Færslur fyrir flokkinn ‘Óflokkað’

Föstudagur 31.05 2013 - 12:59

Strax

Samkvæmt Íslenskri orðabók Menningarsjóðs og Íslenskri samheitaorðabók Styrktarsjóðs Þórbergs Þórðarsonar þýðir orðið strax eftirfarandi:  að bragði, að vörmu spori, á augabragði, á stundinni, án tafar, fljótt, í hvelli, í snarhasti, í snarkasti, jafnskjótt, með hraði, nú þegar, óðara, tafarlaust, um hæl, umsvifalaust, undireins, þegar í stað. Samkvæmt Íslensk – enskri orðabók Iðunnar þýðir orðið strax: [...]

Föstudagur 17.05 2013 - 16:44

Milljarðamæringar semja um örlög þjóðar. Dagar 14, 15, 16 og 17.

Gildismatið er skýrt. Það fer á endanum meiri tími í að semja um skiptingu ráðuneyta og úthlutun ráðherrastóla en að semja um málefni.

Fimmtudagur 16.05 2013 - 12:48

Milljarðamæringar semja um örlög þjóðar. Dagur 13.

Samkomulag um framsóknarleið í skuldamálum heimila og sjálfstæðisflokksleið í fyrirgreiðslu, helmingsfjölgun ráðherra.  Blaðafulltrúar rita nú stjórnarsáttmála.

Miðvikudagur 15.05 2013 - 12:09

Milljarðamæringar ræða örlög þjóðar. Dagur 12.

Mennirnir sem sögðust geta flutt fjöll stöðvast við sögu af þúfu.

Þriðjudagur 14.05 2013 - 09:22

Milljarðamæringar ræða örlög þjóðar. Dagur 11.

Staðan slæm, en ráðherrastólum verður fjölgað og hag útgerðaheimila verður bjargað. Annað fer í nefnd.

Mánudagur 13.05 2013 - 11:54

Milljarðamæringjar ræða örlög þjóðar. Dagur 10.

Í fjögur ár vissu þeir alltaf allt betur og heimtuðu lyklana strax. Nú er eins og þeir þori ekki að taka við þeim.

Sunnudagur 12.05 2013 - 12:04

Milljarðamæringar ræða örlög þjóðar. Dagur 9.

Það eina sem við fáum að vita er hvað þeir borða.

Fimmtudagur 21.03 2013 - 12:25

71. greinin og stjórnarskráin

Enn er nægur tími tl að ræða og afgreiða stjórnarskrármál. Hvort sem stjórnarskrárfrumvarp er rætt allt eða að hluta getur það bara farið á tvo vegu. Umræðan er stutt og frumvarpið fer til næsta þings eða ef ekki semst um afskiptaleysi stjórnarandstöðu  eru tveir möguleikar.  Samþykkt er að beita 71. greininni og stjórnarskrá er síðan [...]

Fimmtudagur 07.03 2013 - 17:46

Name and shame

Nú fer fram hið eina sanna þolpróf stjórnarskrár.  Veitir stjórnarskráin valdhöfum  aðhald? Hún á að tryggja að málefnaleg afstaða fullrúa á þingi og í ríkisstjórn sé öllum kunn, alltaf. Nýja stjórnarskráin ræður vel við þetta verkefni en sú gamla greinilega ekki. Bak við tjöldin er ónafngreindur hópur Samfylkingar- og VG þingmanna, sem hugsanlega styðja ekki [...]

Mánudagur 04.03 2013 - 13:11

Athugasemd af dekki.

Þingmenn eru nú með stjórnarskrána í höndum einungis af því að núverandi lög mæla svo fyrir.  Þeir vita, eins og við, að það samræmist ekki nútíma hugsunarhætti að þingið skrifi og samþykki sína eigin verklýsingu. Umbjóðendur þingmanna eiga að setja leikreglurnar sem valdhafarnir vinna eftir. Meirihluti þingmanna var kosinn á þing árið 2009 af því [...]