Fimmtudagur 22.03.2012 - 01:19 - 7 ummæli

Kosningar 2013

Egill hefur áhyggjur af framtíð stjórnarflokkanna. Skiljanlega. Það verður kosið næsta vor. Hver verður staðan þá?
Öll mál VgSf gætu verið komin í höfn, einhver mála VgSf gætu verið komin í höfn, eða engin mála VgSf. Ekkert af þessu mun breyta mikið fylgi Vg eða Sf því báðir flokkar eru í frekar vondum málum, líkt og sendiboðar válegra tíðinda og munu eiga erfitt með að vinna sig út úr því.  En hvaða áhrif hafa þessi mál á útkomu annarra flokka?
Ekkert nýju framboðanna hefur enn sagt eða gert eitthvað, sem aðrir geta ekki leikið eftir, einkum ef þeir hafa verið lengi í pólitík og eru í betri aðstöðu.  Framboðin eru ný, óspillt og velviljuð,  en stödd í sama pólitíska landslagi og gömlu flokkarnir. Þau þurfa að gera eitthvað áberandi öðruvísi til að sjást betur en aðrir.
Stóra spurningin er, af hverju er Sjálfstæðisflokkurinn ekki að auka fylgi sitt? Ef hlustað er á fjölmiðla er landið á hraðri leið til helvítis þökk sé VgSf og Sjálfstæðisflokkurinn veit allt betur. Hvar er þá fylgið.
Sjálfstæðisflokkurinn er í 30% og þarf að auka fylgi sitt um 30% til að eiga minnsta möguleika á að mynda tveggja flokka stjórn, miðað við væntanlega dreifingu atkvæða. Hann er ekki að ná árangri og það er útilokað, eins og, er að Framsókn hressist nægilega til þess að hjálpa honum.  Við blasir að hann þarf tvo flokka eða fleiri til að mynda stjórn.
Enginn nýju flokkanna mun styðja það að draga stjórnarskrárfrumvarpið til baka. Sama á við um kvótafrumvarpið.  Um ESB gegnir öðru máli og það gæti virkað sem samnefnari fyrir mörg framboðanna en Sjálfstæðisflokkurinn yrði þá að kyngja stjórnarskrár og kvótamáli.
Ef einhver væri að hugsa um pólitík í Sjálfstæðisflokknum myndu þeir selja stjórnarskrána fyrir kvótafrumvarpið eða öfugt. Þá gætu þeir hugsanlega átt von um að fá nægilega marga andESBfélaga til að mynda ríkisstjórn.

En hvað með Vg og Sf? Báðir flokkar munu tapa fylgi og engar líkur eru á að þeir nái 50% atkvæða þótt þeir hafi sannað mjög rækilega að þeir geta stjórnað í hvaða veðri sem er. Þeir þurfa að fara að huga að framtíð sinni sameiginlega ef vilji er til þess og eins hverjum þeir vilja vinna með. Kjósendur eiga rétt á að vita fyrir kosningar hvað verður eftir kosningar.

 

Flokkar: Óflokkað

«
»

Ummæli (7)

  • Siggi Jóns.

    Nú hafa margir stjórnmálamenn gömlu flokkana og einnig embættismenn sem þessir sömu stjórnmálamenn réðu til starfa, staðið eiðsvarnir frammi fyrir Landsdómi og viðurkennt vanhæfni og getuleysi sitt og þeirrar stjórnsýslu sem þeir hafa búið til á mörgum áratugum.
    Það getur varla verið erfitt fyrir kjósendur að taka ákvörðun um að kjósa þessa flokka ekki. Það er að segja, ef þjóðin er jafn vel menntuð, upplýst og skynsöm og af er látið.

  • Haukur Kristinsson

    Rétt athugað Siggi Jóns. Þessvegna, einmitt þessvegna barðist Íhaldið með kjafti og klóm gegn því að Gungan fengi sér sæti á sakamannabekk Landsdóms. Landsdómur er líklega það besta sem komið hefur fyrir stjónsýsluna frá upphafi. Að minna á að þessir vanhæfu gaurar beri ábyrgð, jafnvel þótt þeir viti ekkert, sjái ekkert, fatti ekkert, vilji ekkert og geri ekkert.
    Algjört aukaatriði hvernig Sjallaréttur dæmir í málinu.
    Sjallarnir fá í mesta lagi 20% fylgi næsta vor og hækjan má vera heppin ef hún nær 10%.
    Vigdís Hauksdóttir sér um það.

  • Jóhannes

    Eins og landslagið er núna eru mestar líkur á 3-4 flokka vinstri samsteypustjórn að loknum kosningum 2013. Hvað sem um Steingrím J má segja, þá er hann langöflugasti leiðt0ginn í pólitíkinni í dag og líklegastur til áframhaldandi forystu. Hvort þetta er íslenskri þjóð til heilla er annað mál.

    Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi. Málefnastaða hans og stjórnarandstaða gegn lélegri ríkisstjórn er ótrúlega veik. Ekki bætir úr skák að vel glittir í gamla foringjann á bak við litlausa og lélega forystu og ljóst að hann er ennþá valdamaðurinn í flokknum. Sjálfstæðisflokkurinn í dag er ekki einu sinni spennandi kostur fyrir marga sjálfstæðismenn.

    Reyndar er ennþá ár í kosningar og staðan gæti breyst.

  • Setningin “Mestar líkur eru á 3-4 flokka vinstri samsteypustjórn að loknum kosningum” lýsir svo algerum skorti á jarðsambandi; skorti á tengslum við skoðanir hins almenna Íslendings og síðast en ekki síst svo sárri afneitun að mann setur hljóðan og fyllist depurð.

    Síðan kom strax í kjölfarið fullyrðingin “Steingrímur J er líklegastur til áframhaldandi forystu” og þá áttaði ég mig á því að þarna var bara verið að spauga eitthvað og fíflast. Mér létti.

  • Hallur Heimisson

    Góð grein og greining Stefán.
    Allt bendir til að Sjallar verði að skipta um formann fyrir komandi kosningar. Núverandi formaður hefur með fyrri afskiptum sínum af atvinnurekstri og yfirlýsingum í fjölmiðlum glatað trúverðugleika sínum, hvort sem hann lendir fyrir dómstólum eða ekki. Við þetta mun allur kraftur fara ú Sjöllum, og þeir ganga særðir til kosninga. Framsókn hefur glatað öllum sínum sóknarfærum á þessu kjörtímabili, varnarbarátta þeirra verður erfið. Nýju framboðin eru óljós. Skárst lýst mér á Dögun, þó á eftir að sjá að það afl lifi fram að kosningum. Samstað Lilju er svona loforðaflokkur með eitt mál sem hrygglengju, þ.e. skuldamál. Ég sé ekki að slíkt nái í gegn þegar í kjörklefa er komið. Það sem merkilegt við þessi nýju framboð er að meginefni stefu þeirra eru þau verk sem núverandi ríkistjórn er að klára. Ég veit ekki hvort björt framtíð er fyrir Bjarta framtíð.

  • Sæll Stefán. Í lögum Dögunar – samtaka um réttlæti, sanngirni og lýðræði segir:

    ,,Áður en gengið er til kosninga liggi fyrir með hvaða framboðum eða flokkum félagið vill starfa.”

    Bestu kveðjur,
    Þórður Björn

  • samfylkingarfólkið búið að ákveða að það verði kosið næsta vor. það skiptir engu máli hvernig fylgið við stjórnarflokkana er, skiptir engu máli hvert fylgið við ríkisstjórnina mælist. Það virðist heldur engu máli skipta hversu mikill málefnaágreiningur er á milli stjórnarflokkanna er, áfram er böðlast.

    Grátleg vinnubrögð.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af tveimur og einum? Svar: