Færslur fyrir nóvember, 2009

Laugardagur 28.11 2009 - 17:07

En sagðir eiginlega ekki neitt…

Tilþrif Ragnheiðar Elínar Árnadóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, höfuðpaurs Hrunsins, eru athyglisverð. Í ræðustól þingsins lagði hún út frá ímynduðu samtali við barnabarn sitt. “Ragnheiður Elín sagði að málið væri það stórt að menn ættu að útskýra afstöðu sína, þó ekki væri nema fyrir barnabörnin sín. ”Amma þú varst á þingi þegar Icesave-málið leyst. Hvaða sagðir þú? Það væri pínlegt [...]

Sunnudagur 22.11 2009 - 15:08

Frelsið mikilvægt en markaðurinn fær falleinkunn

Sá merki fræðimaður, Stefán Ólafsson, nefndi í Silfri Egils fyrr í dag að meginniðurstöður Þjóðfundarins væru mjög í anda niðurstaðna Þjóðmálakönnunar sem gerð var fyrr í ár og það er rétt; áherslur þjóðarinnar eru mjög skýrar og hafa verið áréttaðar með eftirminnilegum hætti: Þjóðmálakönnun apríl 2009: Fullyrðing 1: „Besta leiðin til að vinna á þeim [...]

Þriðjudagur 17.11 2009 - 14:46

Eru “frasar” Þjóðfundarins sjálfsagðir?

Ýmsir þeir, sem tekið hafa þátt í umræðunni um afurðir Þjóðfundarins, hafa viljað gera lítið úr setningunum 162 sem fram komu (og jafnvel ranglega ályktað að um lokaafurð fundarins hafi verið að ræða). Þessar setningar hafa verið kallaðar “frasar” og falleg orð sem allir geta skrifað undir. En er það svo? Kannski í stærstu dráttum. [...]

Mánudagur 16.11 2009 - 13:11

Frasar um frasa

Enn er fólk með ótímabærum hætti að tala um niðurstöður Þjóðfundarins. Þjóðfundurinn fór fram í nokkrum hlutum. Í fyrsta hluta (BARA FYRSTA HLUTA) var fjallað um lífsgildi, þar sem heiðarleiki varð efstur á blaði, en síðan jafnrétti, virðing og réttlæti. Það sem sumt fólk í lífsleiða sínum kallar “frasa og slagorð” kom út úr öðrum [...]

Mánudagur 16.11 2009 - 00:10

Fjölskylduvænt velferðarríki með óspillta stjórnsýslu!

Setningar Þjóðfundar 2009, sem sumir vilja kalla “slagorð”. Þegar nánar er að gáð er þetta hástemmd yfirlýsing um að halda því besta sem við höfum byggt upp í okkar blandaða hagkerfi mikils atvinnufrelsis meðfram jafnaðarstefnu, en henda út spillingunni og óheiðarleikanum. Er þaggibara? Sjá www.thjodfundur2009.is. Ísland verði umhverfisvænt og sjálfbært með réttláta og heiðarlega stjórnsýslu. [...]

Mánudagur 02.11 2009 - 18:24

Meiddur Jónas og meiddari Jón

Jón Magnússon kveinar nú hástöfum yfir því að Egill Helgason þáttastjórnandi og blaðamaður hafi í umræðum eftir Hrunið (sem FLokkur Jóns og FLokksmenn hans ollu öðrum fremur) lagt son sinn í “einelti“, sem sagt Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitisins, og viðhaft um hann meiðyrði. Þetta er auðvitað argasta bull. Egill “elti” eins og vera [...]

Sunnudagur 01.11 2009 - 14:56

Aðhald og óhefðbundnar aðferðir

… að þar sem hefðbundin vinnubrögð skila ekki árangri sé réttmætt að viðhafa frumkvæði og frumlegheit við að afla mikilvægra upplýsinga með óhefðbundnum aðferðum. Þó ekki væri annað en með einörðum þrýstingi og eftirgangsemi, sem því miður eru varla að flokkast til hefðbundinna aðferða í dag.