Færslur fyrir apríl, 2010
Um breytingar á siðareglum BÍ
Eftirfarandi er skrifað inn í umræðuna um tillögur að breyttum siðareglum Blaðamannafélags íslands. Blaðamenn skiptast mjög í tvö til þrjú horn í afstöðunni til siðareglna BÍ og úrskurða siðanefndar. Í fyrsta lagi eru þeir sem telja siðareglur nauðsynlegar, siðanefnd réttmætt aðhald að blaðamönnum og að núverandi siðareglur séu í meginatriðum eins og þær eiga að [...]
Aðstoðarmaðurinn sem aðstoðaði ekki
Ég var að rekast á auglýsingu í Fréttablaðinu í dag, þar sem Samfylkingin boðar til mikils flokksstjórnarfundar í fyrramálið með málstofum og hvaðeina, þar sem leitast á við að draga lærdóm af rannsóknarskýrslunni miklu. Allt gott og blessað, nema hvað ég sé að stjórnandi málstofu um “stöðumat og aðgerðir 2007-2009″ á að vera enginn annar en [...]
Aðhald, fjölmiðlar og stjórnarandstaða
Fyrir utan að húðskamma skúrkana í bönkunum, aulana við landsstjórnina, forsetann og fleiri slíka þá beindi Rannsóknarnefnd Alþingis eðlilega augunum að því aðhaldsleysi sem ríkti hjá fjölmiðlunum og háskólasamfélaginu. Fjölmiðlar og fræðimenn áttu að veita valdhöfunum í stjórnmálum og viðskiptum meira (eða allavega eitthvert!) aðhald. Ég er ekki búinn að lesa alla skýrsluna, en ef [...]
Viðeigandi vandarhögg
Það mun taka minnst nokkra daga að innbyrða alla skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis (RA) og melta, en eftir blaðamannafundinn og lestur nokkurra lykilkafla og lykilfrétta þá er það helst lýsingarorðið “léttir” sem skipar efsta sætið í tilfinningaflórunni. Hneyksli og reiði eru nokkru neðar. Léttirinn er aðallega fólginn í því að ég var orðinn skíthræddur um að [...]
Ég geri Fons-fréttir Svavars að mínum orðum
Vegna stefnu Pálma í Fons gegn Svavari Halldórssyni fréttamanni RÚV geri ég hér með orð Svavars (fréttatexta) að mínum og hvet alla til að birta eftirfarandi fréttir (sem ég birti með leyfi SH) allsstaðar þar sem því verður við komið: Frétt 1: Pálmi Haraldsson notaði skuldaviðurkenningu frá Baugi sem veð þegar hann fékk tveggja og [...]
Eitt þúsund góðar sálir
Pálmi í Fons hefur gripið til þess örþrifaráðs að höfða meiðyrðamál gegn Svavari Halldórssyni fréttamanni RÚV. Krefst 3ja milljóna króna í skaðabætur eða hálfar þær bætur sem hart leiknustu Breiðvíkingar geta fengið samkvæmt væntanlegum lögum um sanngirnisbætur. Við samlíkinguna er Svavar þá ígildi ruddamennisins Þórhalls Hálfdánarsonar. „Tilgangurinn er augljóslega sá að hræða blaðamenn frá því [...]
Fyrst DV, svo 365, svo….
Ástæða er til að óska DV-fólki til hamingju með nýtt eignarhald og raunar verulega batnandi blað á undanförnum mánuðum og árum (eftir rústun Ísafjarðarmálsins). Að Lilja Skaftadóttir og Reynir Traustason taki við sem aðaleigendur af Hreini Loftssyni er hreint og beint stórkostlegt. Ég mun fagna þessu með því að gerast áskrifandi á ný. Vonandi geta [...]
Friðrik Þór Guðmundsson
Kommentin…