Færslur fyrir september, 2009
Jöfnuður skapar auðlegð!
Ástralía, Nýja Sjáland, Bandaríkin, Bretland, Danmörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð erui lönd sem búa við frjálsan markaðsbúskap og meðaltekjur fólks eru háar. Hagstjórn þessara land er samt mjög ólík og hlutskipti þegnanna eftir því. Í Bandaríkjunum, Bretlandi, Ástralíu og Nýja Sjálandi eru skattar frekar lágir og velferðarþjónusta takmörkuð. Þeir telja að besta leiðin til að [...]
Tungumálavandi eða tafir
Við skattgreiðendur borgum í búðunum fyrir vörurnar sem þeir framleiða, við borgum þeim þar að auki laun og við borgum þeim hálfan milljarð til að reka skrifstofu hagsmunasamtaka þeirra. Þeir nota þessa peninga til að halda úti hagsmunabaráttu fyrir félagsmenn sína en hún beinist gegn hagsmunum okkar neytenda því þeir vilja ekki að við kaupum [...]
Umskipti og bombur
Danir virðast skarpari en aðrir frændur okkar. Þeir hafa átt nafntogaða heimspekinga og vísindamenn. Í Kaupmannahöfn bjó pípureykjandi vísindamaður, Niels Bohr, kallaður faðir skammtafræðinnar. Það er reyndar ósanngjarnt gagnvart Heisenberg, Schrödinger, Planck, Einstein og fjölda annarra vísindamanna og erfitt að nefna föður þessara fræða nema þá etv. Kirchhoff (1859). Bohr setti fram skýringu á óskiljanlegum [...]
Sjálfstæðisflokkur?
Við urðum lýðveldi 1944. Hagstjórn Lýðveldisins hófst með Coca Cola stjórninni og hefur verið mestmegnis ömurleg alla lýðveldissöguna og aldrei þjónað nema fáum útvöldum. Verðbólga, gengishrun, einkavinavæðing og álver hafa verið aðal efnahagsúrræði íslenskra stjórnvalda. Myndaðar hafa verið 29 ríkisstjórnir á þessum 65 árum og Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt aðild að 20 þeirra og setið í [...]
Tær snilld, aftur?
Hvar eru þeir nú Íslands Hrafnistumenn úr Framsókn og Sjálfstæðis sem börðust gegn “leyndarhyggjunni” í Icesavemálinu? Nú er, allt í einu, ekkert mál að selja einhverjum kalli í Kanada eigur Reykvíkinga og lána honum fyrir partinum í sjö ár með veði í engu öðru en hlutnum sjálfum, a la Kaupthing. Það þýðir, að ekki [...]
Stefán Benediktsson