Finnst þér erfitt að takmarka gómsætar kaloríuhlaðnar máltíðir, víndrkkju og sælgæti við eitt til tvö skipti í viku? En hvað það er sjokkerandi!!….við á heilsuvagninum erum hinsvegar hoppandi af kæti yfir kjúklingnum á mánudegi en ekki löðrandi pizzu með brauðstöngum á kantinum.
HALLÓ!!! Vaknaðu og lyktaðu af túnfisknum. Ef það væri auðvelt að fylgja hreinu mataræði þá myndu allir sporta 50 cm byssum og hefluðum six-pakk allt árið um kring. En málið er að stærsta hindrunin í veginum er hausinn og litli púkinn sem djöflast og hamast í þeim eina tilgangi að koma þér á kaldan klaka með markmiðin þín.
Því miður eru alltof margir sem falla örendir í baráttunni við þann gæja.
Við sem höldum okkur á mottunni vitum að hreint mataræði og reglulegar rækarferðir kemur okkur á áfangastað. Það munu reglulegar sófavermingar með pizzu í annarri og kók í hinni hinsvegar ekki gera.
Ef það er eitthvað sem Naglinn þolir ekki þá er það grenj og væl yfir árangursleysi þegar smettið hefur verið smurt reglulega með snúð og kókómjólk, hvítvíni og rjómasósum.
Ef þú ert ekki að leggja þig 100% fram hvernig geturðu þá ætlast til að ná 100% árangri?
“Já en ég vil bara lifa lífinu, ég get ekki verið munkur í meinlætalífi”
Gott og vel, látum það liggja milli hluta að flokka víndrykkju, sælgætisát og kókdrykkju sem mælikvarða á að lifa lífinu. En sannleikurinn er sá að til þess að lifa heilsusamlegu lífi er ekki samasemmerki milli heilsusamlegs mataræðis og meinlætalífs. Ekki falla í sömu gryfju og svo alltof margir þar sem aðeins kál og kjúlli er í boði. Slíkar drastískar aðgerðir hafa bara eina útkomu – uppgjöf.
“Ég var í afmæli, skírnarveislu, fermingu. Ég kunni ekki við að segja nei. Það er bara of mikið félagslíf í gangi hjá mér”
En svo vantar ekki yfirlýsingarnar um hin og þessi markmið og að það þurfi að ná þeim fyrir þennan og þennan dag. Kjarni málsins er hinsvegar sá að ef þú vilt “lifa lífinu” oft í viku skaltu ekki voga þér að grenja yfir bætingaleysi í ræktinni, að spikið hypji sig ekki eða að kjötið hlaðist ekki í bunkum.
Það er þetta sambandsleysi í hausnum á fólki milli eigin frammistöðu og væntinga til árangurs sem setur allar taugarnar í Naglanum í spennitreyju og pirringurinn streymir um skrokkinn á 100 km/klst.
Ef þú ákveður leiðina að markmiðinu þá verðurðu að sætta þig við hvað felst í að halda þig á þeirri braut. Ef þú þarft að finna innri hvöt til að halda þig þar og ekki tilbúin(n) að skuldbinda þig þar, þá ertu kannski á vitlausri braut. Þegar allt kemur til alls er það hegðun okkar sem ákvarðar hvað skiptir okkur máli.
Lífið er bara of stutt fyrir leiðinlegan, bragðlausan og þurran mat gott fólk. Það hefur enginn úthald í að borða ljósritunarpappírs þurrar kjúllabringur.
Naglinn hefur verið í ham í eldhúsinu undanfarið og tilraunastarfsemi stunduð af kappi svo hörðustu petrídiskar og pípettur roðna. Margar þeirra hafa þó verið með misgóðum árangri, enda fær Naglinn víst seint heiðursverðlaun Húsmæðraskólans *roðn*.
En þegar vel tekst til falla súrar tilraunir í gleymskunnar dá þar sem gleðin yfir enn einu einföldu, gómsætu og heilsusamlegu kombói í safnið yfirtekur allt gráa efnið.
Ein slík hamingja helltist yfir Naglann fyrir skömmu þegar sóðaleg uppskrift leit dagsins ljós fyrir nýjasta uppáhaldið í svartholið, rækjur. Naglinn blæs á allt kjaftæði um að þessi bleiku krútt séu hræætur og blablabla… þær eru bara of gómsætar til að sniðganga í lífinu.
Rækjugleði Naglans:
1/2 hvítlauksrif marið
1/2 laukur
1/2 rauð paprika
nokkrir sveppir
skammtur af rækjum (100-200g eftir þörf hvers og eins)
Upphífingar eru ein besta æfingin fyrir bakvöðvana, sérstaklega sjalvöðvann (e. latissimus dorsi).
Þessa æfingu má gera ýmist með lófana upp eða niður eða hvor að öðrum. Til þess að takmarka virkni tvíhöfðans sem aðstoðarmanns í hreyfingunni og einangra sjalvöðvann er best að snúa handarbökum upp og lófum niður (e. pronation). Virkni sjalvöðvans fer eftir bilinu milli handa – því víðara grip því meiri virkni á latissimus. Þrengra grip virkjar síðan meira neðri hluta latissimus.
Til þess að fá sem mest útúr æfingunni er mikilvægt að forðast að nota vogaraflið, sveiflur og rykkingar a la Elvis til að koma hökunni yfir stöngina.
Það eru fáar æfingar sem eru jafnmikið naglaofurmennskutákn en upphífingar. Þess vegna ætlar Naglinn að verða eins og þessi tútta mjög bráðlega takk fyrir takk.
Þrátt fyrir að Naglinn sé með Evrópumeistari í átvaglsgreininni þá eru ákveðin matvæli sem valda túttunni þvílíkri velgju og viðbjóði að ekki einu sinni starandi í byssukjaft með lífið að veði fengi slík ómeti að snerta rósrauðar varirnar.
Naglinn hefur sannarlega nýtt sér uppskeru sumarsins í berjum og sérstaklega hafa litlu dúllurnar fengið að nuddast við hafrana í grautnum góða og glatt bragðlaukana í morgunsárið.
Kirsuber hafa verið í sérstöku uppáhaldi þetta sumarið. Þessi munúðarfulli ávöxtur inniheldur anthocyanins sem er öflugt andoxunarefni sem dregur úr bólgumyndun og sársauka en hvoru tveggja hefur teljandi áhrif á harðsperrur og auma vöða og liði eftir æfingu. Kirsuber eru mikið rannsökuð þessi misserin fyrir heilsubætandi áhrif, meðal annars í tengslum við áhrif þess á lægri líkamsfitu, hjartasjúkdóma og sykursýki.
Naglanum þótti niðursneidd kirsuber út í grautinn aðeins of “kedeligt” og vildi fá smá jólanostalgíu a la ris a ala mande með kirsuberjasósu.
Heilinn var því lagður í marineringu og út kom þessi uppskrift:
Kirsuberin skorin niður – steinninn fjarlægður
Skellt í pott með oggulitlu vatni c.a 1 msk- má alls ekki vera of mikið vatn þá verður gumsið að djús en ekki sultu.
Þegar byrjað að sjóða eru berin stöppuð í mauk með gaffli
Afgangs vatni hellt af svo eftir verði kirsuberjasósusultugums
Hafragrautur með HUSK, salti, kanil og möndludropum soðinn uppá gamla móðinn. Grautnum góða hellt í skál og kirsuberja dásemdinni hrært saman við.
Voilá… avoine a la mande avec cerises (Naglinn er bara svo internassjónal í tungutaki)
Vissulega er bætt heilsa og betri skrokkur markmið flestra sem mæta í ræktina af kappi og tileinka sér hollt mataræði. Staðreyndin er samt sú að stór hluti ræktariðkenda eru þar í fagurfræðilegum tilgangi – í leit að flottari skrokk og lögulegri línum.
Þegar markmiðið er að losa lýsið þarf stundum að taka á honum stóra sínum. Eftir langan tíma í niðurskurði fer róðurinn að þyngjast, líkaminn að þrjóskast við og fitutapið að hægjast. Þá þarf að endurskoða planið – má breyta einhverju, bæta og laga? Eða getur verið að helgarnar séu að hindra árangur? Sumir fá nefnilega ofátsgræðgisröskun þegar gúmmulaði er á boðstólum – * hóst* Naglinn *hóst *. Þá er gott ráð að prófa að vera 100% í 1-2 vikur, sleppa öllu svindli, nammidögum, frjálsri máltíð…. hvað sem fólk vill kalla hliðarsporið sitt – og sjá hvað gerist.
Fyrir suma er 100% mataræði í nokkrar vikur jafn óyfirstíganlegt verkefni og að sætta Ísrael og Palestínu.
Af hverju? Er það virkilega svo að æfingar og hollt mataræði er kvöl og pína sem við þraukum með fýlusvip bara til þess eins að geta verðlaunað okkur um helgar með súkkulaði, kók og sveittum sjoppuborgara? Er það ekki kolrangur hugsunarháttur??
Hvers konar líf er það líka sem snýst bara um hvenær við getum næst smurt innyflin með mettaðri fitu og sykri?
Matur verður alltaf til staðar og verður líka eftir 2 vikur, 3 vikur, 4 vikur…. hvað sem þarf til að láta boltann rúlla og ýta okkur yfir stöðnunarmörkin.
Naglinn er á degi 23 í 100% mataræði og samúðin því engin yfir væli og grenji.
Það er enda fátt leiðinlegra í lífinu en neikvæðni og bölmóður. Sé eingöngu einblínt á það sem EKKI má borða er gulltryggð leiðin til uppgjafar. Með því að hugsa stöðugt um súkkulaði, pizzu og grenja ofan í hafragrautinn verður þetta auðvitað vonlaust og hundleiðinlegt verkefni.
Naglinn getur fullvissað alla um að súkkulaði hugsar ekki um ykkur og pizza saknar ykkar ekki baun.
Þetta er algjörlega einstefnu þráhyggja og söknuður.
Það er svo miklu auðveldara að fara í gegnum lífið með jákvæðni að leiðarljósi. Að vera 100% í mat og drykk í nokkrar vikur er erfitt, og hundleiðinlegt það skal enginn ljúga öðru. En það er öllu hundleiðinlegra að sjá aldrei árangur erfiðisins og grenja yfir möffin toppi og bakspiki.
Fyrsta 100% helgin er erfiðasti hjallinn, því það er jú erfitt að kenna gömlum hundi að sitja þegar vaninn er að ‘hygge sig’ um helgar. Eftir það verður siglingin auðveldari og við venjumst að umgangast freistingar með réttu hugarfari.
Það er jú hugarfarið sem skiptir öllu máli.
Hugsanir um hvað sé í boði og gera sem best úr þeim mat og hvaða árangri við náum er drifkrafturinn sem þarf í slíkt verkefni. Að sjá glitta í grjótharðan kviðinn, stæltari handleggir og víðari brækur er líka sætara en nokkuð súkkulaði.
Heilsufíkill með brennandi áhuga á öllu sem viðkemur hreyfingu, líkamsrækt og hollri næringu. M.Sc í heilsusálfræði og spái því mikið í mátt hugans þegar kemur að heilsusamlegri hegðun.
Athugasemdir eru til ánægju, yndisauka og skoðanaskipta. Bendi á greinarnar á síðunni til fróðleiks fyrir spurningar sem vakna.
echo $after_widget;
}
// This is the function that outputs the form to let the users edit
// the widget's title. It's an optional feature that users cry for.
function widget_authors_control() {
// Each widget can store and retrieve its own options.
// Here we retrieve any options that may have been set by the user
// relying on widget defaults to fill the gaps.
$options = $newoptions = get_option('widget_authors');
// If user is submitting custom option values for this widget
if ( $_POST['authors-submit'] ) {
$newoptions['Title'] = strip_tags(stripslashes($_POST['authors-title']));
$newoptions['Option Count'] = isset($_POST['authors-option-count']);
$newoptions['Exclude Administrator'] = isset($_POST['authors-exclude-administrator']);
$newoptions['Show Full Name'] = isset($_POST['authors-show-full-name']);
$newoptions['Show Description'] = isset($_POST['authors-show-description']);
$newoptions['Hide Empty'] = isset($_POST['authors-hide-empty']);
$newoptions['Show Image'] = isset($_POST['authors-show-feed-image']);
// Save changes
if ( $options != newoptions ) {
$options = $newoptions;
update_option('widget_authors', $options);
}
}
$title = attribute_escape($options['Title']);
$optioncount = $options['Option Count'] ? 'checked="checked"' : '';
$exclude_admin = $options['Exclude Administrator'] ? 'checked="checked"' : '';
$show_fullname = $options['Show Full Name'] ? 'checked="checked"' : '';
$show_description = $options['Show Description'] ? 'checked="checked"' : '';
$hide_empty = $options['Hide Empty'] ? 'checked="checked"' : '';
$feed_image = $options['Show Image'] ? 'checked="checked"' : '';
// Here is our little form segment. Notice that we don't need as
// complete form. This will be embedded into the existing form.
// Be sure you format your options to be valid HTML attributes
// before displayihng them on the page.
?>