Færslur fyrir maí, 2012

Miðvikudagur 30.05 2012 - 11:55

Eldhús

Hér fylgir ræða mín flutt við Eldhúsdagsumræður í gær: Virðulegi forseti, kæru landsmenn, Eftir langan vetur virðist sumarið vera komið hjá okkur íslendingum og veðurspár líta vel út. Sömu sögu má segja um íslenskt athafnalíf. Eftir harðindavetur og eitt efnahagshrun er viðspyrnan hafin af krafti og spár líta vel út. Fyrir þremur árum var landið [...]

Föstudagur 18.05 2012 - 06:36

Frétt á Stöð 2

Í gærkvöldi birti Stöð 2 frétt um mætingu þingmanna á fundi Efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Þar kom fram að ég hafi mætt 7 sinnum á fundi nefndarinnar frá áramótum en 21 sinni kallað inn varamann og þannig var látið að því liggja að ég hefði illa mætt í vinnuna. Skýringin á fjarvistum mínum er þessi: [...]

Föstudagur 11.05 2012 - 12:51

Báknið burt

Nú hefur Alþingi samþykkt þingsályktunartillögu Ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur um að fækka ráðuneytum úr tíu í átta. Markmiðið er spara pening, auka skilvirkni, búa til stærri og öflugri einingar, bæta þjónustu og ákvarðanatöku.  Þessar breytingar eru í takti við niðurstöður Rannsóknarnefndar Alþingis. Sérstaklega er ánægjulegt að nú hafa landbúnaðar-, sjávarútvegs- og iðnaðarráðuneyti  verið sameinuð í eitt [...]

Fimmtudagur 03.05 2012 - 08:23

Sex prósent

Það hefur verið gleðilegt að fylgjast með hvernig umsvif og afkoma í sjávarútvegi hafa aukist á síðustu árum. Þar hefur farið saman hátt afurðaverð í erlendri mynt, lágt raungengi krónunnar og góðar gæftir. Undanfarin ár hafa mörg af stærstu fyrirtækjunum notað til þess að grynnka á skuldum í stað þess að fjárfesta. Það var eðlileg [...]