Færslur fyrir apríl, 2011

Mánudagur 18.04 2011 - 12:32

Skopmyndarmálið og staða Moggans

Ég ætla ekkert að segja að það hafi verið rétt af Helga Sigurðssyni skopmyndateiknara Morgunblaðsins að biðja Siv Friðleifsdóttur afsökunar á heldur smekklausri skopmynd af Siv í gervi vændiskonu. Strangt tiltekið hefði hann ekki þurft að gera það; það er tjáningarfrelsi í landinu, upp að því marki sem lög setja, og Helga að bera ábyrgð [...]

Laugardagur 16.04 2011 - 11:04

Hvað er ég að gera hér?

Ýmsir bloggarar hafa skilst mér flúið vettvang Eyjunnar vegna nærveru Björns Inga Hrafnssonar í eigendahóp miðilsins. Ég get út af fyrir sig skilið slíkar tilhneigingar almennt, enda hætti ég að blogga á Moggablogginu þegar sú ósvinna gerðist að Hrunverji númer eitt var gerður að ritstjóra Morgunblaðsins, þvert á öll fagleg viðmið. Ætti ég þá að [...]

Miðvikudagur 13.04 2011 - 13:19

Vantraust veltur á varamönnum

Afgreiðsla vantrausts-tillögunnar í kvöld er ekki spurning um hver sé vilji þingmanna Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Hreyfingarinnar. Þingmenn þessara þingflokka eru í rauninni aukaatriði og einkum og sér í lagi er varla mark takandi á því hvernig 11 þingmenn Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði ef Icesave III er tilefni tillögunnar (um það er vont að segja; tillögunni fylgir [...]

Þriðjudagur 12.04 2011 - 11:32

Kosið með fótunum

Eitt allra stærsta “trúfélag” landsins er trúfélagið “utan trúfélaga”. 11.868 fullorðnir einstaklingar eða 5% mannfjöldans voru skráðir utan trúfélaga um síðustu áramót (3,6% árið áður). Úr ríkistrúfélaginu Þjóðkirkjunni skráðu sig 5.092 manns á síðasta ári, meira en helmingi fleiri en árið áður. Flestir þeirra létu skrá sig utan trúfélaga eða 3.619. Ríkistrúfélagið Þjóðkirkjan er komin [...]

Mánudagur 11.04 2011 - 12:01

Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur að flýta landsfundi

Um ríkisstjórnina vísa ég til fyrri skrifa minna, en af öllum stjórnmálaflokkum, sem fulltrúa eiga á þingi, er staða Sjálfstæðisflokksins sérkennilegust. Það voru 11 þingmenn Sjálfstæðisflokksins, með formanninn og varaformanninn í fararbroddi, sem tryggðu þá niðurstöðu að 70% þingheims sagði Já við Icesave III samningnum. Kannanir benda ótvírætt til þess að í öllum tilfellum nema [...]

Sunnudagur 10.04 2011 - 11:57

Starfsstjórn – ný stjórnarskrá – þingkosningar

Ég óska Nei-urum til hamingju með fall Icesave III samningsins. Ólíkt öðrum kosningaúrslitum er gagnvart þessum algerlega á huldu hvort einhver hafi unnið eða tapað í raun, hvort einhver hafi haft rétt fyrir sér eða rangt. Það kemur í ljós. Og það sýnir sérstöðu þessara kosninga að ég sem Já-maður vona innilega að Nei-menn hafi [...]

Laugardagur 09.04 2011 - 13:16

Nú rukkum við þau sem við redduðum

Gleðilegan kjördag góðir hálsar. Í dag eru Já og Nei orð dagsins. Ert þú kjósandi góður eða einhver nákominn þér einn þeirra fjölmörgu sem var reddað frá stórfelldu tapi á innistæðum með neyðarlögunum, þannig að við Hrunið hafi innistæður þínar á áhættusömum reikningum ekki tapast heldur bjargast? Ekki ég. En bróðir minn sá fram á [...]

Föstudagur 08.04 2011 - 12:28

Lykilspurning Já eða Nei?

Hér er ein prinsip spurning, sem ég fæ ekki séð að nokkur hafi svarað. Ef niðurstaðan verður Nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave III og dómstólaleiðin verður farin og niðurstaðan þá, eftir nokkur ár, að Ísland tapar; eigum við þá að endurkrefja innlenda innistæðueigendur um peninginn sem við afhentum þeim með neyðarlögunum svo þeir töpuðu ekki [...]

Fimmtudagur 07.04 2011 - 13:41

Væntanlegt vantraust á 70% þingheims – þingkosningar í sumar

Að óbreyttu stefnir í að meirihluti kjósenda lýsi yfir vantrausti á 70% þingheims; á 20 þingmenn Samfylkingarinnar, 13 þingmenn Vinstri grænna og 11 þingmenn Sjálfstæðisflokksins, samtals 44 af 63. Trausti verður lýst yfir 16 þingmönnum, sem eru Ásmundur Einar Daðason (VG), Birgir Ármannsson (D), Birgitta Jónsdóttir (Hr.), Birkir Jón Jónsson (B), Eygló Harðardóttir (B), Gunnar [...]

Miðvikudagur 06.04 2011 - 16:54

Ég er ekki landráðamaður

Í allri umræðu um Já eða Nei við Icesave III er annar baráttuhópurinn óneitanlega í miklu betri aðstöðu en hinn hópurinn. Hjá Nei-hópnum er lífið einfalt; Við eigum ekki að borga erlendar skuldir óreiðumanna, við eigum ekki að gefast upp og eigum að fara dómstólaleiðina. Þetta er einfalda prinsipp-leiðin og í rauninni lang auðveldast og [...]