Jórunn Frímannsdóttir

blogg á eyjan.is

Í upphafi nýs árs

8.1 2012 | 21:02 | 2 ummæli

Mér finnst alltaf jafn gaman í kringum áramót að velta fyrir mér stöðunni í samfélaginu. Aldrei  hef ég þó átt jafn erfitt með að setja eitthvað á blað og nú.  Ég held að ástæðan sé einfaldlega sú að ég er hálf orðlaus yfir öllu því sem gengur á. Þegar kemur að skattlagningu, hvetjandi umhverfi, atvinnusköpun, framtíðarsýn, forsetanum, ríkisstjórninni og fleiru og fleiru þá er ég orðlaus.  Ætla ekki einu sinni að reyna að koma frá mér þeim skoðunum sem ég hef á því öllu saman.

En það eru tvö mál sem brenna á mér og ég er að takast á við ásamt félögum mínum sem sitja með mér í Skipulagsráði.

Landspítali Háskólasjúkrahús við Hringbraut.

Ég hef talið rétt að sameina sjúkrahúsið á einum stað og sannfærðist fljótt um að Hringbraut væri rétti staðurinn í því tilliti og tel ég svo enn vera. Það eru veigamiklir þættir sem styðja staðsetningarvalið í mínum huga. Með því að stækka sjúkrahúsið á þessum stað höldum við mjög stórum vinnustað við miðborgina sem styrkir aðra starfsemi sem þar er. Gamla húsið við Hringbrautina „gamli spítalinn“ er mikilvægt hús sem rétt er að vernda og það verður best gert með því að nýta það hús áfram eins og til stendur að gera. Það eru fleiri hús sem áfram verða nýtt við Hringbrautina s.s.barnaspítalahúsið, geðdeildarbyggingarnar, kvennadeildarbyggingin og fleira mætti nefna. Það breytir ekki því að mikið þarf að byggja. Í mínum huga skiptir höfuðmáli að þær byggingar sem munu rísa við Hringbraut fari vel í umhverfinu og við munum geta lifað með þeim á þessum viðkvæma stað í borgarumhverfinu um ókomna tíð.  Sem fulltrúi í Skipulagsráði Reykjavíkurborgar hef ég skoðað þetta mál frá flestum hliðum og velt fyrir mér hvernig þetta getur orðið að veruleika svo við verði unað.  Það er ekki auðvelt að samræma þarfir spítalans fyrir stækkun og þarfir umhverfisins og borgarbúa fyrir notalegu og manneskjulegu  umhverfi. Það þarf þó að gera og höfum við í Skipulagsráði lagt okkur fram um að fá byggingar lækkaðar og minnkaðar en takmörk eru fyrir því hversu langt er hægt að ganga í því. Á sama tíma þarf sjúkrahúsið að virka og starfseiningarnar að ná fram þeim tímasparnaði og þeirri hagræðingu sem að er stefnt. Þetta er vandasamt verkefni sem þarf að leysa og gott væri að fara að sjá fyrir endann á.

Flugvöllur í Vatnsmýri?

Ég sé ekki að þörf sé fyrir að flugvöllurinn fari hér úr borg á næstu tuttugu árum. Mín afstaða er og hefur alltaf verið afar skýr. Á meðan við þurfum flugvöll á höfuðborgarsvæðinu og innanlandsflugið er jafn mikið og mikilvægt og raun ber vitni. Þá verður flugvöllurinn að vera, að mínu mati, í Vatnsmýri. Það er talað um að þúsundir íbúða séu tómar á höfuðborgarsvæðinu, hér hefur verið fólksfækkun síðustu misserin og þörf fyrir uppbyggingu fyrirsjáanlega ekki mikil næstu árin og enginn veit hvernig hlutirnir munu þróast áfram. Í stað þess að velta okkur upp úr því hvort hann eigi að fara eða vera vil ég að við einbeitum okkur að því að bæta samgöngur til Keflavíkur og hver veit nema við getum greitt svo fyrir þeim að ekki verði lengur þörf fyrir sérstakan flugvöll á höfuðborgarsvæðinu, þá má hann mér að sársaukalausu fara, en fyrr ekki. Með bættum samgöngum gætum við stytt aksturstímann til Keflavíkurflugvallar niður fyrir hálftímann. Í dag er tíminn gegnum Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð það em helst tefur á leiðinni. Annað sem gæti svo sannarlega breytt þessu er lest til Keflavíkurflugvallar.  Lest sem færi t.d. frá Samgöngumiðstöð í Vatnsmýri, þyrfti ekki að vera nema 15 mínútur á leiðinni og farþegar gætu komið beint inn í flugstöð svipað því sem gerist á Kastrup í Kaupmannahöfn. Með aðgerðum sem þessum væri ekki þörf lengur fyrir flugvöll í Vatnsmýri og þá, og fyrst þá, er raunhæft að tala um að flugvöllurinn fari. Allt tal um að flugvöllur verði áfram í eða við höfuðborgarsvæðið en eigi engu að síður að fara úr Vatnsmýri finnst mér innantómt og óábyrgt. Ætlum við að byggja annan flugvöll á höfuðborgarsvæðinu með tilheyrandi kostnaði eða hafa sérfræðingar okkar metið það svo að ekki sé lengur þörf fyrir flugvöll á höfuðborgarsvæðinu. Margir vísa í að ekki sé flugvöllur hér og þar í borgum annars staðar í heiminum. Engu að síður er enn þörf fyrir flugvöll á höfuðborgarsvæðinu og hann er til staðar. Okkar strjálbýla stóra land notar enn flugsamgöngur í ansi miklum mæli og gæti mikilvægi flugvallar jafnvel frekar átt eftir að aukast en minnka á næstu árum.  Það er mikilvægt fyrir land og þjóð að við getum byggt allt landið og boðið upp á viðunandi samgöngur hvort sem er í lofti eða láði. Mín skoðun í dag er sú að við höfum enn þörf fyrir flugvöll í eða á höfuðborgarsvæðinu. Það sem geti breytt því er um helmings stytting á ferðatíma  til Keflavíkurflugvallar sem þá gæti þjónað sem innanlandsflugvöllur fyrir höfuðborgarsvæðið líka.

b

Flokkar: Óflokkað



Ummæli (2)

  •   Sig. Kr // 8.1 2012 kl. 23:50

    Ertu virkilega enn í Sjálfstæðisflokknum?

    Það getur varla verið…

  •   Hilmar Þór // 9.1 2012 kl. 11:47

    Ágæt hugleiðing í upphafi árs.

    Ég tek undir það sjónarmið þitt að flugvöllurinn sé ekkert á förum fyrr en búið er að leysa samgöngumál höfuðborgarsvæðisins í lofti. Hvort heldur það er með flugvelli í Vatnsmýri, nýjum flugvelli á höfuðborgarsvæðinu(!) eða lest til Keflavíkur. Þessi mál eru ekkert að leysast á næstu 4-12 árum svo það er skynsamlegt að gera ráð fyrir flugvelli í Vatnsmýri næstu 20-25 árin.

    Eftirfarandi tilvitnun í pistil þinn er megin málið: ”Í mínum huga skiptir höfuðmáli að þær byggingar sem munu rísa við Hringbraut fari vel í umhverfinu….” Þetta er gríðarlegt arkitektónsiskt vandamál sem ég sé ekki að sé leysanlegt með þeirri húsrýmisáætlun sem sett var fram í samkeppninni fyrir bráðum tveim árum. Byggingarnar virðast of stórar fyrir lóðina og næsta umhverfi.
    Landspítalinn og ráðgjafar hljóta að vera að berjast við að minnka húsrýmisáætlunina. Það þurfa þeir að gera áður en þeir fara að teikna að ráði.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og þremur? Svar: