Færslur fyrir janúar, 2007

Mánudagur 29.01 2007 - 23:24

Í hálfgerðri útlegð – Pastaréttur Nigel Slater

Hugmyndin að þessari heimasíðu er fengin úr bók Nigel Slater – the kitchen daires – bók sem ég eignaðist í fyrra og hefur reynst mér afar vel. Nigel skrifar frábærar bækur (ég held að ég eigi þær allar) og það sést langar leiðir að hann er nautnaseggur fram í fingur góma – hann er svona karlkyns [...]

Laugardagur 27.01 2007 - 23:58

My father strikes back – return of the nattemad

Eftir að ég las fyrir pabba hvað ég var að blogga um niðurlög nattemads í sumarbústaðnum - snéri hann hann aftir í eldhúsið og snaraði fram ansi vígalegum næturverði til að gleðja allt heimilisfólkið. Hann skar niður svartan danskan kastalaost sem hann svo baðaði í hrærðu eggi og brauðraspi og svo steikti á pönnu uppúr heitri olíu. [...]

Laugardagur 27.01 2007 - 23:26

Í sumarbústað foreldranna – pabbi eldar og eldar

Foreldrar mínir keyptu sér sumarbústað fyrir rúmum 6 árum síðan. Ég held að það sé besta fjárfesting sem þau hafa gert. Bústaðurinn er á Grjóteyrartanga við Meðalfellsvatn - sem er eiginlega vin rétt hjá höfuðborginni. Hérna höfum við fjölskyldan oft varið frábærum helgum með foreldrum mínum þar sem þau galdra fram stórkostlega rétti. Hér var á árum áður [...]

Föstudagur 26.01 2007 - 13:32

Besta lasagna í heimi – Konan mín sigrar eldhúsið

Þar sem ég er afar fyrirferðamikill maður – þá sérstaklega í eldhúsinu – hefur það komið til minna kasta að sjá um eldhúsverkin. Þegar við hjónin vorum að byrja okkar búskap þá var það samkomulagsatriði okkar á milli að ég fengi að sjá um eldhúsið og Snædís konan mín tæki að sér þvottanna. Þetta eru [...]

Fimmtudagur 25.01 2007 - 21:43

OMG – Enn og aftur redding

Þetta er búinn að vera nokkuð stressandi dagur. Í gærkvöldi leit hann bara vel út…en klukkan 1130 sprakk á dekki á bílnum mínum og það var erfiðara en andskotinn að losa það af. Þetta setti daginn hálftíma á eftir áætlun – sem ég náði síðan aldrei að leiðrétta fyrr en núna – um það leiti sem [...]

Miðvikudagur 24.01 2007 - 21:39

Vetrargúllassúpa með hafrakexi og mogginn í heimsókn

Það var hringt í mig frá morgunblaðinu í vikunni og ég var beðinn um að veita viðtal. Þá hafði einhver á morgunblaðinu lesið bloggið mitt – það var þá hann sem var að hreyfa teljarann hjá mér. Mér fannst þetta bara skemmtilegt og ræddi við Sigrúnu Ásmundardóttur blaðamann. Við ræddum stuttlega saman og svo spurði [...]

Miðvikudagur 24.01 2007 - 00:07

Lax á fjóra vegu – New Scandinavian cooking og svo mín leið

Okkur hjónunum hefur alltaf þótt lax afar góður – erum sennilega ekki ein um það – vorum þó kominn í svona stemmingu að detta alltaf í sama farið þegar átti að elda lax. Ekki slæm uppskrift þó Mitt vers. Lax með roðinu lagður í eldfast mót, smurður með smá olíu, saltaður og pipraður. Blöndu af Kikkoman [...]

Mánudagur 22.01 2007 - 19:56

Sunnudagssteikin – The Sunday Roast

 Í minni fjölskyldu er mikil hefð að hafa matarboð á sunnudagskvöldum. Yfirleitt er það fjölskyldan sem kemur saman – oftast heima hjá mömmu og pabba, mamma eldar lambalæri eða kjúkling, en ég er farinn að bjóða heim í ríkari mæli. Í gær gerði ég undantekningu á og bauð ekki fjölskyldunni heldur bauð góðum vinum mínum [...]

Laugardagur 20.01 2007 - 17:29

Úr súpu í góða kjötsósu

Á fimmtudaginn var talsvert eftir af súpunni frá því kvöldið áður. Súpur eins og þessar verða bara betri á því að bíða yfir nóttina. Við vorum samt ekki alveg í stuði til að endurtaka leikinn alveg frá því kvöldinu áður heldur ákváðum við að söðla aðeins um en nota súpuna góðu sem grunn í kjötsósu. [...]

Föstudagur 19.01 2007 - 23:20

Dásamleg súpa og heimagert brauð

Eiginkona mín Snædís gerði súpu á miðvikudagskvöldið sem reyndist alveg stórgóð – ekki að það hefði komið neitt á óvart – hún er afar lunkinn í allri súpugerð, jafnframt gerir hún besta lasagna í heimi og gúllasið hennar er á heimsmælikvarða. Ég hugsa að hún myndi gera margt meira á heimsmælikvarða í eldhúsinu ef ég [...]