Færslur fyrir janúar, 2011

Mánudagur 24.01 2011 - 02:51

Geitin Trujillo

Fór í fýlu eftir tapið gegn Þjóðverjum og lagðist í lestur. Las frábæra bók eftir Mario Vargas Llosa „The feast of the goat“.  Sagan fjallar um atburði nokkurra daga, á mismunandi tímum, í lifi fólks, sem eru eða voru íbúar Dóminíkanska lýðveldisins. „The goat“ eða geitin er Trujillo, sem var hræðilegur einræðisherra í meira en [...]

Sunnudagur 16.01 2011 - 23:13

Klukka landsins

Mikið andskoti er stundum gaman að vera íslenskur. Sá Íslandsklukkuna í kvöld og hef ekki skemmt mér jafn vel í leikhúsi lengi, já lengi og að auki var þetta ekki bara góð skemmtun heldur líka löng skemmtun. Það versta við það góða er oftast að það er venjulega allt of stutt. Auðvitað er sagan góð [...]

Miðvikudagur 12.01 2011 - 18:36

Hvað er í gangi?

Þegar maður les erlenda fjölmiðla, þessi misserin, danska, norska, sænska, þýska, breska og ameríska fjalla þeir, allir, mikið um nauðsyn þess að efla atvinnulíf og efnahag. Ég hef lúslesið þessa fjölmiðla og hvergi,  hvergi,  hef ég fundið vangaveltur um brýna nauðsyn á aukinni nýtingu auðlinda né að miklar virkjanframkvæmdir eða bygging álvera séu alger forsenda [...]

Fimmtudagur 06.01 2011 - 23:55

Vegtollar, HM og Björk.

Vegna hrunsins erum við að nota skattpeningana í að borga af skuldum ríkisins og eigum því ekki  til peninga í mikla vegagerð.  Sunnlendingar vilja vegabætur vegna slysahættu. Verktaka og fólk sem er atvinnulaust vantar líka sárlega verkefni. Suðurlandsvegur er dýrari en þarf, af því að allir frambjóðendakjánarnir  á Suðurlandi lofuðu 2 + 2  vegi sem [...]

Miðvikudagur 05.01 2011 - 12:52

Landinn og Landsliðið

Þarf landsliðið ekki lengur landann, bara landið og fánann? Það á ekki að vera hægt að ræna okkur skattgreiðendur, lottókaupendur, söfnunarþáttakendur og styðjendur landsliðsins þeim möguleika að sjá strákana keppa fyrir okkar hönd og okkar peninga, okkar allra. Við eigum ekki að þurfa að greiða, aukalega aðgangseyri fyrir það. Ef það er hægt vil ég [...]

Þriðjudagur 04.01 2011 - 23:57

Þorleifur og “útvötnunin”

Fyrir þá sem ekki nenna að lesa of mikið eru hér þær tvær setningar sem ekki eru alveg eins orðaðar í tillögu Þorleifs um rannsóknanefnd í Reykjavík og þeirri tillögu SamBesta sem samþykkt var í dag. Tillögur Þorleifs og SamBesta eru einnig meðfylgjandi svo menn geti gert sinn eigin samanburð. Eini staðurinn þar sem orðalag [...]

Sunnudagur 02.01 2011 - 15:28

Tilraunastofa lýðræðisins.

Lýðræði er oft nefnt í umræðu en fólk ræðir samt ekki mikið um lýðræði. Í Sviss ók ég fram á mikla timburgrind. Skilti sagði þetta vera útlínur byggingar, sem fyrirhuguð væri á lóðinni. Bent var á að koma við í ráðhúsinu og tjá sig um áformin. Í deiliskipulagi og mannvirkjagerð í Sviss er íbúalýðræði mikið [...]