Færslur fyrir janúar, 2011

Mánudagur 31.01 2011 - 21:54

Orð án ábyrgðar

Þeir sem áskilja sér rétt til að gagnrýna aðra, hljóta að geta sjálfir tekið gagnrýni. Eða það myndi maður ætla. Því er þó ekki alltaf að heilsa. Fáir hafa gert ríkari kröfu til þess að fá að tjá óánægju og gagnrýni en Lilja Mósesdóttir og Ögmundur Jónasson. Af ummælum þeirra ýmsum hefur mátt skilja að það sé [...]

Sunnudagur 30.01 2011 - 00:09

Hugur í jafnaðarmönnum

Auðheyrt var á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag að Samfylkingarfólk er búið að fá meira en nóg af hótanapólitík Samtaka atvinnulífsins og LÍÚ. Í ályktun fundarins er viðleitni samtakanna til þess að hafa áhrif á stjórnvaldsákvarðanir um fiskveiðistjórnunarkerfið harðlega fordæmd og Samtök atvinnulífsins minnt á að þau fari ekki með löggjafarvald í landinu. Flokksstjórnin minnir á þann [...]

Fimmtudagur 27.01 2011 - 23:49

Hnignun umræðuhefðar

Umræðuhefð okkar Íslendinga hefur hnignað eftir hrun. Þegar “netheimar loga” má segja að umræðuvettvangurinn sé eins og blóðugur bardagavöllur þar sem allt er leyfilegt til þess að knésetja talsmenn andstæðra skoðana. Og það þarf ekki netheima til. Í umræðuþáttum, blaðagreinum, jafnvel leiðurum dagblaða  og úr ræðustóli Alþingis láta menn gamminn geysa – fara í manninn en ekki [...]

Mánudagur 24.01 2011 - 22:10

Stundin er runnin upp

Viðfangsefni jafnaðarmanna um allan heim er að tryggja jafnrétti kynslóðanna til auðlindanýtingar, afnema órétt og ójöfnuð og virða mannréttindi. Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna stendur núna frammi fyrir sögulegu tækifæri til að afnema þann órétt og ójöfnuð sem hlotist hefur af núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi. Í 28 ár hafa byggðir landsins liðið fyrir afleiðingar fiskveiðistjórnunarkerfis sem upphaflega [...]

Sunnudagur 23.01 2011 - 22:14

Útkall F-2 gulur

Tvö útköll að baki þessa helgina – í báðum tilvikum fór alltsaman vel. Fyrra útkallið kom um tvöleytið í gær: Gönguhópur hafði villst í niðaþoku í námunda við Kleifarvatn. Fólkið var vel búið og veður milt, svo ekki var hætta á ferðum, enda tókst því að gera vart við sig símleiðis. Engu að síður fóru [...]

Sunnudagur 23.01 2011 - 15:59

Hvat er með ásum – hvat með álfum?

Við vorum kallaðar saman í “skessuhornið” á Sprengisandinum hjá Sigurjóni M. Egilssyni kl. 11 í morgun, ég, Unnur Brá og Eygló Harðardóttir. Ekki sammála um lífið og tilveruna fremur en fyrri dagin, nema jú eitt: Sjálfboðastarf björgunarsveitanna á Íslandi er til fyrirmyndar og mætti verða mörgum stjórnmálamanninum til eftirbreytni. Annars kom ýmislegt til tals í [...]

Laugardagur 22.01 2011 - 21:20

Falskir flytjendur

Það var eitthvað athugavert við flutning allra laganna í  söngvakeppni sjónvarpsins í kvöld. Flestir flytjendurnir  voru einfaldlega falskir – misfalskir að vísu. Meira að segja uppáhalds söngkonan mín hún Bryndís Ásmundsdóttir var ekki alveg með það.  Mig grunar að tæknimálin hafi átt hér hlut að máli, því það var eins og flytjendurnir heyrðu ekki of [...]

Miðvikudagur 19.01 2011 - 10:44

Átökin um auðlindirnar – nokkrar leiðarvörður

Átökin um auðlindirnar verða helsta viðfangsefni stjórnvalda næstu mánuði og misseri. Almenningur er til allrar hamingju farinn að  láta málið til sín taka. Segja má að orðin sé þjóðarvakning um eignarhald þjóðarinnar á auðlindum sínum. Fiskveiðiauðlindin er þjóðarauðlind – nýting hennar og ráðstöfun á að vera í samræmi við aðrar auðlindanýtingu, þ.e. tímabundinn afnotaréttur sem skilar arði til [...]

Þriðjudagur 18.01 2011 - 17:49

Lífsbjörgin var seld: Skuggahlið kvótakerfisins

Nú berast alvarlegar fréttir frá Flateyri, fiskvinnslan Eyraroddi orðin gjaldþrota og á fimmta tug starfsmanna hafa misst atvinnu sína. Enn eitt áfallið sem þetta litla byggðarlag þarf að takast á við á skömmum tíma. Hér sjáum við afleiðingar kvótakerfisins í hnotskutn. Eftir að því var komið á, söfnuðust aflaheimildirnar á fárra hendur, þær runnu frá byggðarlögum [...]

Laugardagur 15.01 2011 - 23:56

Fjölmennur baráttufundur um nýja fiskveiðistjórnun

Það var mikill hugur í mönnum á baráttufundi um nýja fiskveiðistjórnun sem Reykjavíkurfélög Samfylkingar og VG efndu til á Grand Hotel í dag, og troðfullt út úr dyrum. Héðan í frá getur engum blandast hugur um það hver vilji flokksmanna er. Stjórnvöld hljóta að taka brýningu félaganna og þessa fundar sem kærkominni hvatningu til dáða í því [...]