Magnús Geir Eyjólfsson

Veruleikafirrt snobbtík borðar humar
Ung og efnileg kona viðraði þá skoðun sína í Fréttatímanum í morgun að áfengisverslanir eigi að vera opnar á sunnudögum. Í niðurlagi viðtalsins sagðist hún vona að sjálfstæðismenn munu sjá til þess að í framtíðinni geti Íslendingar keypt sér hvítvín með humrinum og rauðvín með steikinni þegar þeim hentar.

DV gerði sér mat úr ummælum konunnar, sem svo vill til að er formaður Heimdallar. Þegar þetta er skrifað hafa 110 manns skrifað ummæli við fréttina. Langfæst þeirra snúa að þeirri spurningu sem lagt var upp með í upphafi, það er hvort vínbúðir eiga að vera opnar á sunnudögum eða ekki.

Nei, langflest ummælin fara í að úthúða blessaðri konunni, fyrir það eitt að hafa skoðun. “Rjómi íslenskra netverja” hefur boðað til veislu í athugasemdakerfi DV.

Samkvæmt þeim á “þessi skinka sem fædd er með silfurskeið í kjafti og hefur aldrei þurft að takast á við neitt…að fara og drekkja sér í búsi.” Þessari “veruleikafirrtu snobbtík” sem er með “lakkaðar neglur á laugardögum” er ráðlagt að “fara heim og láta renna af sér”. Og “stelpukjáninn”, sem vekur “kjánahroll” hjá netverjum,  “á greinilega mjög erfitt.” Henni er líkt við Marie Antoinette sem sagði fólkinu að borða kökur því það hafði ekki efni á brauði. Svo mikið var netverjum um að þeir báðu Guð að blessa Ísland, því að hún kemur til með “að erfa landið.”

Svo minnast náttúrulega margir á að “venjulega” fólkið hefur svo sannarlega ekki efni á að borða steik og humar, nema auðvitað sjálfstæðismenn sem “græða á daginn og grilla á kvöldin”. Og þau spyrja sig hvað í andskotanum svona forgangsröðun eigi að þýða (Reyndar sagði hún aldrei að þetta væri forgangsmál, hvorki hún né aðrir sjálfstæðismenn).

Aðeins um þetta. Íslendingar borða steikur. Íslendingar borða líka humar. Ekki bara Sjálfstæðismenn. Stór meirihluti Íslendinga hefur líka efni á að borða steikur og humar. Vissulega eiga mörg heimili í vandræðum, en alls ekki öll. 63.500 íslensk heimili eiga auðvelt með að ná endum saman og þeim fjölgaði um 8 prósent á milli ára. Þeim sem halda því fram að við Íslendingar séu svo fátækir að við höfum ekki efni á slíkum munaði er bent á þessa heimasíðu. Ég er nokkuð vissum að flestir, ef ekki allir, falla í hóp 1 til 2 prósent ríkustu íbúa jarðarinnar.

Það er mér ekkert hjartans mál að hafa vínbúðir opnar á sunnudögum. Ég gæti alveg lifað án þess og ég held að frelsi Íslendinga yrði ekkert meira við það. En umræðan er alveg sjálfsögð og skoðun formanns Heimdallar er innlegg í þá umræðu.

Og rétt í lokin. Ég ber hundrað sinnum meiri virðingu fyrir skoðunum þessarar konu heldur en skoðunum þeirra sem tekið hafa til máls á vettvangi DV. Alltaf.

Kosningaþynnkan: Hýenur og kærleiksbirnir
Kosningaþynnkan er smám saman að renna af manni og hlutirnir smám saman að skýrast. Það er rétt að óska nýjum þingmönnum til hamingju með starfið og maður vonar að þeir standi undir þeirri ábyrgð sem þeim hefur verið falin.

Eftir stendur þetta.

Það þarf enginn að deila um að Framsókn er sigurvegari kosninganna. Þau ráku bestu kosningabaráttuna og boðuðu jákvæðustu framtíðarsýnina, hvað svo sem síðar verður. Það er sjálfgefið að mínu viti að Sigmundur Davíð fái umboð til að mynda nýja ríkisstjórn.

Það er sömuleiðis mikið ánægjuefni að Björt framtíð og Píratar náðu á þing. Það hefði verið grátlegt ef Píratar hefðu endað með 4,9 prósent. Guðmundur Steingrímsson gerði vel á lokadögum kosningabaráttunnar í að aðskilja sig frá Samfylkingunni. Það útspil tel ég að hafi skilað BF einu til tveimur prósentustigum. Það er sömuleiðis gríðarlegt ánægjuefni að fá Óttar Proppé á þing. Alþingi verður ekki leiðinlegt á meðan. Ég er hins vegar enn að leita að oddvita flokksins í mínu kjördæmi, sem hvarf sporlaust skömmu eftir að hún var kynnt til sögunnar.

Það kom í ljós að flest þeirra litlu framboða áttu ekkert erindi í þessa baráttu. Hégómagirni Dögunarliða og Lýðræðisvaktarinnar kom í veg fyrir það sem hefði getað orðið ásættanleg útkoma undir sameinuðum merkjum. Það er ekki nóg að telja sig vera eini handhafi rættlætis og sannleika á Íslandi til að fara í framboð. Niðurstaðan hlýtur að vera skilaboð til þessara einstaklinga um að svara þessari köllun sinni á öðrum vettvangi. Allur þessi fjöldi framboða hamlaði að einhverju leyti vitsmunalegri umræðu fyrir kosningarnar.

Sjálfstæðisflokkurinn átti undir öllum kringumstæðum að vinna stærri sigur og á þeim bænum hljóta menn að finna til vonbrigða. Kærleiksbjarnarviðtal Bjarna á lokaspretti kosningabaráttunnar bjargaði flokknum frá hamförum.

VG náði sömuleiðis að gera gott úr afleitri stöðu. Það má þakka formanninum Katrínu Jakobsdóttir og hennar persónutöfrum. Ég ætla að gerast svo djarfur að spá því að hún verði forsætisráðherra eftir 4 eða 8 ár.

Samfylkingin rak, eins og ég hef áður komið inn á, afleita kosningabaráttu. Viðbrögð flokksmanna hafa sömuleiðis verið sorgleg. Í huga margra þeirra var þjóðin heimsk fyrir að láta glepjast af loforðum Framsóknar og óskiljanlegt að þeir hafi ekki tekið mark á útlendingum sem sjá Ísland í hyllingum hagtalna. En málið er að þessir útlendingar búa ekki hérna og skynja ekki þá strauma sem renna í íslensku samfélagi.

En það sem verra er, hluti flokksmanna bíður ekki boðanna og tætir í sig formanninn. Samfylkingin logar í illdeilum. Svona hýenuháttur hefur lengi loðað við íslenska vinstri  menn.

Vissulega gerði Árni Páll og hans stuðningsfólk mistök í aðdraganda kosninga. Formaðurinn virtist fyrst og fremst tala til fjármálamanna og kerfiskalla í kappræðum, en gleymdi hinum venjulega Íslendingi. Það var ekki fyrr en afhroðið lá fyrir sem hann hélt sína mögnuðustu ræðu til þessa. Árna Páli fyrirfórst sömuleiðis að mynda þá breiðfylkingu í flokknum sem hann lofaði að gera. Ákveðnir áhrifamenn í flokknum voru skildir út undan og jafnvel rægðir á opinberum vettvangi.

Það eru ekki nema þrír mánuðir síðan Árni Páll var kjörinn formaður. Það sem flokkurinn þarf á að halda núna er að leita sátta í eigin röðum. Árni Páll þarf að taka tillit til fleiri sjónarmiða á meðan andstæðingar hans þurfa að hætta að mergsjúga sárin. Þegar því sáttaferli er lokið þarf Samfylkingin að móta nýja stefnu sem á erindi við þjóðina. Það er, held ég, ekki að fara að gerast miðað við heiftina sem ríkir þarna innandyra um þessar mundir.

Að öðru leyti vona ég að ný stjórn, hver sem það verður, beri gæfu til að sameina þjóðina og leiða hana á farsælan hátt til framtíðar. Síðustu fimm ár hafa verið afar dapurleg og þjóðin þolir varla meiri ömurlegheit. Að því leyti bind ég vonir við nýja kynslóð formanna.

Að lokum þetta. Síðastliðna viku heimsóttu tæplega 108 þúsund einstakir notendur Eyjuna, sem er það mesta í tæplega sex ára sögu þessa miðils. Heimsóknum hefur fjölgað jafnt og þétt í allan vetur og Eyjan verður sífellt mikilvægari vettvangur íslenskrar þjóðmálaumræðu. Þetta er virkilegt ánægjuefni og greinilegt að kröfuharðir lesendur kunna vel að meta þá vinnu sem við erum að leggja á okkur.

Þennan árangur má ekki síður rekja til öflugra einstaklinga sem skrifa reglulega greinar á síðuna. Eyjan hefur nú yfir að ráða öflugustu þjóðfélagsrýnum landsins. Egill Helgason hefur lengi verið í sérflokki og pennar eins og Illugi Jökulsson, Össur Skarphéðinsson, Eva Hauksdóttir, Stefán Ólafsson og Jón Steinsson (ég gæti talið endalaust áfram) skila ómetanlegu framlagi til þjóðfélagsumræðunnar. Fyrir það ber að þakka.

Fiðlan hans Ólafs Ragnars
Kosningarnar á morgun eru ekki sérlega spennandi. Þær  virðast fyrst og fremst snúast um það hvort Framsóknarflokkurinn eða Sjálfstæðisflokkurinn verði stærri og hvort Bjarni eða Davíð verði forsætisráðherra. Allt hræðslutal um að annað hvort verði mynduð ríkisstjórn um tillögur Framsóknar eða að atkvæði greidd Framsókn eru ávísun á vinstri stjórn eru þess vegna gimmikk.

Hvað sem því líður, þá verður niðurstaðan, verði hún í takt við skoðanakannanir, söguleg. Hinir hefðbundnu vinstri flokkar fá vonda útreið og endanlega verður staðfest að sögulegir yfirburðir Sjálfstæðisflokksins heyra sögunni til.

Veruleg fylgisaukning Framsóknar undanfarnar vikur vekur óneitanlega upp áleitnar spurningar. Hvers vegna er flokkur, sem mælst hefur með 10 til 14 prósenta fylgi allt kjörtímabilið, skyndilega kominn í þá stöðu að mælast með tæplega 30 prósenta fylgi? Flokkur sem fram að því fáir höfðu tekið alvarlega og var oftar en ekki efni í gott grín, þegar svo bar undir.

Það eru sterkir þjóðernis – og “anti-establishment” straumar í þjóðfélaginu um þessar mundir. Það skynjaði Ólafur Ragnar Grímsson þegar hann hóf sína kosningabaráttu í fyrra. Hann spilaði sig sem málsvara alþýðunnar gegn alþjóðafjármálakerfinu, reif kjaft við útlendinga og stillti sér upp gegn valdsmönnum og fjármálamönnum, þeim hinum sömu og hann mærði og skálaði með fyrir hrun. Ólafur Ragnar sagði það sem honum hentaði, þótt það stæðist enga skoðun. Og því oftar sem bent var á það, því meira jókst fylgið hans. Hann komst upp með það í krafti Icesave-sigranna. Þjóðin var ekki að kjósa stefnu hans, heldur “attitúdið”.

Sigmundur Davíð og hans flokkur spila nú á sömu fiðlu og forsetinn gerði í fyrra. Hann gerði þá stefnu, sem allir eru sammála um, að freista samninga við kröfuhafa að sinni og kalla hana “Framsóknarleiðin”. Framsókn gengur reyndar lengra og er þegar búinn að ráðstafa “ávinningnum”, jafnvel þótt allir vita að alls óvíst er hver hann verður eða hvenær hann skilar sér.

Það virðast heldur enginn geta útskýrt hugmyndir flokksins um skuldaleiðréttingar, ekki einu sinni Framsóknarmenn sjálfir. Það hefur heldur enginn mótmælt því að þessar óljósu hugmyndir komi best út fyrir þá tekjuhæstu og gangi ekki nógu langt fyrir þá sem verst standa. Enda hafa forsvarsmenn flokksins sagt að þetta sé fyrst og fremst efnahagsaðgerð til þess fallin að koma hjólum atvinnulífsins af stað. Loforð um afnám verðtryggingar er sömuleiðis loðið, enda ljóst að það hjálpar engum sem nú þegar eru með verðtryggð lán.

Við þetta bætist að Framsókn hefur verið undir stöðugum skeytasendingum. Menntun formannsins virðist á reiki, gjöreyðandi loforð frá fyrri tímum hafa verið rifjuð upp, Gunnlaugur í Kögun hefur gert allt annað en að hjálpa til svo ekki sé minnst á síendurteknar fullyrðingar um að Finnur Ingólfsson, Ólafur Ólafsson og Þórólfur Gíslason stjórni enn flokknum á bak við tjöldin. Því meira sem Framsókn er tætt í sundur á opinberum vettvangi, því meira verður fylgið.

Þarna hefur fiðlan hans Ólafs Ragnars komið að góðum notum. Framsóknarmenn tala um að skjóta útlenska hrægamma eða berja þá með kylfum, þeir tortryggja allt útlenskt, gera út á sérstöðu Íslands og hampa séríslenskum lausnum. Og ef einhver bendir á hið augljósa og segir að stefna þeirra gangi tæplega upp, þá segja þeir bara “víst”. Og í krafti Icesave sigra komast þeir upp með það.

Þess vegna held ég að kjósendur hafi almennt litla trú að Framsókn standi við stóru orðin, og ég er ekki einu sinni viss um að frambjóðendur flokksins gera það sjálfir. Þeir kjósa hins vegar flokkinn út á “attitúdið”.

Það er heldur engin tilviljun að Framsókn sækir fylgi sitt á sömu slóðir og Ólafur Ragnar gerði í fyrra. Rétt eins og forsetinn nýtur Framsókn yfirburða fylgis á landsbyggðinni og hjá þeim sem hafa lokið grunnskóla- eða framhaldsskólaprófi.

Fiðla forsetans er rándýr.

Hörmung vinstri flokkanna
Miðað við nýjustu skoðanakannanir þurfa vinstri flokkarnir, og nú ætla ég að leyfa mér að gerast orðljótur, að taka hausinn úr afturendanum á sér.

Ég held að afhroð lýsi ekki nógu sterklega þeirri hörmung sem við flokkunum blasir. Samkvæmt nýjustu könnun MMR mælast stjórnarflokkarnir samtals með 17,1 prósents fylgi. Það stefnir, með öðrum orðum,  í verstu niðurstöðu vinstri flokka frá upphafi lýðveldisins. Kosningaúrslitin 1995 þóttu nógu slæm fyrir vinstri flokkana þegar samanlagt fylgi Alþýðuflokks og Alþýðubandalags var 25,7 prósent. Í dag myndu þessir flokkar taka slíku fylgi fagnandi.

Og það sést langar leiðir að uppgjöfin er algjör hjá þessum flokkum. Þeir hafa enga trú á verkefninu.

Metnaður Vinstri grænna er enginn. Það sýna miskunnarlausar árásir flokksmanna á Pírata undanfarna daga. Ef Píratar, með fullri virðingu fyrir þeim, eru orðnir höfuðandstæðingar stjórnarflokks, þá er staðan orðin vonlaus. Svo vægt sé til orða tekið. Skítt með frjálshyggjuna, velferðarkerfið, náttúruvernd og heimskapítalismann. Látum Píratana hafa það, þeir eru ekki nægilega miklir femínistar.

Að sama skapi er Samfylkingin úti á túni. Kosningabarátta flokksins virðist illa skipulögð, ómarkviss og skilaboð flokksins eru engan veginn að skila sér til fólksins. Stefán Ólafsson benti á hið augljósa í morgun, að það vita allir að Samfylkingin vill ganga í ESB. En það sem fólk veit ekki er hvort flokkurinn hafi Plan B.

Árni Páll má þakka fyrir örvæntinguna sem gripið hefur um sig í röðum Sjálfstæðisflokksins, því það hefur beint athyglinni frá því að hann er í enn verri stöðu en Bjarni Benediktsson, sem í það minnsta er á svipuðu róli og í síðustu kosningum. Samfylkingin er búin að missa tvo þriðju sinna kjósenda og meira að segja varaformaðurinn nær ekki á þing. Og þegar formaður þess flokks sem kennir sig við tvo turna er farinn að hlaupa á eftir formanni Framsóknarflokksins út um allt land, þá skynjar maður örvæntingu.

Það er Samfylkingunni lífsnauðsynlegt að komast í ríkisstjórn. Fáir þingmenn í stjórnarandstöðu gegn ofurmeirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknar, ofan á gríðarlegt tekjutap vegna minni ríkisstyrkja,  er áskrift á langa eyðimerkurgöngu. En til þess verður flokkurinn að bæta við sig fimm prósentustigum, hið minnsta.

Vinstri grænir ættu ekki undir nokkrum kringumstæðum að hugsa um stjórnarsetu, því þeirra markmið í dag er að halda sér á lífi.

Dulið Framsóknarblæti?
Ég hef verið kallaður ýmsum nöfnum í gegnum tíðina, misverðskuldað. En eitt hefur mér aldrei verið legið á hálsi, það er að vera “blindaður af aðdáun á Framsóknarflokknum”. Fyrr en nú.

Ég var nokkuð lengi að melta þessa ásökun. Hvað hafði ég eiginlega gert til að verðskulda þetta? Og ég fór í rækilega naflaskoðun og renndi í gegnum fréttaefni Eyjunnar undanfarna mánuði, til að ganga úr skugga hvort ég væri með dulið Framsóknarblæti, um leið ég velti því fyrir mér hvort að sé til lækning eða raflostmeðferð við einhverju slíku.

En svo reyndist ekki vera. Ef eitthvað er virðist Framsókn hafa farið í taugarnar á mér á undanförnum árum. Verðskuldað eða óverðskuldað. En glæpur minn virðist vera sá að hafa látið hjá líða að teikna horn og hala á fréttamyndir af Sigmundi Davíð, eins og sumum virðist þykja æskilegt.

En verst þykir mér að faðir minn þurfi að lesa svona ávirðingar í minn garð, því í hans húsum er ekki minnst á Framsókn án þess að hrækja yfir hægri öxl. Það þarf nefnilega að hafa í huga á bak við okkur fjölmiðlamenn er fólk af holdi og blóði. Og það getur verið viðkvæmt fyrir svona ásökunum.

Ég ætla að opinbera það hér að ég er afar ólíklegur til að kjósa Framsókn þetta árið, líkt og fyrri ár. Ég hef ekki trú á stefnu flokksins. Ég hef til dæmis miklar efasemdir að við eigum að lækka lán allra landsmanna ef svo merkilega vill til að við finnum 300 milljarða á stangli. Bæði held ég að það þjóni ekki tilgangi sínum auk þess sem ég teldi peningunum betur varið í að greiða niður ósjálfbærar skuldir ríkissjóðs.

Þjóðernisrómantík flokksins þykir mér oft ganga út í öfgar og skammir út í þróunaraðstoð Íslendinga, sem hefur breytt lífi fjölmargra til hins betra, gera mig órólegan. Svo ekki sé nú minnst á blinda aðdáun á krónunni. Ég hef nefnilega aðrar skoðanir á orsökum og afleiðingu á vandræðum heimilanna en Framsóknarmenn.

En eitt geri ég ekki, þrátt fyrir þennan ágreining minn við Framsóknarflokkinn. Það er að fordæma þau 40 prósent þjóðarinnar sem ætla, einhverra hluta vegna, að kjósa Framsókn, eða gera þeim upp fávisku eins og mörgum er tamt. Og ég mun heldur ekki misnota aðstöðu mína sem ritstjóri Eyjunnar af ótta við að Sigmundur Davíð verði forsætisráðherra.

Það er nefnilega rétt sem Guðmundur Andri Thorsson sagði í gær. Vinstri mönnum, og Sjálfstæðismönnum ef út í það er farið, væri nær að spyrja hvað sé að í þeirra herbúðum, í stað þess að láta eins og þjóðin sé gengin af göflunum. Einhverra hluta vegna eru þessir flokkar búnir að missa tengingu við þjóðina.

Og þeirri tengingu verður ekki náð með vænissýkiröfli út í fjölmiðla og aðra nafntogaða einstaklinga. Heldur með því að hlusta á þjóðina og tala við hana.

Alþingi og stóri sandkassinn
Í leiðara Morgunblaðsins í gær er að finna áhugaverðar pælingar um lítinn áhuga á prófkjörum sem nú standa yfir. Ekki bara er kosningaþátttakan lítil, heldur virðist vera afskaplega lítill áhugi á því að sækjast eftir sæti á Alþingi, ef atvinnustjórnmálamenn til margra ára eru frátaldir.

Lítil sem engin endurnýjun virðist ætla að eiga sér stað innan stjórnarflokkanna og innan raða Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins virðist sem endurnýjunin verði einungis bundin við nokkur kjördæmi. Í tilfelli þess síðarnefnda er skýringin fyrst og fremst sú að það verða fleiri þingsæti í boði en áður. Hjá Framsókn hafa sitjandi þingmenn fært sig á milli kjördæma til að komast í örugg sæti á meðan nýliðarnir eru látnir berjast fyrir sínum.

Það er eflaust rétt hjá leiðarahöfundi að það eru ekki launin sem heilla. Enn fremur kann að vera eitthvað til í því að  “hluti núverandi þinghóps er þeirrar gerðar að flestir myndu kjósa sér annað kompaní dagpart sem þeir mættu missa og fengju gæsahúð ef þyrftu að umgangast hann drjúgan hluta vinnuvikunnar, hvað þá næstu 200 vikurnar tæpar.” Þó ekki að öllu leyti, eins og ég kem að neðar.

En það kemur fleira til.  Hvað blasir til dæmis við venjulegum manni sem vill komast á þing? Í fyrsta lagi þarf hann að komast í gegnum prófkjör flokkanna sem er líklega erfiðasti hjallinn. Ef hann er óþekkt stærð, þ.e. hann er ekki fjölmiðlamaður, fræðimaður, álitsgjafi o.s.frv., þarf viðkomandi að koma sér upp kosningamaskínu. Fyrir þann sem er ekki með íþróttafélög, björgunarsveitir, ungliðahreyfingar eða aðrar fjöldahreyfingar á bak við sig, þá er það hægara sagt en gert. Svo þarf að sigra atvinnustjórnmálamennina og flokkshundana sem víla ekki fyrir sér að beita samherja sína bolabrögðum, sér til framdráttar. Og svo þarf náttúrulega að opna kosningaskrifstofu, auglýsa sig og fleira, sem kostar heilmikinn pening, eitthvað sem óþekktur kandídat hefur alla jafna ekki aðgang að.

Ef svo ólíklega vill til að þessi óreyndi en frambærilegi maður nær góðu sæti á lista, þá tekur við löng og ströng kosningabarátta með öllu sem því fylgir – frí úr vinnu, ferðalög um kjördæmi,  bolabrögð andstæðinga, loforð sem ekki er hægt að standa við (t.a.m. landsbyggðarþingmenn sem lofa göngum. Þetta á ekki við um Kristján Möller því hann fær sín göng) o.s.frv.

Gefum okkur svo að kandídatinn okkar nái þingsæti. Líklega jöfnunarþingsæti á síðustu metrunum því ekki fer hann ofarlega á lista (nema hann sé í Framsókn). Hvað tekur þá við?

Utanfrá séð, þá er staðan sem við honum blasir ekki beint aðlaðandi: Vinnustaður sem nýtur trausts aðeins 10 prósent þjóðarinnar, stöðugar árásir andstæðinga, gegndarlaus fordæming almennings (mín þar með talin), oft á tíðum óvægin fjölmiðlagagnrýni (ég aftur), pólitísk leikrit, málþóf með tilheyrandi næturfundum, lítið sem ekkert þakklæti og lág laun miðað við vinnuframlag. Og mjög líklega er viðkomandi dottinn út af þingi eftir fjögur ár og fær hvergi vinnu. Sem sagt, pólitík.

Þeir sem eru klókir gerast ómerkilegir popúlistar og nota hvert tækifæri til að hrópa innihaldslausa frasa og gífuryrði til að koma smettinu á sér í fjölmiðlana. Það vill jú enginn lenda í því að vera algjörlega óþekkt andlit eftir að hafa setið fjögur ár á þingi.

Ef þetta er ásýndin, þá er ekki að undra að eftirspurnin eftir þingsætum skuli ekki vera meiri en raun ber vitni.

En þetta var eiginlega inngangurinn af því sem ég ætlaði mér að ræða, þótt þetta að ofan sé klárlega eitthvað sem þarf að hafa í huga og ráða bót á.

Það sem ég upphaflega vildi gera að umræðuefni er hvernig auka má traustið á Alþingi. Staðan eins og hún er í dag er einfaldlega óásættanleg. Löggjafarvald sem nýtur nær einskis trausts til lengri tíma hlýtur að leiða til niðurbrots á öðrum sviðum samfélagsins.

Það er auðvelt að benda á þingmennina, enda eru þeir jú gluggi stofnunarinnar út í samfélagið. Þeir hafa að mörgu leyti brugðist. En það vill hins vegar gleymast, merkilega oft reyndar, að utan þingfunda fer fram mikil vinna og þar starfa margir þingmenn á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Þótt þeir mættu eflaust vera fleiri.

Vandamálið er því að hluta til ímyndarvandamál, sem stafar af því að hópur þingmanna skemmir það góða starf sem er þó unnið. Ástandið hefur reyndar batnað til muna eftir því sem liðið hefur á kjörtímabilið, en það fyrirfinnst engu að síður fólk á þingi sem er fyrirmunað að starfa í þágu almennings. Slíkt verður alltaf til staðar, enda ekki vandamál sem er bundið við Ísland.

Alþingi, sem stofnun, þarf því að finna nýstarlegri leiðir til að ná til almennings.

Að mínu viti er Alþingi úreld og lokuð stofnun. Allt að því geld. Starfshættir þingsins eru að mörgu leyti gamaldags og almenningur á erfitt með að átta sig á raunverulegu starfi þess.

Nefndarfundir, þar sem mesta og árangursríkasta vinnan fer fram, eru til að mynda lokaðir fjölmiðlum og almenningi, nema í undantekningartilvikum.  Af hverju ekki að opna þá og vera með vefútsendingar? Þá fengi fólk alla vega að sjá meira en “hálftíma hálfvitanna”, þótt sú hætta sé vissulega fyrir hendi að nefndarfundirnir fari í sama farið. En mér sýnist þeir fundir sem hafa verið opnir hingað til ekki gefa tilefni til þess.

Önnur hugmynd af sama meiði eru rannsóknarnefndir á vegum þingsins, líkt og tíðkast í Bretlandi, Bandaríkjunum og víðar. Þá er ég að tala um þingmannanefndir sem starfa fyrir opnum tjöldum og kalla menn til skýrslutöku í beinni útsendingu, en ekki lokaðar nefndir skipaðar lögfræðingum sem skila svo af sér einni skýrslu og búið.

Það sem meira er, hvar er Alþingi í samfélaginu? Fyrir utan einstaka grunnskólaheimsóknir fæ ég ekki séð að almenningur komist í nokkra snertingu við þessa ágætu stofnun. Almannatengslin virðast vera í algjöru lamasessi.

Vefsíða Alþingis er bæði gamaldags og óaðgengileg. Fyrir óvana getur reynst nær ógjörningur að nálgast grundvallar uppýsingar um störf þingsins. “Margmiðlunarefnið” (ef þú finnur það) er ævintýralega slakt. Og af hverju er Alþingi ekki á Facebook, Twitter (sem er b.t.w. miklu skemmtilegra en Facebook), Youtube og Flickr eins og flest öll önnur þjóðþing í nágrannalöndum okkar? Heimasíða breska þingsins er til fyrirmyndar hvað þetta varðar.

Það er bókstaflega ekkert á forsíðu Alþingisvefsins sem vekur áhuga hins óbreytta borgara. Gagnvirknin er engin, heldur er fólki bent á að skrá sig í stjórnmálaflokk eða stéttarfélag til að hafa áhrif á störf þingsins. Eða hringja í þingmann sem er alveg örugglega að fara að svara þér.

Ég efast um að það skorti viljann meðal starfsmanna Alþingis til að gera betur, heldur er það skortur á fjármagni sem ræður för. Það er gott efni þarna, það bara sér það enginn.

Þetta er eflaust smáatriði í stóra samhenginu. En Alþingi á að mínu viti að vera stofnun sem almenningur á að geta tengt við, jafnvel þótt pínu vænt um. Og umfram allt, þá á Alþingi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem laðar að sér fleiri en bara atvinnupólitíkusa. En á meðan stofnunin er jafn lokuð og úr sér gengin og hún er í dag, þá sér fólk aðeins eitt: Stóran sandkassa.

Tilraunarinnar virði
Kosningarnar á morgun eru merkileg tilraun sem ég mun að sjálfsögðu taka þátt í. Það er í sjálfu sér ekkert flókið við þessar kosningar. Maður les drögin, sem er ekkert tiltökumál fyrir hvern meðalgreindan einstakling, myndar sér skoðun út frá því og lætur hana í ljós á kjörseðlinum.

Það hefur verið merkilegt að fylgjast með tilburðum stjórnmálamanna og fylgihnatta þeirra í aðdraganda kosninganna. Sumt sem látið hefur verið falla er hreinlega galið.

Einhverjir tala um þetta sem dulbúna leið til að koma Íslandi í ESB, aðrir setja sig í hlutverk spámanns og boða upplausn í samfélaginu. Svo eru enn aðrir sem segja kosningarnar of flóknar. Þetta er nota bene sama fólk og hélt því fram að það væri ekkert tiltökumál að kjósa um Icesave, þótt þar að baki hafi legið þúsundir blaðsíðna af gögnum og algjör óvissa um útkomuna.

Ég lít svo á að stjórnarskránni sé ætlað að verja almenning gegn tilburðum misgáfaðra stjórnmála- og embættismanna. Og þar höfum við Íslendingar mörg vítin til að varast. Þessi stjórnarskrá er merkileg fyrir þær sakir að hvergi annars staðar í heiminum hefur aðkoma almennings verið jafnmikil. Allir höfðu tækifæri til að koma sínum athugasemdum á framfæri.

Ákveðin öfl í þjóðfélaginu hafa hins vegar ákveðið að það sé þeirra að ákveða hvernig stjórnskipan í landinu er háttað.

Það má líka benda á að ákveðnir þingmenn Sjálfstæðisflokksins tóku fullan þátt í þjóðfundinum, sem var undanfari stjórnlagaþingsins. En eftir að flokksmönnum varð ljóst að þeirra menn hlutu ekki brautargengi í kosningunum hófst niðurrifsstarfsemin. Enda myndu margir Sjálfstæðismenn fyrr dauðir liggja en að sætta sig við stjórnarskrá sem samin er af einstaklingum sem þeir leggja beinlínis hatur á.

Stjórnarskrárdrögin eru ekki fullkomin. Flestir gera sér grein fyrir því og stjórnmálamönnum hefur þegar verið úthlutað það verkefni að sníða af vankanta hennar. Þess vegna eru öll þessi læti í kringum þessa þjóðaratkvæðagreiðslu illskiljanleg.

En það er samt óþægileg tilhugsun að vita til þess að allt þetta hafarí er líklega til einskis, af tveimur ástæðum. Þetta þing er stutt og miðað við hversu erfitt það var fyrir meirihlutann að ná þessari þjóðaratkvæðagreiðslu í gegn, þá er nánast útilokað að það náist sátt um endanlega stjórnarskrá. Þá eru allar líkur til þess að Sjálfstæðisflokkurinn verði í næstu ríkisstjórn og þá er málið einfaldlega dautt.

Nema að til komi mikil þátttaka og afgerandi niðurstöður. Sem er ólíklegt að verði. En tilraunin er alveg þess virði.

Aðdáunarverð vanhæfni
Yfirlýsing Ríkisendurskoðunar um umfjöllun Kastljóss er einhver sú geggjaðasta lesning sem ég hef lesið lengi.

Horfum framhjá því að það var augljóslega svindlað á Nýherja í útboðinu og einhverjir aðrir hagsmunir en hagsmunir ríkisins réðu þeirri ákvörðun að Skýrr fékk verkefnið. Horfum líka framhjá því að innleiðing verkefnisins hefur, af umfjöllun Kastljóss að dæma, verið hörmungarsaga frá upphafi til enda.

Glæpur Kastljóss, að mati Ríkisendurskoðunar, felst í því að greina frá því hvernig skattpeningum almennings hefur verið sólundað á óábyrgan hátt. Þessi gagnrýni skýtur afar skökku við í ljósi þess hlutverks sem Ríkisendurskoðun hefur sem er að “hafa eftirlit með og stuðla að umbótum á fjármálastjórn og árangri stofnana og fyrirtækja ríkisins” og að “stjórnvöld á hverjum tíma svari fyrir athafnir sínar, eða eftir atvikum athafnaleysi, gagnvart þinginu og almenningi.”

Það eru nokkur atriði í yfirlýsingu Ríkisendurskoðunar sem jaðra við veruleikafirringu. Það fyrsta, og augljósasta, er þessi lokasetning:

Þá getur boðuð umfjöllun Kastljóssins um öryggismál fjárhagsupplýsingakerfis ríkisins stefnt mikilvægum almannahagsmunum í voða og haft ófyrirséðar afleiðingar í för með sér.

Ég leyfi mér að spyrja sömu spurningar og einn góður maður gerði á Facebook: Sameinaði Jóhanna Ríkisendurskoðun og þjóðaröryggisráðið í eina stofnun? Enn fremur, ef fjölmiðlar hafa vitneskju um öryggisgalla “sem gætu haft alvarlegar afleiðingar fyrir ríkissjóð”, er það skylda þeirra að þegja yfir því?

Það er beinlínis galið að halda því fram að Kastljós hafi með umfjöllun sinni “svipt hlutaðeigandi aðila” andmælarétti sínum. Þessi fullyrðing felur í sér að ef fjölmiðlar komast á snoðir um óráðsíu eða spillingu, þá verði þeir að bíða skýrslu opinberra aðila (þótt það taki 8 ár að vinna hana) til að upplýsa um málið.

Mér sýnist fremur að umræddir almannahagsmunir hafi falist í því að Kastljós hafi opinberað stórkostlega vanhæfni mikilvægs eftirlitsaðila, það er Ríkisendurskoðunar sjálfrar. Hvernig í ósköpunum er hægt að verja 8 árum í að gera skýrslu um jafneinfalt atriði á borð við framúrkeyrslu hins opinbera? Ekki bara virðist fullklárað vinnuplagg hafa verið tilbúið í nóvember 2009, þá hefur það tekið þrjú ár að leita andmæla. Það tók rannsóknarnefnd Alþingis um tvö ár að rannsaka bankahrunið og gefa út skýrslu í 9 bindum. Í þessu samhengi er vanhæfni Ríkisendurskoðunar allt að því aðdáunarverð.

Þarna er vanhæfni íslenskrar stjórnsýslu í sinni tærustu mynd. Stjórnmálamenn úthluta ákveðnum aðilum gæðum hins opinbera þar sem annarlegir hagsmunir ráða för. Úr verður allsherjar stjórnsýsluklúður og kappkostað er að þagga málið niður. Og sá sem á að hafa eftirlit með öllu saman er einhverra hluta vegna, líklega vegna kunningsskapar, beinna tengsla eða óhæfni, vanhæfur til að fylgja málinu eftir.

Sem betur fer ofbauð einhverjum þessi subbuskapur og lak málinu í fjölmiðla. Viðbrögð Ríkisendurskoðunar eru svo dæmigerð fyrir íslenska stjórnsýslu.  Að harma að subbuskapurinn var upplýstur.

Sko, þarna!
Í gær fjallaði ég um skýrslu seðlabankans um gjaldeyrismál og spáði fyrir um viðbrögð við útgáfu hennar. Orðrétt sagði ég:

Það verður rifist um skýrsluna í nokkra daga, Seðlabankanum og starfsmönnum hans gerð upp annarleg sjónarmið…og sjónhverfingarnar færðar í nýjan búning. Síðan verður þetta bara enn ein skýrslan.

Sólarhring síðar birtist þetta í leiðara Morgunblaðsins:

En í Seðlabanka Íslands sátu sérvaldir trúnaðarmenn Jóhönnu og Steingríms og skrifuðu. Og smám saman varð strokleðrið það tæki úr pennastokknum sem þeir notuðu mest. Þess vegna dúkkaði skýrslan ekki upp á þeim tíma sem Jóhanna hafði boðað. Hún dúkkaði upp eftir dúk og disk og húsbændur skrifaranna munu á endanum hafa af henni minna en ekkert gagn. Til þess voru refirnir ekki skornir.

Þarna er gengið hreint til verks og rétt eins og ég spáði er spjótunum beint að starfsmönnum Seðlabankans í stað verka þeirra. Niðurlag leiðarans er líka kunnulegt.

Rétt er að vona að skýrsla þessi hafi ekki verið prentuð í alltof mörgum eintökum.

Þetta rímar óneitanlega við ræðu núverandi ritstjóra Morgunblaðsins á landsfundi Sjálfstæðisflokksins 2009, þar sem hann sagði endurreisnarskýrslu flokksins “mikla hrákasmíð, illa samda og fulla af rangfærslum.”

Ég sé mikið eftir þeim fallega trjágróðri sem felldur hefur verið til að prenta þetta plagg í stóru upplagi.

Þessar tvær skýrslur eiga það sameiginlegt, líkt og allar aðrar skýrslur sem gerðar hafa verið um hrun íslensku bankanna, að hraunað er yfir stjórn efnahagsmála og viðbrögð Seðlabankans. Svo vill til að núverandi ritstjóri Morgunblaðsins var á báðum stöðum.

Það hlýtur að vera afskaplega sárt að hafa eytt síðustu þremur árum í að rembast við að endurskrifa söguna sér til hagsbóta, en alltaf skuli einhverjir sérfræðingar dúkka upp og reka það ofan í mann, með rökum. Ég geri ekki lítið úr þeirri þjáningu.

En línurnar hafa nú verið lagðar. Það er byrjað að gera lítið úr Seðlabankanum og gamlar sjónhverfingar hafa verið færðar í nýjan búning. Nú bíður maður bara eftir að limirnir fari að dansa eftir höfðinu.

Það sem við eigum að gera, en gerum ekki
Það var merkilegt að fylgjast með íhaldsmönnum búa sig undir útgáfu gjaldmiðlaskýrslu Seðlabankans. Um leið og búið var að ákveða útgáfudag var farið að sá tortryggnifræjum sem seðlabankastjóri sá sig nauðbeygðan til að svara.

Í fljótu bragði sýnist mér að um afar vandað plagg sé að ræða og ætti, í eðlilegu stjórnálaumhverfi, að vera mikilvægt innlegg í eitt brýnasta mál samtímans.

Í framhaldi af þessu ættum við með réttu að leggja á borðið þá tvo kosti sem raunverulega eru í boði – krónu með öllu því sem henni fylgir eða evru með ESB aðild – og ræða þá í þaula. Og sópa um leið öðrum sjónhverfingum út af borðinu.

Tímasetningin er líka heppileg, því nú ættu flokkarnir að geta boðið þjóðinni upp á tvo skýra kosti fyrir kosningarnar. Eitthvað sem þeir flestir hafa forðast eins og heitan eldinn. Annað hvort vilja þeir halda krónunni og þar með sætta sig við viðvarandi verðbólgu, verðrýrnun, ýktar sveiflur, verðtryggingu, háa vexti og mögulega einhvers konar höft um ókomin ár. Það hljómar kannski ískyggilega, en það má þó benda á að þetta er það kerfi sem við höfum búið við lengst af síðustu áratugi.

Eða vilja þeir frekar taka upp evru með tilheyrandi kostum og göllum ESB aðildar, í von um að ástandið á evrusvæðinu batni og hafandi í huga að það eru í “besta falli mörg ár” þangað til aðild að evrusvæðinu getur orðið að veruleika.

Hvorugur kosturinn er aðlaðandi. Hagstjórn á Íslandi hefur alltaf verið meira og minna galin og sama hvað hörðustu Evrópusinnar segja, þá er evran óaðlaðandi kostur, í það minnsta á meðan Ísland er í skjóli hafta sem veita falskt öryggi. Samt sem áður eru þetta kostir sem flokkarnir verða að bjóða kjósendum upp á.

En við búum ekki í eðlilegu stjórnmálaumhverfi. Það verður rifist um skýrsluna í nokkra daga, Seðlabankanum og starfsmönnum hans gerð upp annarleg sjónarmið, fjölmiðlar vitna í hana með reglulegu millibili og sjónhverfingarnar færðar í nýjan búning. Síðan verður þetta bara enn ein skýrslan.

Alveg eins og skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis. Svo verður þetta bara business as usual: Baldur kominn í fúllsvíng á Lex, Jói opnar Iceland, Karl Werners fær krónur á afslætti, flokksgæðingar ganga enn að störfum sínum vísum og stjórnmálamenn lofa framkvæmdum og aðgerðum sem engin glóra er í.