Færslur fyrir apríl, 2008

Mánudagur 28.04 2008 - 01:15

Hvernig San Moriglio kryddolía varð að pizzu fritta, ljúffengu brauði og hamborgurum með sæt kartöflufrönskum

Var á vaktinni í gærkvöldi. Það var talsvert að gera þannig að ég svaf aðeins fram eftir degi. Fór í ræktina þegar ég vaknaði og þegar heim var kominn fórum við hjónin með Villa í hjólatúr. Skruppum í búðir og svoleiðis. Ég er aftur á vakt á morgun þannig að þetta mun verða rólindiskvöld. Á miðvikudaginn [...]

Mánudagur 21.04 2008 - 20:10

Tveir pottþéttir pastaréttir – Pasta puttanesca og pasta með truffluolíu og eggi – leiftursnöggir

Þetta er búinn að vera hreint út sagt prýðisgóður dagur. Er við það að klára úrdrátt fyrir lyflæknaþingið sem ég þarf að klára í kvöld. Það gengur vonandi eftir. Er með tvær færslur í vinnslu – hef aðeins verið að drolla við að klára þær. Þær verða tilbúnar í vikunni. Á meðan ákvað að skella [...]

Miðvikudagur 16.04 2008 - 22:41

Grillaður hreindýrahryggur, tvennskonar hasselback kartöflur með balsamikrauðvínssósu – á undan klassískir forréttir

Var á vaktinni um helgina. Fremur rólegt en aldrei þannig að það væri hægt að hvíla sig að ráði. Ekkert verra en að brjóta nóttina niður í nokkra hálftíma lúra. Ekki það að ég sé að krefjast þess að maður eigi að sofa á vaktinni - alls ekki – en þegar það er mögulegt er súrt [...]

Miðvikudagur 09.04 2008 - 16:47

Ljúffengur lax með steiktu kúrbítsspaghetti, heitri sesamkryddolíu og soðnum hrognum

Ég hef sett margar fiskuppskriftir undanfarið á bloggið mitt enda hef ég verið að leggja mig fram við það að elda meiri fisk. Ég hef bæði verið að skoða góðar uppskriftir á netinu og einnig verið að blaða í uppskriftarbók frá Rick Stein sem heitir Seafood, ég hef einhvern tíma áður minnst á hana á netinu. Hann rekur nokkra fiskveitingastaði í Englandi [...]

Mánudagur 07.04 2008 - 14:41

Stórkostlegar steiktar andabringur með villisvepparisotto og ljúffengri púrtvínssósu

Fengum góða gesti á laugardagskvöldið. Vinafólk okkar Vigga og Bassi eru að koma til okkar í mat. Voru seinast hjá okkur í febrúar. Ég hafði einnig eldað fyrir andabringur þá – þvílík frumlegheit. Við buðum þeim í mat með fremur stuttum fyrirvara og var búinn að taka bringurnar úr frystinum – hafði steingleymt því að [...]

Laugardagur 05.04 2008 - 13:32

Fyrsta grillið; pæklaðar og marineraðar kjúklingabringur með heitu kartöflusalati og kaldri sýrðrjómasósu

Þetta blasti bara við þegar ég hjólaði á milli húsa í hádeginu, – að grilla í kvöld. Fyrir hádegi var ég að sinna verkefni á ónæmisfræðideildinni en eftir hádegi þurfti ég að vera í Fossvoginum. Að hjóla Bústaðarveginn á milli húsa er engin eldraun en umferðin getur verið rosaleg. Það var glampandi sól – vor í lofti [...]

Þriðjudagur 01.04 2008 - 22:12

Frábært steikt hrísgrjónasalat með kúrbít, chilli og rækjum

Þessi hugmynd er kominn frá Teppanyaki stað sem ég fór á úti á Calpe, sem er svona sumarleyfisstaður á Spáni á Costa Blanca ströndinni svona 30 km norðar en Benidorm. Við höfum farið tvívegis á þennan stað, fyrst með Sverri og Bryndísi ásamt börnum og svo fyrir tveimur árum síðan með Elvu Brá og Óla Hólm. [...]