Var það skylda Ólafs Ragnars Grímssonar að fylgja útrásarvíkingunum eins og Konni fylgdi Baldri; að sitja á hnjám þeirra og hreyfa varirnar á meðan þeirra töluðu; bar honum að halda því fram við umheiminum að við hérna á þessu landi værum meiri og betri en annað fólk á þessari jörð og byggjum yfir einhverjum ofureiginleikum sem aðra skorti?
Var það skylda forsetans að fljúga með útrásardólgum um heiminn og mæra þá svo úr hófi fram að allt sæmilega innréttað fólk fær klígju þegar það les ræðurnar eða hlustar á viðtölin?
Maðurinn heldur því fram í viðtali við Bloomberg, að svo hafi verið. Að honum hafi borið skylda til að styðja íslenskt efnahagslíf með þeim hætti sem hann gerði og ef eitthvað er athugavert við þá framgöngu, er það matsfyrirtækjunum og fjármálaeftirlitinu að kenna. Segir forsetinn.
Við getum örugglega öll fallist á að það sé ekki hlutverk forsetans að tala illa um það sem íslenskt er og vel má vera að flestir telji hann eiga fljúga um heiminn og halda lofræður um allt það sem hæst ber á Íslandi hverju sinni, en ég er því ósammála.
Hann á að vera vandur að virðingu sinni en líklega er of seint í rassinn gripið með það.

Björgvin Valur Guðmundsson
Ummæli (11)
Homo Islandicus // 14.4 2011 kl. 09:50
Hvað þá með Ingibjörgu móður samfylkingarinnar sem ferðaðist um lönd og predikaði að allt væri í himnalagi?
Björgvin Valur Guðmundsson // 14.4 2011 kl. 09:54
Er hún ekki hætt?
Ólinn // 14.4 2011 kl. 10:25
Jah… hann er allavega töluvert skárri í vörn okkar en leikskólinn á alþingi. Sem gerir ekkert nema að stríða hvort öðru og setja hvað pabbi sinn sé miklu sterkari en pabbi hins.
Svo veit ég lítið um af hverju samfylkingarfólk, Sjálfstæðisfólk eða Framsóknarsauðir ætti mikið að vera að tjá sig um klappstýruhald útrásarvíkinga. Spegillinn er oft fínn.
Ólinn // 14.4 2011 kl. 10:26
úpps… segja! ekki setja.
Björgvin Valur Guðmundsson // 14.4 2011 kl. 10:44
Þetta er rétt hjá þér Ólinn. Það er ekki vinnufriður fyrir stjórnarandstöðunni.
Ég segi það sem ég vil klappstýruhald útrásardólga, því mér hefur alltaf þótt það fremur ógeðfellt. Sama hver klappstýran var.
Steinar // 14.4 2011 kl. 10:47
Var hann ekki bara að fara eftir upplýsingum frá FME og greiningardeildum sem ekki voru að standa sig í starfinu ?
Sigurður Viktor Úlfarsson // 14.4 2011 kl. 10:55
Forseti á hverjum tíma byggir sínar upplýsingar á opinberum gögnum í samræmi við lög.
Ef fyrirtæki, t.d. banki, hefur fullgilt starfsleyfi og heilbrigðisvottorð án athugasemda frá FME og Seðlabanka og hæstu flokkanir frá matsfyrirtækjum, þá væri mjög óeðlilegt ef forseti ákvæði upp á sitt einsdæmi að viðkomandi fyrirtæki ætti ekki að njóta aðstoðar forsetaembættisins vegna þess að það væri á einhvern hátt því ekki samboðið.
Ómar Kristjánsson // 14.4 2011 kl. 10:57
Vandamálið er ekki að hann skyldi gera það. Mörgu leiti skiljanlegt og eðlilegt eins og hann bendir á.
Vandamálið er hvernig hann gerði það.
Og vandamálið er ennfremur að margir ísl. eru sammála því hvernig hann gerði það.
Stefán // 14.4 2011 kl. 11:09
Þessi hræðilega ríkisstjórn er gerð afturreka í enn eitt skiptið og þá fara klappstýrur stjórnarflokkanna af stað til að beina athygli á aðra (svo skal böl bæta o.s.frv.)
En svona í ljósi þess að þeir eru víst ærulausir sem “sátu á hnjám útrásarvíkinga” hver er þá staða Össurar, Katrínar, Árna Páls og allra hinna Samfylkingarspenanna sem hreinlega grétu af hrifningu sinni af þessum téðu víkingum (eins og reyndar margir fleiri)? Verðurðu í alvörunni ekki leiður á því að láta svona vitleysu frá þér?
Einar // 14.4 2011 kl. 13:45
Hvernig stendur á því að bréf sem forsetinn sendi í kringum þetta allt saman, hafa verið “falin” og verða ekki opinberuð fyren eftir tugi ára?
Hvað stóð í þeim bréfum sem forsetinn sendi… hvað erþ að sem ekki má koma fyrir sjónir almennings… ekki næstu kynslóðum einusinni…
Eigi þessi forseti skömm fyrir þann skaða sem hann hefur valdið þjóðinni. Í sínum vinsældarkeppnum …
asi // 14.4 2011 kl. 13:55
Og nú dansar hann fyrir Rio Tinto og Alcan í erlendum fjölmiðlum.
Þetta sameiningatákn, afsakið að ég taki svona til orða; idjót, sundrar þjóð sinni enn og aftur.
Rita ummæli