Ómar Ragnarsson

blogg á eyjan.is Íslands þúsund ár.

Messi, dýrðardrengur boltans.

17.5 2010 | 07:41 | Rita ummæli

Margur sóknarmaður í knattspyrnu leggur of mikla áherslu á að láta brjóta á sér, “fiska” víti eða aukaspyrnur. Þetta gerir boltannn leiðinlegan. Hér í gamla daga var oft gaman að horfa á Elmar Geirsson hinn fljóta og sókndjarfa knattspyrnumann gera hið þveröfuga, að komast hjá því að láta varnarmenn stöðva sig með því að “hlaupa upp úr tæklingum” í stað þess að láta þá bregða sér.

Þetta sér maður Lionnel Messi gera hvað eftir annað af stakri snilld og nota lágan þyngdarpunkt sinn, snerpu og leikni hjálpa sér til við að smeygja sér af list á milli varnarmanna án þess að þeir fái færi á að brjóta á honum og stöðva hann.

Það er dásamlegt að horfa á Messi þegar hann er í þessum ham í  stað þess að láta bregða sér og nota leikhæfileika og vælukjóaskap til að fiska aukaspyrnur eins og svo margir sóknarmenn gera.

Flokkar: Óflokkað



Þú verður að vera innskráð/ur til að rita ummæli.