Færslur fyrir: maí 2009
Af því að handan við hornið er löng helgi þá er hér uppskrift að snarli með Pina Colada bragði til að koma fólki í helgargírinn.
Fín millimáltíð þegar skyrið er farið að valda velgju.
Pina Colada – áfengis-og sykurlaus
125 g kotasæla
3/4 bolli ananas bitar
Kókos síróp (fæst í Kaffitár)
Vanilludropar
Ísmolar
Blanda í blandara
Góða helgi!!
Flokkar: Uppskriftir
Ávaxtasykur finnst í miklu magni í djús/safa. Flestir safar innihalda 8-10 grömm af sykri í einu glasi (200 ml).
Ávaxtasykur hefur aðra efnafræðilega samsetningu en strásykur en báðir virka eins á líkamann: of mikið magn er fitandi.
Eitt glas á dag er algjört hámark. Fyrir kyrrsetufólk sem ekki hugsar mikið um mataræðið ætti að takmarka neyslu við nokkur skipti á viku.
Skársti kosturinn er safi með ávaxtakjöti, því þegar það er sigtað frá fjarlægjast mikilvæg snefilefni og vítamín.
Mælt er með að fólk borði frekar ávexti en að drekka safa. Safar metta ekki eins vel og ávextir. Maður er líka miklu fljótari að fá alltof mikinn ávaxtasykur í gegnum safadrykkju en að borða ávexti. Fæstir borða 6 appelsínur í einu, en eiga ekki í vandræðum með að slurka í sig safa frá 6 appelsínum.
Flokkar: Fitutap · Fróðleikur
Hollur matur og þolþjálfun eru ekki eini mátinn til að fyrirbyggja krabbamein.
Niðurstöður nýlegrar rannsóknar sem framkvæmd var við Karolinska spítalanum í Stokkhólmi sýndu að menn geta minnkað líkur á krabbameini um allt að 40% með því að rífa í járnið af krafti. Tæplega 9000 karlmönnum var fylgt eftir frá 1980 til 2003. Þessar niðurstöður breyta fyrri ráðleggingum sem flestar hafa beinst að þolþjálfun til að minnka líkur á krabbameini: hlaupum, hjólum o.s.frv.
Það er því jafn mikilvægt og gagnlegt að pumpa lóðin, eins og að borða hollt og stunda þolþjálfun til að fyrirbyggja krabbamein.
Meira að segja menn í yfirþyngd sem stunduðu styrktarþjálfun ákaft voru ólíklegri til að fá krabbamein en menn í kjörþyngd sem ekki stunduðu styrktarþjálfun.
Það er ekki nauðsynlegt að æfa eins og vaxtarræktarkappi og djöflast í stærstu lóðunum. Það er nóg að lyfta lóðum, svitna og fá púlsinn upp. a.m.k 2 sinnum í viku, eða í 30 mínútur 5 sinnum í viku,
Rannsóknin bíður birtingar í tímaritinu Cancer Epidemiology, Biomarkers and Prevention.
Flokkar: Fróðleikur · Lyftingar
Alltof margir, bæði konur og karlar, leyfa líkamanum að drabbast niður og safna fitu undir hinum ýmsu kringumstæðum. Það getur verið meðganga, prófatörn, skilnaður, atvinnumissir, slys… hvað sem er. Sumir vakna upp við vondan draum og eru búin að bæta á sig 10,20, 30 kg yfir mánuði jafnvel ár.
Eitt sem Naglinn skilur ekki. Svona fitusöfnun krefst stöðugt stærri fatastærða. Kaupir fólk hugsunarlaust næstu stærð fyrir ofan þegar sú “venjulega” passar ekki lengur? Er það ekki kinnhestur í andlitið og lykt af kaffi??
Naglinn skilur heldur ekki hvernig er hægt að hunsa heilsusamlegan lífsstíl og nota ytri aðstæður sem afsökun fyrir að hreyfa sig ekki og borða óhollt. Til dæmis er alltof algengt að fólk í prófatörn sukki í nammi og snakki, og “hafi ekki tíma” til að hreyfa sig. Í gegnum allt háskólanámið, bæði B.A og M.Sc, datt ekki út ein einasta æfing hjá Naglanum né heldur fór eitt einasta óplanaða svindl upp í túlann. Bitnaði það á náminu? Nei, síður en svo. Að hreyfa sig í 1 klst á dag kemur blóðrásinni í gang og þar með eykur blóðflæði til heilans. Eins hressir það fólk við að komast burtu frá námsefninu í smástund og leyfir heilanum að sortéra upplýsingarnar. Þú kemur bara sterkari inn í lærdóminn á eftir.
Alveg er Naglinn viss um að eiginmenn sem fá samúðarbumbu fara með bílinn í skoðun á þessum 9 mánuðum, og að fólk í prófatörn baði sig og tannbursti. En líkaminn er látinn sitja á hakanum.
Það er þrautinni þyngri að ná af sér mikilli fitu, og krefst gríðarlegrar þolinmæði, staðfestu og dugnaðar.
Er ekki gáfulegra að koma í veg fyrir slíka ferð með því að setja líkamann alltaf í forgang?
Flokkar: Fróðleikur · Hugarfar · Hvatning · Mataræði
Öflugasta hvatningin er sjálfsábyrgð þegar kemur að þvi
Flokkar: Fitutap · Fjarþjálfun · Hvatning
Þetta eru vondar frétttir fyrir kóksvelgina þarna úti, þið verðið öll skít-aum af þessu þambi. Naglinn drekkur ekki þennan svarta-dauða í plastflösku enda er Naglinn nautsterkt kvikindi

. En að öllu gamni slepptu þá spyr maður sig hvað er eiginlega í kolsvörtum vökva sem hægt er að nota til að smyrja hurðalamir?? Það getur ekki verið hollt innihald fyrir mannslíkamann, eins og hefur greinilega komið í ljós.
Flokkar: Bölsót · Fitutap · Fróðleikur
* Vissir þú að sykurneysla á mann á Íslandi er komin upp í eitt kíló á viku?
* Vissir þú að með viðbættum sykri í skólajógúrt, skólaskyri, rjómaskyri, ávaxtajógúrt og þykkmjólk fer heildarsykurmagn vörunnar í 10-14%?
* Vissir þú að venjuleg mjólk, ab-mjólk, óblandað skyr og súrmjólk innihalda aðeins um 4% mjólkursykur, allan frá náttúrunnar hendi?
* Vissir þú að eina morgunkornið sem ekki inniheldur viðbættan sykur eru óblandaðar hafraflögur?
* Cheerios er þó aðeins 3% sykur, Corn Flakes 5%, All Bran 18%, Múslí 22%, Frosted Cheerios inniheldur 40% sykur og Coca Puffs 47%. Þessar vörur eru þó auðugar af ýmsum bætiefnum.
* Vissir þú að gosdrykkjaneysla á Íslandi hefur rúmlega þrefaldast á þremur áratugum og er nú komin í meira en 130 lítra á mann?
* Vissir þú að þurrefni í gosdrykkjum er meira en 99% sykur?
* Vissir þú að algengt magn viðbætts sykurs í kexi er 17-19% og í kökum 21-28%?
* Vissir þú að sykri er bætt í nánast allan pakka-, dósa- og glasamat á Íslandi?
* Vissir þú að ennþá er ekki skylt að tilgreina viðbættan sykur á umbúðum íslenskra matvæla?
* Vissir þú að enginn aðili á Íslandi telur sig hafa það hlutverk að mæla hvort innihaldslýsingar á íslenskum matvælum séu sannleikanum samkvæmar?
* Vissir þú að nýjar rannsóknir í Bandaríkjunum benda til svipaðs boðefnarugls í heila við neyslu sykurs og við neyslu fíkniefna og borð við áfengi og heróín?
Flokkar: Fróðleikur · Mataræði
C-vítamín gerir meira en að koma í veg fyrir kvef. Það er hjálparefni í ýmsum ferlum í líkamanum, t.d í myndun kollagens í bandvef, auk þess að auka upptöku á járni úr fæðunni. Vægur skortur af C-vítamíni kemur fram sem þreyta, minni mótstaða gegn sýkingum og blóðleysi vegna þess að upptaka á járni er léleg.
C-vítamín er öflugt andoxunarefni og berst á móti sindurefnum í líkamanum. Sindurefni (free radicals) geta valdið lifandi frumum skaða en C-vítamín verndar frumur líkamans, blóð og aðra vessa likamans frá skemmdum af völdum sindurefna. C-vítamíns gegnir einnig mikilvægu hlutverki í vöðvauppbyggingu og er mikilvægt bætiefni fyrir fólk sem æfir af krafti.. Það kemur í veg fyrir að nítur oxíð sé eyðilagt af sindurefnum sem eykur blóðflæði til vöðva.
C-vítamín heldur testósterón magni í líkamanum í hámarki með því að minnka hlutfall kortisóls á móti testósteróni. Rannsókn í Journal of Strength and Conditioning Research sýndi að inntaka á 1000 mg af C-vítamíni á dag minnkar losun kortisóls í líkamanum, en eins og við vitum er kortisól vondi kallinn sem eyðileggur vöðvana okkar. Þannig geta vöðvarnir stækkað og við getum lyft meiru.
Þar sem líkaminn ferlar C-vítamín mjög hratt þá mæla margir sérfræðingar með að taka 500 mg af C-vítamíni 2x á dag, sérstaklega mikilvægt er að taka C-vítamín eftir æfingu.
Það er meira af C-vítamíni í papriku en appelsínu: í einni stórri papriku eru 209 mg C-vítamín á móti 98 mg í einni stórri appelsínu.
Flokkar: Fróðleikur · Fæðubótarefni
Þú sannfærir sjálfa(n) þig að sleppa siðasta repsi/setti/spretti
Flokkar: Hvatning · Lyftingar
‘Gnístran tanna’ er tímabil sem verður í veginum í leit að líkamlegum umbreytingum þar sem þú þarft bara að bíta á jaxlinn, hætta að væla og halda áfram.
Þetta er oftast tímabilið þegar byrjenda áhrifin hafa dvínað, þar sem breytingarnar eru mjög hraðar, og til lokaafurðarinnar. Breytingar eru að eiga sér stað, en þú sérð þær ekki frá einni viku til annarrar.
Hugarfarslega er ‘Gnístran tanna’ tímabilið þegar nýja prógrammið og mataræðið er ekki lengur spennandi, allt er komið upp í rútínu, jafnvel bara leiðinlegt. Þú einfaldlega ferð eftir planinu dag eftir dag eins og vélmenni.
En það sem gerist undir lok ‘Gnístran tanna’ tímabilsins er að þú kíkir á “fyrir” myndirnar og áttar þig á að meiriháttar breytingar hafa átt sér stað. Annað fólk byrjar að taka eftir breytingunum og þú færð hrós hingað og þangað. Svoleiðis jákvæðar athugasemdir geta kveikt aftur neistann sem hleypir meiri krafti í æfingarnar og hörku í mataræðið. Afleiðingarnar eru meiri árangur.
Undir lok ‘Gnístran tanna’ tímabilsins er einhver áfangi eða verðlaun, yfirleitt í formi útlitslegra breytinga, aukins styrks, þols o.s.frv.
En ‘Gnístran tanna’ kemur alltaf fyrst.
Vandamálið er, að flestir eru ekki tilbúnir í svona fórnir. Þeir byrja ekki einu sinni á ‘Gnístran tanna’ hvað þá klára það tímabil. Og það er ástæðan fyrir því af hverju margir ná ekki árangri. Það er alltof stutt í uppgjöfina.
Flokkar: Fitutap · Hugarfar · Hvatning · Lífstíll