skorta stuðning.  Það er algerlega óskiljanlegt í ljósi samstarfssamnings Sf og VG og enn óskiljanlegra eftir 20. október.  En ef svo er, hversvegna skiptir hann þá þremur stuðningsmönnum  Hreyfingarinnar út  fyrir  tvo Bjartrar Framtíðar, sem ekki styðja málið.  Hjá Dressmann eru það þrír fyrir tvo ekki tveir fyrir þrjá. Þessi ákvörðun verður enn óskiljanlegri þegar ljóst er að Björt Framtíð ætlar bara að samþykkja breytingarákvæðið en alls ekki að samþykkja „auðlindaákvæðið“.

Á götunni núa  menn manni ýmist um nasir að verið sé að kaupa einnar viku líf ríkisstjórnarinnar fyrir stjórnarskrá eða að einhverjum  „sjálfkjörnum“  finnist þeir verða að hafa vit fyrir okkur?  Hvað vitum við hvað hirðinni þóknast?

Árni Páll veit að formenn Sjálfstæðis og Framsóknar munu aldrei verða samferða honum.  Annar er furðu hreinskiptinn og opinskár um það,  hinn felur sig bak við úrelta tillögu að auðlindaákvæði. Hvorki Bjarni né Sigmundur munu standa að lögum um breytingarákvæði.  Þeir munu heldur ekki styðja nýja auðlindaákvæðið,  frekar en Björt Framtíð.  Þau ákvæði taka ekki gildi nema að næsta þing samþykki þau og eftir vikulanga óvissuferð okkar með Árna Páli verður augljóslega ekki meirihluti fyrir breytingarákvæðinu á næsta þingi, hvað þá heldu auðlindaákvæðinu.  Menn munu því líta á þessar sáttatilraunir Árna Páls sem pólitískt klúður og kjósa „verðrygginguna burt“ eða eitthvað álíka freistandi,  í vor.

Árni Páll fullyrðir að allt sé þetta gert af því að ef nýja stjórnarskráin verði ekki samþykkt muni hún gleymast.

Ef hætta er á að nýja stjórnarskráin gleymist við að vera hafnað í atkvæðagreiðslu, þá á það nú fyrst við um þingsályktun um stjórnarskrárvinnu, hvort sem hún er samþykkt eða ekki.  Gleymdar þingsályktanir fylla álíka mörg bretti í geymslum Alþingis og skuldabréf föllnu bankanna í geymslum Seðlabankans.

Menn gleyma ekki frumvarpi að stjórnarskrá? Auðvitað gleymir enginn þeirra, sem að verkinu stóðu, stjórnarskránni.  Þvert á móti. Í höndum trúverðugs stjórnmálaafls getur „nýja stjórnarskráin“  orðið beittasta vopnið á næsta kjörtímabili, hvort sem hún er samþykkt eða ekki.

Átök um stjórnarskrá eru óhjákvæmileg.  Án rúmlega hundrað ára „átaka“ um stjórnarskrárvarin réttindi værum við enn réttindalaus eign aðals og kónga.  Að víkjast undan átökum um stjórnarskrá getur verið „pólitískt klókt“ ef endanlegur árangur er gefinn, en ef hann er það ekki er betra að „taka slaginn“. Átök fyrir opnum tjöldum eru betri en að tjaldabaki.  Trúverðugleiki skiptir öllu í pólitík.

Það er engin minnkun að því að tapa í atkvæðagreiðslu sérstaklega ekki þegar menn takast  á um sannfæringu og  grundvallarréttindi fólks. Það varð hlutskipti félagshyggjufólks á síðustu öld og verður það lengi enn.  Meirihluti núverandi þingmanna var kosinn af því að þeir sögðust, skilyrðislaust, vilja taka þátt í gerð nýrrar stjórnarskrár, með þjóðinni,  sá vilji hlýtur enn að vera fyrir hendi.  Látum á það reyna.

Ennfremur. Vegna þess sem á undan er gengið eiga kjósendur það skilið að sjá og heyra hver afstaða núverandi þingmanna er til nýrrar stjórnarskrár. Það verður ekki gert nema með opinni umræðu og atkvæðagreiðslu. Það á ekki að taka þann rétt af fólki.

Athugasemd af dekki.
Þingmenn eru nú með stjórnarskrána í höndum einungis af því að núverandi lög mæla svo fyrir.  Þeir vita, eins og við, að það samræmist ekki nútíma hugsunarhætti að þingið skrifi og samþykki sína eigin verklýsingu. Umbjóðendur þingmanna eiga að setja leikreglurnar sem valdhafarnir vinna eftir.

Meirihluti þingmanna var kosinn á þing árið 2009 af því að þeir lýstu sig viljuga til að taka þátt í gerð nýrrar stjórnarskrár,  með þjóðinni.

Stjórnlagaráðsfulltrúar sem tóku við niðurstöðum þjóðfundar, voru lýðræðislega kjörnir af sömu þjóð og kaus þingið 2009 og kaus tvisvar um Icesave. Fulltrúarnirir áttu enga sök á því sem hæstiréttur taldi ólöglegt við kjör þeirra.  Enda höfðu þau atriði (skv. Hæstarétti) engin áhrif á niðurstöðuna.

Það er ekki hægt að tala stjórnarskrá dauða. Hvað sem menn reyna. Að trúa því að það sé hægt er móðgun við stjórnarskrána og þjóðina.

Við viljum geta kosið milli flokka þann 27. apríl í ljósi afstöðu þeirra við afgreiðslu stjórnarskrárinnar í þinglok. Síðastliðin fjögur ár hafa snúist um það markmið, í stórum dráttum.

Það verður erfitt að manna símhringingar og rósagöngur sjálfboðaliða fyrir frambjóðendur sem ekki þora að taka slaginn fyrir nýrri stjórnarskrá af ótta við að það takist ekki.