Naglinn hefur oft fengið fyrirspurnir um ráðleggingar til að drepa niður púkann sem hamast og djöflast til að ýta okkur útaf heilsubrautinni og draga niður í svaðið í undirheima sykurguðsins. Nýlega kom athugasemd frá lesanda sem segist breytast í “kökuskrímslið” á nokkurra mánaða fresti og hvernig eigi að rífa sig upp næsta dag og fara í ræktina, prumpa út samviskubitinu og halda áfram?
Naglinn lumar sannarlega ekki á neinum leikfimisæfingum fyrir gráa efnið sem eru töfralausn til að halda sig á mottunni, sá sem gerir það hlýtur að verða ríkari en Facebook kvikindið. Það berjast allir við púkann, Naglinn líka, en það eru þó nokkur atriði sem ber að hefja upp til himnanna í þessum lífsstíl.
Ekki vera í allt-eða-ekkert pakkanum. Hvert mataræðisplan á að gera ráð fyrir 1-2 frjálsum máltíðum á viku þar sem dýrinu er leyft að leika lausum hala og mallinn sykurhúðaður pínu pons. Það sem einkennir samt ansi marga á heilsubrautinni er svarthvíti hugsunarhátturinn – “fyrst ég hef gúffað í mig einni sneið af skúffuköku er eins gott að sökkva alla leið ofan í og panta pizzu, slátra Nóa kropps pokanum og smyrja mig með transfituhúðuðum kleinurhingjum í nokkra daga.”

Með því að leyfa þér smá lottó um helgar kemurðu í veg fyrir að súkkulaðipúkinn öskri af öllum lífs og sálar kröftum og eykur líkurnar að þú haldist á beinu brautinni yfir vikuna. Við erum ekki munkar í Tíbet svo það er engin ástæða til að neita sér um öll lífsins gæði.
Ekki hafa daglega mataræðið einhæfara en eldhúsdagsumræður á Alþingi. Vertu svolítið skapandi í eldhúsinu og prófaðu nýjar hollustu gúmmulaði uppskriftir í hverri viku.
Fjölbreytni er krydd lífsins – ef þú étur kjúlla með hrísgrjónum alla daga frem og tilbage koma upp tilfinningar þar sem þér finnst bragðlaukarnir vera hlunnfarnir í þessu lífi. Þá er bara einn áfangastaður í boði – uppgjöf og með tilheyrandi átkasti enda á að bæta upp fyrir tapaðan tíma sem fór í hænsnasmjatt.

Ef þú ferð útaf brautinni meira en góðu hófi gegnir skaltu ekki leggjast í kör með snýtuklútaboxið og sængina upp að höku. Það detta allir í það af og til… ALLIR!! Líka þessir allra hörðustu – við erum öll mannleg og breysk. Það eru hinsvegar þeir sem girða brókina yfir bumbuna, bretta upp ermarnar á bjúguðum höndunum og draga rassinn á sér með alefli og handafli aftur á beinu brautina eftir hrösun sem ná árangri.
Þar sem þú liggur á þriðja degi í átu með fráhnepptar brækurnar uppi í sófa með samanvöðlaðan tóman Doritos pokann undir rasskinninni og kókslefið útá kinn, spáðu í hvernig þér líður. Ertu í skýjunum af hamingju? Varla… Er þér ekki illt í útsprengdri bumbunni af ofáti? Er þér ekki samt meira illt í sjálfsmyndinni sem liggur mölbrotin undir Nóa kropps leifunum á gólfinu? Þér finnst þú vera aumingi og niðurrifsstarfsemi á sjálfinu fer í fimmta gír.
Ímyndaðu þér svo hvernig þér líður þér eftir djöfulgang í ræktinni slafrandi í þig hafragraut og eggjahvítupönnsu. Eins og milljón króna seðli nýstraujuðum úr Seðlabankanum, er það ekki? Notaðu þessa mynd af þér skínandi af heilbrigði til að truntast aftur á heilsubrautina og fá aftur vellíðunar endorfínin streymandi um skrokkinn.
Naglinn þekkir það af eigin skinni þegar villidýrinu hefur verið sleppt lausu með tilheyrandi ofátsgræðgiskasti þar til líkaminn líkist bókstafnum Þ að það er ekkert sem þráð er heitar en að komast aftur í guðdómlegu heilsubrautina og losa vökvann úr kaktusnum í vömbinni.
Það er mikilvægt að hafa í huga að þegar allt kemur til alls snýst þetta um þitt eigið val. Þú ert ekki í Guantanamo heilsunnar – þú fékkst ekki yfir þig Stóra dóm um að stunda heilsusamlegt líferni með góðu og hollu mataræði. Þú velur að gera það – þú getur líka valið að verma IKEA sófann með snúð í annarri og kók í hinni.
Það skemmtilega við lífið er að við höfum alltaf val.
Við veljum í hvernig líkama við búum með hegðun okkar.
Við veljum líka hvernig við hegðum okkur með hugsuninni og að lokum veljum við hvernig við hugsum.
Það er hinsvegar full vinna að hugsa jákvætt og þarf að skrúfa hausinn í rétta átt á hverjum einasta morgni. Það er svo miklu auðveldara að vera neikvæður en jákvæður því neikvæðar hugsanir laða að sér meiri neikvæðni.
Hvernig þú velur að horfa á og hugsa um heilsusamlega lífsstílinn þinn – jákvætt eða neikvætt – ákvarðar hversu vel eða illa þú helst á þeirri braut.
Ragnhildur Þórðardóttir


Ummæli (16)
Þórdís // 25.11 2010 kl. 22:33
Þú ert stjarna. Alltaf hitta pistlarnir þínir beint í gráa efnið
Takk takk
Anna Margrét // 25.11 2010 kl. 23:24
TAKK ELSKU RAGGA!!
Þú bjargar mér alveg.
Nú ertu komin á jólakortalistann minn!
Nú bíð ég bara kökuskrímslinu í heimsókn á laugardagskvöldum og bið það vinsamlegast að haga sér fallega.
Þá ætti ég að getað forðast ,,stórslysaátin”
Takk aftur innilega fyrir að svara og gefa góð ráð.
Klara // 26.11 2010 kl. 00:09
Enn hittir Naglinn naglann á höfuðið!
Alls ekki slæmt að geta gengið að svona frábærri hvatningu hérna í skrifum þínum, takk!
Þuríður // 26.11 2010 kl. 00:19
Akkurat það sem ég þurfti að lesa núna!!
Takk kærlega!!
Sæunn // 26.11 2010 kl. 10:26
Þurfti á þessu að halda. Go Naglinn!
Hrefna // 26.11 2010 kl. 10:43
You crack me up!
Er orðin jafn húkkt á pistlunum þínum og laugardags Kit Kat’inu mínu.
Vildi óska að ég hefði þig í vasanum svo ég gæti seilst í vitneskjuna þína, þegar mér hentar.
Læt nægja að skemmta mér yfir blogginu og drekk í mig fróðleikinn
Hulda // 26.11 2010 kl. 11:01
hahahaha snilldar pistill Mr. Nagli #1
Held að ég fari að fordæmi Önnu og bæti þér á jólakortalistann. Síðan þín er með fleiri “hit” í tölvunni minni heldur en mbl …. enda mun merkilegri (og ég tala nú ekki um áhugaverðari) skrif hér
Þú og Ella sprella eruð svo sannarlega “meðetta”
Tinna // 26.11 2010 kl. 11:16
oh, andskotinn ég var að vonast eftir töfralausn frá þér, einhverri möntru sem ég get farið með og voilá! matarfíknin horfin.
Ég hef margreynt þessi ráð en þau hverfa í svarthol gleymskunnar þegar fíknin tekur yfir – vonandi einhvern daginn mun ég ná þessu!
Ég prenta þetta út og hef í vasanum, sjáum hvað það gerir;)
Rut R. // 26.11 2010 kl. 11:20
“Ímyndaðu þér svo hvernig þér líður þér eftir djöfulgang í ræktinni slafrandi í þig hafragraut og eggjahvítupönnsu. Eins og milljón króna seðli nýstraujuðum úr Seðlabankanum, er það ekki? ”
hahahhahaha…þú ert svo mikill snilldar penni!!!
HK // 26.11 2010 kl. 21:58
Vávává hvað þetta hitti beint í mark núna. Er einmitt í þessum pakka, með feituna, prófljótu og uppþembdan maga eftir ógeðið sem maður setur ofan í sig “afþví það má því ég er svo dugleg að læra”
Snillingur ertu!!
ragganagli // 27.11 2010 kl. 09:19
Nú er Naglinn eins og fransbrauð eftir allt þetta hrós. Takk takk, gaman hve margir nenna að lesa nöldrið
Býst þá við nokkrum auka jólakortum í ár LOL
Ásdís Emilía // 28.11 2010 kl. 12:55
Takk Ragga mín!
Í Guðs almáttugs bænum ekki tala um þessa frábæru pistla þína sem nöldur, þeir eru sko engan veginn nöldur.
Þú ert frábær – takk fyrir að vera með þetta blogg þitt hér, það virkilega hjálpar mörgum – sjáðu bara kommentakerfið hjá þér!
JóhannaÓl // 28.11 2010 kl. 13:18
Nákvæmlega, þetta er ekki nöldur ! Upplifi pistlana þína sem bestu hvatningu sem til er
Erna // 29.11 2010 kl. 14:56
Sammála öllum ! Alveg hreint frábær lesning og svo mikil hvatning fyrir mann til að halda sér á beinu og hreinu brautinni
Samt ein spurning, hefur örugglega milljón sinnum fengið hana, hvað á maður að fá sér að borða fyrir æfingar? Þú skrifaðir í einum pistlinum að gott væri að borða hrískökur, beyglur og cheerios meðal annars eftir æfingar, en hvað fyrir æfingar?
Jóhanna Hlín // 29.11 2010 kl. 15:22
Hafragrautur og próteinpannsa!!!
ragganagli // 29.11 2010 kl. 16:21
http://blog.eyjan.is/ragganagli/2007/10/12/æfing-i-daghvað-skal-borða/
http://blog.eyjan.is/ragganagli/2008/03/04/æfa-æfa-æfa-borða-borða-borða/
http://blog.eyjan.is/ragganagli/2008/07/23/hvað-skal-borða-fyrir-æfingu/
http://blog.eyjan.is/ragganagli/2007/07/06/eg-hugsa-þess-vegna-borða-eg-kolvetni-og-eg-hugsa-af-þvi-eg-borða-kolvetni/
Rita ummæli