Færslur fyrir janúar, 2009

Fimmtudagur 29.01 2009 - 18:06

Stórkostlegur bulgurfylltur kjúklingur með taizhiki sósi, flatbrauði með svörtum baunum og ofnbökuðum nípum og gulrótum

Er eins og sakir standa er ég staddur í héraði. Það má segja að ég sé staddur í snemmkomnu sumarfríi  í Dalslandi í (norður) suður Svíþjóð – kannski 200 inn í landi frá Gautaborg. Í seinustu viku var ég staddur í bænum Åmål (þar sem fyrsta mynd Lukas Moodyson var gerð – F&#king Åmål) sem [...]

Mánudagur 19.01 2009 - 20:28

Einn besti forrétturinn; Foie gras tvenna – karamelliseruð gæsalifur með annars vegar rauðlaukssultu og hins vegar með eplaskífum á ristuðu brauði

Einhver á eftir að segja að þessi forréttur sé “so 2007” og hver bloggar um svona á mánudegi? -  núna er tími heimagerðs sláturs og kindakæfu en ekki svona lúxus! – en mér til varnar þá hafði ég keypt þessa lifur fyrir nokkrum mánuðum síðan þegar ég var í Frakklandi með fjölskyldunni minni. Þá vorum við [...]

Þriðjudagur 13.01 2009 - 19:18

Brandade du eglefin, saumon et les crevettes avec pain de seigle et de beurre (plokkfiskur með rúgbrauði og smjöri)

Það varð að láta þetta hljóma eitthvað flottar heldur en bara – plokkfiskur. Mér finnst plokkfiskur eitthvað dapurlegt heiti yfir rétt sem flestum finnst ansi góður. Þessi franski titill er aðeins meira sexy. Jæja, fiskur á mánudegi, eins og hefðbundið er og maður er alinn upp við. Við hjónin höfum verið að reyna að vera [...]

Sunnudagur 11.01 2009 - 21:22

Seyðandi kínverskt nautakjöt með spínati og baunaspírum borið fram með ljúfu hrísgrjónasalati og góðu rauðvíni

Var að koma úr héraði á föstudagskvöldið. Átti leyfi í seinustu viku, gigtardeildin fer rólega af stað eftir áramótin, og því brá ég mér í hérað í Svíþjóð. Fór til Mariestad sem er 25 þúsund manna bæjarfélag sem liggur við Vanern vatnið í Vestur Gautalandi í miðri Svíþjóð. Þetta var skemmtileg vika, mikið að gera [...]