Færslur fyrir apríl, 2011

Fimmtudagur 28.04 2011 - 19:04

Og hver er hún þá þessi atvinnuleið?

Samtök atvinnulífsins flagga mjög hinni svokölluðu “atvinnuleið” þessa dagana. Mætti helst ætla af málflutningi þeirra og Moggans að kjaraviðræðurnar snúist fyrst og fremst um ”atvinnuleiðina” sem SA hafi sett fram af hugsjón sinni og umhyggju fyrir landi og þjóð. En hvað stendur þá í vegi fyrir þessari svokölluðu atvinnuleið? Lítum á nokkur helstu atriði. Krafa um lækkun avinnutryggingagjalds “til samræmis [...]

Sunnudagur 24.04 2011 - 14:09

Margur heldur mig sig

“Margur heldur mig sig” hugsaði ég og gat ekki varist brosi þegar ég las þau ummæli Ásmundar Einars Daðasonar að forysta Samfylkingarinnar ”skilji ekki stöðuna” og sé ”tilbúin að fórna fyrstu hreinu vinstri stjórn landsins fyrir einangrað stefnumál sitt varðandi Evrópusambandsaðild”. Þessi ungi þingmaður þarf að fara að átta sig sjálfur á “stöðunni” því það er hann sem skilur [...]

Fimmtudagur 21.04 2011 - 17:23

Gleðilegt sumar

 Kæru lesendur mínir.  Ég ætla ekki að blogga um nein þjóðfélagsmál í tilefni dagsins heldur einfaldlega að óska ykkur öllum gleðilegs sumars. Það er forn trú að maður skuli taka mark á þeim orðum sem sagðir eru við mann á fyrsta sumartungli, eins og Guðmundur Ingi Kristjánsson útskýrir vel í fallegu ljóði: Sumartungl Eftir fornri þjóðtrú, það [...]

Mánudagur 18.04 2011 - 10:34

Þjóðaratkvæði um fiskveiðistjórnun

Mér sýnist óhjákvæmilegt úr því sem komið er að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um fiskveiðistjórnunarmálin, eins og ég raunar lagði til fyrr í vetur með þingsályktunartillögu sem enn bíður afgreiðslu í þinginu. Óbilgirni og yfirgangur LÍÚ er með þeim hætti að segja má að þeir hafi fyrirgert rétti sínum til þess að eiga nokkra aðkomu að málinu [...]

Sunnudagur 17.04 2011 - 18:01

Vindur í seglum

 Fyrsta bindi sögu verkalýðshreyfingar á Vestfjörðum er komin út. Nefnist hún Vindur í seglum og nær yfir tímabilið 1890-1930. Höfundur er Sigurður Pétursson sagnfræðingur. Bókin er afrakstur margra ára heimildasöfnunar og skráningarvinnu með meiru. Í henni vefast saman samfélag- og verkalýðssaga á fyrstu áratugum íslenskrar verkalýðsbaráttu.  Ég gríp hér niður í bókarkynningu þar sem segir  m.a.: Þar [...]

Föstudagur 15.04 2011 - 12:21

Ömurleg uppákoma í þinginu

Kaldhæðnislegt er það að þurfa nú – næst á eftir umvöndunarpistli gærdagsins um hnignandi umræðuhefð – að greina frá fáránlegri uppákomu sem varð milli mín og Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur forseta Alþingis í þinginu í morgun. Visir.is greinir skilmerkilega frá uppákomunni hér  Tilefnið var að ég þurfti að bera af mér sakir, eftir að hafa ekki [...]

Fimmtudagur 14.04 2011 - 17:07

Hnignandi umræðuhefð

Eftir umræður gærdagsins um vantrauststillöguna í þinginu, hef ég hugsað mikið um mannasiði og almenna háttvísi. Því það var átakanlegur skortur á hvoru tveggja í umræðunum í gær.  Hátterni Sjálfstæðismanna þegar forsætisráðherra flutti sitt mál gekk fram af fleirum en mér, eins og heyra mátti á upphafsorðum Steingríms J. Sigfússonar af sama tilefni. Við Guðmundur Steingrímsson ræddum þetta og fleira í Morgunútvarpi [...]

Miðvikudagur 13.04 2011 - 23:57

Hér er verk að vinna

Í dag rökstuddi ég í þinginu traust mitt á ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur með þeim orðum sem heyra má í þessari ræðu (hér). “Höfuðlausn Bjarna Benediktssonar” var vantrauststillaga hans kölluð í dag – enda er hún sett fram til þess að breiða yfir vantraustið sem hann sjálfur sætir nú í eigin flokki, eins og leiðari Moggans vottar [...]

Miðvikudagur 13.04 2011 - 18:46

Ræða Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra í dag

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstvirtum þingmanni, Bjarna Benediktssyni fyrir að leggja fram þessa þingsályktunartillögu og efna þannig til umræðu um störf ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar- Græns framboðs. Fyrstu meirihlutastjórn jafnaðarmanna og félagshyggjufólks á Íslandi. Fyrstu ríkisstjórnina sem ekki er bundin á klafa sérhagsmuna í atvinnulífi og forréttindastétta. Það þarf engan að undra að það [...]

Þriðjudagur 12.04 2011 - 16:29

Ljómandi vantrauststillaga

Vantrauststillaga sú sem Bjarni Benediktsson hefur nú lagt fram á ríkisstjórnina – og verður væntanlega tekin til afgreiðslu á morgun – er alveg hreint ljómandi gott innlegg í umræðuna núna. Það er bara hið besta mál að stjórnin sjái styrk sinn í þinginu, eftir allt sem á undan er gengið. Besta mál. Raunar mætti stjórnin í [...]