Færslur fyrir janúar, 2010
Blóðtakan mikla á RÚV
Hrina uppsagna hefur gengið yfir stétt blaða- og fréttamanna í kjölfar hrunsins og fjölmiðlar landsins eru án nokkurs vafa að verða æ vanmáttugri til að eflast í viðleitni sinni til að veita stjórnvöldum og öðrum valdaöflum landsins aðhald – og var hún ekki sérlega burðug fyrir. Blóðtakan hefur verið hvað mest hjá RÚV síðustu árin, [...]
Blaða- og fréttamenn tuskaðir til
Það sem ég skrifa hér að neðan er komment frá mér vegna athugasemda við síðustu færslu mína. Mér fannst gráupplagt að gera sérstaka nýja færslu úr efninu. Blaða- og fréttamönnum á Íslandi er gert nánast ókleift að gegna því hlutverki sem þeim er jafnan ætlað, að veita stjórnvöldum og öðrum valdaöflum aðhald. Þetta er ótvíræð [...]
Þórhallur
Jú, jú, einn maður kemur þá annar fer og enginn er ómissandi. Ég er hins vegar öruggur um að það verður mikill missir af Þórhalli Gunnarssyni í Kastljósi og innlendri dagskrárstjórn Sjónvarpsins. Hann hefur gegnt í rauninni tveimur stöðum hjá RÚV og gert það af fítonskrafti, en því er ekki að leyna að mér fannst [...]
Stöð 2 fjallar um RÚV
Hún var út af fyrir sig ágæt, frétt Heimis Más Péturssonar á Stöð 2 áðan, um áralangan hallarekstur RÚV í tíð Páls Magnússonar og Markúsar Arnar Antonssonar. Ítarleg frétt með súlum og samanburði, en reyndar með engum viðmælanda. Samkvæmt fréttinni hefur RÚV verið að tapa milljón krónum á dag í mörg ár. Það er reyndar [...]
Þverpólitísk sátt um snyrtingu?
Ekki ber á öðru en að stjórnarflokkarnir og stjórnarandstöðuflokkarnir séu að ná góðu samkomulagi um “næstu skref” í Icesave-málinu. Ég get ekki að því gert en ég fyllist tortryggni við slíkar fréttir. haft er eftir Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni á Pressunni: „Fundurinn gekk mun betur en ég átti von á. Forsætisráðherra og fjármálaráðherra komu með tillögu [...]
Stríðshanska kastað
Ég ætla að venda mínu kvæði í kross og tala um mikið hitamál, sem kraumar undir öllu talinu um Icesave. Það varðar málefni sem veldur ósjaldan miklum tilfinningaflækjum og þar sem skoðanaskipti geta auðveldlega þróast upp í rifrildi, ef ekki slagsmál. Ég er að tala um hvaða liði menn halda með í enska boltanum. Mogginn [...]
Sækjum líka peningana sem við borguðum innlendum gamblerum
Það er ekki annað hægt en að hrífast af þeim aukna meðvindi sem við nú upplifum, einkum eftir þungavigtar-Silfur fyrr í dag, með málstað Íslands í deilunni við Bretland, Holland og raunar flestallar þjóðir Evrópu (fram að þessu). Málstaðurinn fyrir því að Íslenskir skattgreiðendur borgi ekki krónu vegna Icesave hefur styrkst verulega. Það er fínt. [...]
Þrjár fylkingar – tveir kostir
Hún er ekki fagurfræðilegt afrek, spurningin sem á að leggja fyrir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslunni um Icesave-ábyrgðina. En svara skal spurningunni einfaldlega með JÁ eða NEI. Óskandi væri að málið væri svo einfalt að JÁ eða NEI dygðu til að draga fram meginsjónarmiðin. Svo er því miður ekki. Þegar kjósendur fara á kjörstað munu þeir lesa: [...]
Borga ekkert? Borga minna?
Hvernig skal samræma þau ólíku sjónarmið, annars vegar að sleppa þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-lögin en fara og endursemja við Breta og Hollendinga (um að borga en bara með öðrum hætti) og hins vegar að hafna því að almennir skattgreiðendur borgi einkaskuldir óreiðumanna? Er forsvaranlegt að fara í að endursemja án þess að gefa því lýðræðislegt tækifæri, [...]
Í nafni þjóðarstolts færum við fórnir
Kannski, þegar búið er að hrista allt lauslegt af málinu, snýst það um þjóðarstolt og sjálfstæðisbaráttu fyrst og fremst. Því hvað hefur annað gerst en að Ísland hefur (í gegnum forsetann og undirskriftir fjórðungs kjósenda) sagt meintum vinaþjóðum “stríð” á hendur, sem náskylt er landhelgisstríðum og sjálfstæðisbaráttu. “Við” höfum sagt: Við tökum ekki þennan óskapnað [...]
Friðrik Þór Guðmundsson
Kommentin…