Færslur fyrir júní, 2010

Laugardagur 26.06 2010 - 11:09

Ég skal ekki segja…

Landsfundur kallaður djók, menn reknir úr FLokknum, formanns-slagur milli Blöndals-ættar og Engeyjar-ættar, FLokkurinn utan stjórnar í landsstjórn, utan stjórnar í Reykjavík, þingflokkurinn sögulega fámennur, FLokkurinn réttilega stimplaður arkitekt Hrunsins, (ný)frjálshyggjan dauð, Hólmsteinn þagnar ekki og Davíð togar enn í spotta og ólmast á bak við tjöldin. Ég skal ekki segja. Eiga menn ekki undir svona [...]

Þriðjudagur 22.06 2010 - 21:31

Besta þingræðan…

Ég hef ákveðið að velja eftirfarandi ræðu sem bestu ræðu 138. löggjafarþingsins: “Virðulegi forseti. Fyrir 55 árum, þegar ég var tíu ára gamall, grét ég mig oft og iðulega í svefn þar sem ég var staddur á opinberri stofnun, yfir því órétti sem ég var beittur. Stundum var ég barinn, aldrei mikið þegar horft er [...]

Miðvikudagur 16.06 2010 - 16:36

Stórmerkileg ályktun þingsins

Alþingi hefur samþykkt gagnmerka þingsályktunartillögu, sem ættuð er frá Birgittu Jónsdóttur Hreyfingunni, en allsherjarnefnd þingsins tók upp á sína arma og breytti. Þetta er tillaga um “afgerandi lagaleg sérstöðu Íslands varðandi tjáningar- og upplýsingafrelsi”. Nefndin telur að þær tillögur sem eru nefndar í greinargerð með ályktuninni séu til þess fallnar að “skapa hér framsækið umhverfi [...]

Þriðjudagur 15.06 2010 - 12:19

Vatnið er allra – en ekki fáeinna féhirða…

Neðangreint er erindi um vatn sem vinur minn Páll Helgi Hannesson, þáverandi alþjóðafulltrúi BSRB, hélt á ráðstefnu árið 2005 og sem ég leyfi mér að gera að mínum í tilefni þess að Sjálfstæðisflokkurinn vill að einkavæðingarlög um vatn taki gildi, en afnemist ekki. “Skortur á hreinu vatni er eitt helsta vandamál mannskynsins í dag. Tölurnar [...]

Föstudagur 11.06 2010 - 22:17

Um vatn, orku, element og bílakaup

Fyrsta vers; Alþingi á ekki að fara í sumarhlé fyrr en það er búið að afnema en í versta falli fresta enn Vatnalögunum svokölluðu og hið sama gildir um lög um stjórnlagaþing (þótt útfærslan á seinna málinu gæti verið betri). Vatnalögin sem samþykkt voru 2006 en hafa aldrei tekið gildi (og eiga það á hættu [...]

Fimmtudagur 10.06 2010 - 21:13

Breiðvíkingur deyr

Látinn er Stefán Þorkell Karlsson, 56 ára, fyrrum vistbarn á Breiðavík. Hann dó 2. júní og er númer 33 í röðinni til að deyja af þeim 126 drengjum sem vistaðir voru vestra á tímabilinu 1953-1972. 26% eða rúmlega fjórðungur þessara Breiðvíkinga eru fallnir frá, en það er engan veginn eðlilegt hlutfall meðal fólks sem flest [...]

Miðvikudagur 09.06 2010 - 16:02

Málþóf og ekki málþóf

Sjálfstæðismönnum virðist meinilla við að hindrunaraðgerðir þeirra á Alþingi séu kallaðar málþóf. Finnst þeim það ekki skárra orð en hinn möguleikinn; skemmdarverk. Eða bara “hindrun á framgangi lýðræðisumbóta“? Fyrir þinginu liggur að afgreiða frumvarp um stjórnlagaþing. Sjálfstæðismenn vilja og ætla að tala það mál í hel, væntanlega vegna þess að þeir vilja ekki stjórnlagaþing, hvort [...]

Sunnudagur 06.06 2010 - 16:28

Alger aðskilnaður er víst til

“Það er ekkert til sem heitir algjör aðskilnaður ríkis og kirkju”, segir Karl Sigurbjörnsson, biskup Þjóðkirkjunnar, hins Evangelísk-lútherska trúfélags á Íslandi – og hefur rangt fyrir sér. Það er að vísu sitthvað til í því sem hann bætir við; að ríki og kirkja og trú og samfélag eru samofin og ótal mismunandi módel til af [...]

Þriðjudagur 01.06 2010 - 11:10

Næstu skref í Reykjavík

Um leið og Jóni Gnarr og öðrum í Besta flokknum er óskað til hamingju með árangurinn í nýafstöðnum kosningum hlýtur maður að velta fyrir sér hvað verði næst upp á teningnum, þegar stefnu Æ-listans verður hrundið í framkvæmd (með aðstoð samstarfsflokks). Eitt af því fyrsta sem hlýtur að gerast, miðað við aðgerðaráætlun Æ-listans, er að [...]