Ég sé ekki að þörf sé fyrir að flugvöllurinn fari hér úr borg á næstunni. Mín afstaða er og hefur alltaf verið afar skýr. Á meðan við þurfum flugvöll á höfuðborgarsvæðinu og innanlandsflugið er jafn mikið og mikilvægt og raun ber vitni. Þá verður flugvöllurinn að vera, að mínu mati, í Vatnsmýri. Það er talað um að þúsundir íbúða séu tómar á höfuðborgarsvæðinu, hér hefur verið fólksfækkun síðustu misserin og þörf fyrir uppbyggingu fyrirsjáanlega ekki mikil næstu árin og enginn veit hvernig hlutirnir munu þróast áfram. Í stað þess að velta okkur upp úr því hvort hann eigi að fara eða vera vil ég að við einbeitum okkur að því að bæta samgöngur til Keflavíkur og hver veit nema við getum greitt svo fyrir þeim að ekki verði lengur þörf fyrir sérstakan flugvöll á höfuðborgarsvæðinu, þá má hann mér að sársaukalausu fara, en fyrr ekki. Með bættum samgöngum gætum við stytt aksturstímann til Keflavíkurflugvallar niður fyrir hálftímann. Í dag er tíminn gegnum Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð það em helst tefur á leiðinni. Annað sem gæti svo sannarlega breytt þessu er lest til Keflavíkurflugvallar. Lest sem færi t.d. frá Kringlunni eða Samgöngumiðstöð í Vatnsmýri. Svona lest þyrfti ekki að vera nema 15 mínútur á leiðinni og farþegar gætu komið beint inn í flugstöð svipað því sem gerist á Kastrup í Kaupmannahöfn. Með aðgerðum sem þessum væri ekki lengur þörf fyrir flugvöll í Vatnsmýri og þá, og fyrst þá, er raunhæft að tala um að flugvöllurinn fari. Allt tal um að flugvöllur verði áfram í eða við höfuðborgarsvæðið en eigi engu að síður að fara úr Vatnsmýri finnst mér innantómt og óábyrgt. Ætlum við að byggja annan flugvöll á höfuðborgarsvæðinu með tilheyrandi kostnaði eða hafa sérfræðingar okkar metið það svo að ekki sé lengur þörf fyrir flugvöll á höfuðborgarsvæðinu. Margir vísa í að ekki sé flugvöllur hér og þar í borgum annars staðar í heiminum. Engu að síður er enn þörf fyrir flugvöll á höfuðborgarsvæðinu og hann er til staðar. Okkar strjálbýla stóra land notar enn flugsamgöngur í ansi miklum mæli og gæti mikilvægi flugvallar jafnvel frekar átt eftir að aukast en minnka á næstu árum. Það er mikilvægt fyrir land og þjóð að við getum byggt allt landið og boðið upp á viðunandi samgöngur, hvort sem er í lofti eða láði. Mín skoðun er sú að við höfum enn þörf fyrir flugvöll í eða á höfuðborgarsvæðinu. Það sem getur breytt því er um helmings stytting á ferðatíma til Keflavíkurflugvallar sem þá gæti þjónað sem innanlandsflugvöllur fyrir höfuðborgarsvæðið líka.
Flugvöllur í Vatnsmýri – lest til Keflavíkurflugvallar ?
21.1 2012 | 08:42 | 6 ummæli
Flokkar: Óflokkað
Jórunn Frímannsdóttir
Ummæli (6)
Jón Skafti Gestsson // 21.1 2012 kl. 10:06
Þetta er nú meira… Það er alls ekki óábyrgt og innantómt að tala um að flytja flugvöllinn úr Vatnsmýrinni. Lestu bara skýrslurnar sem öllum standa opnar á netinu um flutning flugvallarins og þá muntu sjá að flugvöllur í Vatnsmýri er versti kosturinn út frá þjóðhagslegu arðsemismati. Allur flutningur úr Vatnsmýrinni myndi borga sig tiltölulega fljótt með tíma og bensínsparnaði allar þeirra höfuðborgarbúa sem þyrftu þá ekki að keyra ofan af heiðum á hverjum degi.
Þetta áttu að vita sem borgarfulltrúi og ekki vera að verja hagsmuni landsbyggðarinnar.
Haukur Kristinsson // 21.1 2012 kl. 10:20
Lest til Keflavíkurflugvallar. Forget it. Nema menn vilji peninga black hole, þá væri hugmyndin bráðsnjöll, ef ekki genial. Flugvöllurinn verður áfram í Vatnsmýrinni næstu 100 árin. Minnka má athafnarsvæðið með því að lengja brautir út í sjó og loka öðrum. Um þetta hefur Ómar Ragnarsson skrifað mikið og ýtarlega.
Jórunn Frímannsdóttir // 21.1 2012 kl. 11:52
Sæll Jón
Eins og staðan er nú finnst mér það ekki tímabært, ábyrgt né innihaldsríkt að tala um að flytja flugvöllinn úr Vatnsmýrinni. Það kann að eiga eftir að breytast og ég er einmitt að tala um hvaða forsendur ég telji nauðsynlegar til þess að breyta því. Hvað varðar athugasemd þína um að ég sé að verja hagsmuni landsbyggðarinnar þá má hver túlka það með sínu lagi, en þetta er mín skoðun og nota ég og mínir skjólstæðingar Reykjavíkurflugvöll reglulega.
Sæll Haukur
Það kann vel að vera að lestin sé útilokuð en mér finnst mikilvægt að skoða það og kortleggja. Held hún sé ekkert útilokðri en margt annað sem gert er hér á landi, en fyrst er að skoða það.
Sigfús Fossdal // 21.1 2012 kl. 15:17
Góður pistill.
Flugvöllurinn þarf alltaf að vera staðsettur við hliðina á sjúkrahúsi landsmanna, þannig að ef menn vilja hann til Kef þarf að færa landspítalann þangað líka. Meira að segja þetta korter í lest getur skift máli þegar um líf og dauða er að ræða eins og gerist reglulega í sjúkraflugi innanlands.
Enþá hafa heldur ekki raunhæfir valmöguleikar komið upp. Hólmsheiði er með allt of slök veðurskilirði til að þar sé hægt að vera með gott innanlandsflug, og hvað þá sjúkraflug.
einsi // 21.1 2012 kl. 15:58
Við höfum skamman tíma til stefnu.
Held að eina leiðin til að útkljá þetta mál, sé að efna til þjóðaratvæðagreiðslu. Það má gera með forsetakosningum í sumar.
Óskar Árnason // 21.1 2012 kl. 23:13
Góður pistill hjá þér Jórunn, hjartanlega sammála. Sigfús, þú hittir naglann á höfuðið með tengingu flugvallar og sjúkrahúss. Þeir sem halda öðru fram hafa ekki þurft á sjúkraflugi að halda. (sem betur fer).
Rita ummæli