Færslur fyrir nóvember, 2011

Mánudagur 21.11 2011 - 11:56

Vantraust og hungur í nýtt afl

Staðan í könnunum um fylgi flokka er nokkuð ljós; hún getur varla verið ómarktækari – nema um mikla óánægju með valkostina sem í boði eru að óbreyttu og löngun í nýjan sterkan valkost! Í nýlegri könnun Capacent kváðust samtals 29% svarenda vera óákveðnir eða ætla ekki að kjósa/skila auðu og 13% til viðbótar völdu ekki [...]

Fimmtudagur 17.11 2011 - 14:55

Erlings-málið: Níðingar sem ekkert hafa lært

Ljóst er að (nú brottreknir) skipverjarnir á Erlingi, sem dæmdir hafa verið í undirrétti fyrir níðingsskap gagnvart 13 ára drengi, hafi aldrei gert sér far um að læra þá dýrmætu lexíu sem vistheimilamálin svokölluðu hafa fært landsmönnum. Þótt öllum megi ljóst vera hversu ólöglegt og ósiðlegt það er að beita börn líkamlegu ofbeldi og kynferðislegum [...]

Fimmtudagur 10.11 2011 - 12:26

Ef þetta er ekki Grasrótin…

Margir “litlir” hópar, hver í sínu horni að brölta, með fátt eitt sameiginlegt? Áherslurnar eru vissulega ekki hinar sömu, en miða þó allar að bættu samfélagi aukins lýðræðis og betra samfélags almennt og yfirleitt. Á kynningarfundi Grasrótarmiðstöðvarinnar í gærkvöldi kynntu sig þau grasrótaröfl sem þar hafa þegar bókað sig til þátttöku eða eru á leiðinni [...]

Laugardagur 05.11 2011 - 11:41

Sköpum nýjan samfélagssáttmála

Ég hef sagt þetta áður, svosem: Réttur mælikvarði á gengi endurreisnar þjóðarinnar, eftir hið mikla efnahagslega Hrun, er hvort alþýða þessa lands nýtur forgangs og fær vernd gegn afleiðingunum, en ekki sægreifar í auðlindastuldi eða forstjórar í sjóða- og hvatakerfa-sukki. Almenningur (99 prósentin) spyr sig: Er verið að tryggja að við getum brauðfætt fjölskylduna, að [...]