

Þessi kertastjaki var einu sinni niðursuðudós, hvort sem þið trúið því eða ekki.
Meira sniðugt á heimasíðu hönnuðarins Jason Taylor


Þessi kertastjaki var einu sinni niðursuðudós, hvort sem þið trúið því eða ekki.
Meira sniðugt á heimasíðu hönnuðarins Jason Taylor
→ Rita ummæliFlokkar: Breytingar · Endurvinnsla · List og hönnun · Smáhlutir
Efnisorð: dós, kertastjaki
Ég tók röltið í Góða Hirðinum í dag, úrvalið ekki jafn gott og á mánudögum, en nóg samt til að kveikja nokkrar hugmyndir í ofvirkum heila. Eigandi ofvirka heilans þyrfti helst að eiga risastórt hús, ögn bólgnara veski og fleiri daga í vikunni til að geta gert allt sem hana langar til að gera (já eða eigin sjónvarpsþátt). Nóg um það – það voru allavega 2-3 eldhús-/borðstofuborð í Góða sem litu ágætlega út, þyrftu í mesta lagi smá sandpappírsnostur og jafnvel málningsslettu eða tvær. Ef einhvern langar að gefa gömlu borði nýtt líf eru hérna nokkrar hugmyndir.
Fyrir


Fyrir

Eftir: (Útkoman svolítið of hrein og bein fyrir minns smekk, en smekklegt engu að síður.)

Svo má þekja hluta borðsins, eða allt borðið með þunnu lagi af steypu… Ég væri til í svoleiðis borð á vinnustofuna mína (sem ég eignast einhverntíman)

Og svo má ekki gleyma krítarmálningunni sem hefur tröllriðið veggjum Íslendinga, og allt í góðu með það enda bæði skemmtilegt og flott. Hérna er borð málað með krítarmálningu (aftur, myndi fíla þetta á vinnustofu! En dökkgrátt matt borðstofuborð þætti mér reyndar líka mjög flott.)
Fyrir:

Eftir (tveir hnettir fyrir aftan borið… og tveir í næsta herbergi!)

Sama borð, búið að kríta á það

Fyrir þá sem vilja eiga valmöguleikann á að leyfa matargestunum/börnunum að teikna á borðið, eða gera það jafnvel sjálfur sem borðskreytingu, en eru ekki tilbúnir að mála borðið sitt þá lærði ég sniðugt ráð af henni Kristínu vinkonu minni um daginn, en það er að hafa bréfdúk á borðinu og liti í krukkum. Einfalt, en svo sniðugt og skemmtilegt, sérstaklega í veislum og partýum.
- – -
Næsta borð er ekki borðstofuborð heldur sófaborð, en þið getið hæglega ímyndað ykkur bláa litinn á stærra borði.
Fyrir:

Eftir: (Einkunnarorð eigandans eru “Be brave, do what you love”)

Þetta er af sömu síðu. Fyrir:

Eftir:

og eigandinn bætir við: “better a painted table you adore than a wood one you keep because you feel obligated, but you don’t really love at all.”
Sko.. ég skil hugsunarganginn og er að einhverju leyti sammála – en mér finnst að fólk eigi að gefa sér góðan tíma og hugsa sig um hvort það virkilega tími að mála viðinn. Tískan breytist svo hratt og það er ekki aftur snúið svo það er eins gott að vera viss. Þess vegna er sniðugt að kíkja í Góða Hirðinn eða aðrar svipaðar búðir og næla sér í ódýrt borð sem maður er ekki tilfinningalega tengdur, frekar en að mála gamla tekkborðið hans afa bleikt.
→ 8 ummæliFlokkar: Breytingar · Heimilið
Efnisorð: borð, borðstofa, borðstofuborð, breytingar, eldhúsborð

Ég er mikill aðdáandi leikfangaeldhúsa, en þá hugsa ég yfirleitt um litla eldavél, kannski með ofni og hillu fyrir ofan. Þetta barn á heilt eld-Hús með örbylgjuofni, brauðrist og öllum mögulegum leikfangamat. Eitthvað af matnum er úr búðinni Dans MonCabanon sem er með voða sætar vörur, en það er óþarfi að leita langt yfir skammt; IKEA er til dæmis með mikið úrval af “mat” í barnadeildinni.

(Er það bara ég eða er maturinn stundum óhuggulega raunverulegur?)
Ég fjárfesti í litlu pottasetti á útsölunni um daginn, og það er mikið búið að steikja og sjóða, til dæmis sveppatómataostakál – sem ég veit ekki hvernig myndi bragðast í raunveruleikanum, en það er nú snilldin við að leika sér; raunveruleikinn er manni alveg óviðkomandi.

Svo rakst ég á ofsalega sæta ofnhanska í barnastærð í Tiger á laugaveginum, en finn því miður hvergi mynd á netinu – þeir eru hvítir með rauðum hjörtum og myndu sóma sér vel hangandi á snaga á leikfangaeldhúsi.
Ef þið vitið um búðir sem selja falleg leikfangaeldhús eða mat og annað í eldhúsin þá megiði endilega skilja eftir athugasemd.
→ 4 ummæliFlokkar: Óflokkað
Á vafri mínu á Design Sponge rakst ég á ofsalega falleg verk eftir ljósmyndarann Marco Suarez. Dagurinn í dag var frábær og ljósmyndirnar láta mér líða vel.
Ég vona að ykkur líði líka vel.


→ Rita ummæliFlokkar: List og hönnun
Efnisorð: ljósmyndir, marco suarez

Ég datt inn á tvo POPUP markaði í desember og fannst ég í hönnunarhimnaríki. Það er frábært að geta keypt íslenska hönnun beint frá hönnuðinum, fyrir utan að varan er töluvert ódýrari þannig. Ég keypti mér til dæmis litríka og flotta Pardus peysu frá hönnuðinum Ásu Ninnu Pétursdóttur, að vísu ekki þessa á myndinni, en hún er voða falleg líka.

Fleira sem var á POPUP í des voru til dæmis “Bóndinn” og “Veiðimann” sem eru uppskriftaspilabækur – þ.e. spilastokkur með einni uppskrift á hverju spili úr sennandi íslensku hráefni. Við gáfum pabba mínum veiðimann, en tengdapabbi fékk bóndann. Þarna er að finna marga girnilega rétti en skemmtilegastar þykja mér teikningarnar eftir grafíska listamanninn Rán Flygenring. Hönnuður spilanna er Stefán Pétur Sólveigarson, en hann er kannski þekktari fyrir kertastjakana sína Skrauta og Fjanda. Hægt er að spila ýmis spil með spilastokkunum, en það er sérstaklega gaman að spila veiðimann, en þá skiptir maður út “áttu gosa?” fyrir til dæmis “áttu naut?” eða “áttu gæs?” og eru þá naut eða gæs aðal uppistaðan í uppskriftinni.

FÆR:ID tóku líka þátt í jólaPOPUP og voru til dæmis með Reykjavíkur piparkökuformin fallegu (er ekki synd að piparkökur séu ekki bakaðar allt árið um kring, ég held ég fari að taka upp á því heima hjá mér) og Master skókanínurnar sem geta bjargað stígvélum frá því að liggja krumpuð á skápagólfinu.

Verslaði líka gullfallega flík (risastóran “trefil”) frá Shadow Creatures í útskriftargjöf fyrir mágkonu mína og öfunda hana ekkert smá af því að eiga þessa dásemd. En ég get kannski fengið hann lánaðan, ef ég bið hana voða voða fallega.


Ég mæli með því að fylgjast vel með því hvenær næsta POPUP verzlun poppar up.
Svo megið þið kæru lesendur endilega vingast við Óskalistann á Facebook ef ykkur líkar síðan.
→ 1 ummæliFlokkar: íslenskt · Jól · List og hönnun · Smáhlutir · Útlit og tíska
Efnisorð: föt, fær:id, íslensk hönnun, pardus, pop up, popup, stefán pétur sólveigarson, verzlun
Ég elska þegar arkitektar og hönnuðir hugsa út fyrir kassann – sérstaklega þegar markhópurinn eru börn. Arkitektinn Keiichiro Sako á heiðurinn af þessari gullfallegu bókabúð fyrir börn; Kid’s Republic í Shanghai en þar flæðir allt í trjáberki og hringlaga formum.





→ 3 ummæliFlokkar: Börn · List og hönnun
Það má alltaf finna eitthvað sniðugt og skemmtilegt á ThinkGeek síðunni.
Þar fæst m.a. smekkur með lendingarbraut fyrir flugvélaskeiðina

“Hér kemur fluuuuugvéééliiiiin!”

Og svo snilldar Loopa Gyroscopic skálin fyrir börn sem eiga það til að hvolfa matardisknum.



Það eru til nokkur vídjó á youtube sem sýna fullorðið fólk prufa skálina og ekkert hellist út fyrir – en stundum eru börnin klókari en foreldrarnir, sbr. þetta vídjó. Skálin er virkilega sniðug en börnin eru sniðugari og eitthvað segir mér að flestir foreldrar lítilla barna munu áfram eyða löngum tímum á fjórum fótum við að þrífa mat upp úr gólfinu.
→ 2 ummæliFlokkar: Börn · List og hönnun · Smáhlutir · Tækni
Efnisorð: matartíminn, skál, smekkur
Ég elska IKEA. En eins og í öllum góðum ástarsamböndum vottar líka fyrir ögn af pirringi því ansi oft er varan sem mig vantar ekki til í margar vikur/mánuði. En nóg um það, IKEA er yfirleitt með ódýrari kost fyrir næstum allt sem mann/konu vantar fyrir heimilið. Fyrir löööngu síðan keypti ég kryddhillur til að breyta í bókahillur fyrir litla kút og er svo ánægð með útkomuna
Þið munið kannski einhver eftir gamalli færslu þar sem ég var að leita að fallegum bókahillum en uppgötvaði kryddhillurnar hjá Ólöfu Jakobínu.
Ég ætla líka að misnota mér aðstöðu mína hér og auglýsa hókus pókus stólinn á myndinni til sölu á 7000 kall. Hann er mjög flottur og vel með farinn en stýrið er týnt.
Svo er nýtt verkefni í bígerð. Fyrir nokkrum árum komst ég yfir þetta dásamlega litla náttborð en nú hefur það þjónað sínu hlutverki sem náttborð nógu lengi og fær bráðum rosalegt make over! Stay tuned !
→ 4 ummæliFlokkar: Beggudót · Börn · Endurvinnsla · Heimilið · Hirslur
Sumir fæðast til þess að verða læknar, aðrir bakarar eða bókhaldarar. Siggi vinur minn er hinsvegar fæddur snillingur og listamaður og ég bara stóðst ekki mátið að skella hérna inn link á síðuna hans krassogkrot.blogspot.com. Nýjasta afkvæmið hans er skemmtilegur uppvakningur – tilvalið til að föndra með börnunum
haha


Pdf skjal til útprentunar finnið þið á síðunni hans.
Gleðilegt nýtt ár!
→ 1 ummæliFlokkar: Óflokkað
Óskalistinn vonar að þið hafið átt notaleg og falleg jól. Jólin mín voru …

… barnajól. Mikið eru jólin skemmtileg í návist þessa fallega drengs.

… pakkajól. Dreifðum jólagjöfum sonarins á 4 daga. Nýtt dót hefur leyst gamla dótið af (í bili, sjá hér)

… matarjól. Sykurbann næstu mánuði!

… fjölskyldujól. Beggurnar á jólunum í Garðabæ.

… spila- og vinajól. Það var svo gott að fá alla heim frá útlöndum yfir jólin!

… ástarjól *muuuahhh*
… og síðast en ekki síst – tanntökujól! 3 nýjar tennur búnar að angra lítinn kall yfir jóladagana.
→ 3 ummæliFlokkar: Beggudót · Börn · Jól