Jórunn Frímannsdóttir

blogg á eyjan.is

Færslur fyrir: desember 2011

Íþróttafélögin eru svelt

9.12 2011 | Ein athugasemd

Það er alvarleg staða sem íþróttafélögin í Reykjavík standa frammi fyrir.
Undanfarin þrjú ár hafa framlög borgarinnar til félaganna dregist saman um hátt í 40% að raunvirði. Félögin hafa ekki fengið neina bætingu vegna kostnaðarauka og hafa auk þess þurft að horfa fram á krónutöluskerðingu er um tæp 6%.  Á sama tíma hafa laun hækkað um 10%, orkukostnaður hefur hækkað um nálægt 35%, iðkendum hefur fjölgað og krafa um faglegri vinnubrögð nú meiri en nokkru sinni.

Enn horfa félögin fram á skerðingu, þrátt fyrir mikla þörf fyrir bætingu. Í frumvarpi borgarstjórnar sem samþykkt var í Borgarstjórn Reykjavíkur í vikunni var ákveðið að hækka ekki rekstrarstyrki til íþróttafélaganna.

Í byrjun árs 2008 gerðu félögin samning til tveggja ára, þ.e. 2008-2010 sá samningur hélt í raun aldrei, utan þá liði þess samnings sem var borginni í vil.  Engu að síður var ákveðið að leggjast í vinnu við að gera framhaldssamning þar sem félögunum yrði bætt eitthvað af þeirri skekkju sem allir voru sammála um að hafði skapast og voru komin drög að framhaldssamningi fyrir árin 2011-2013. Þeim samningi, sem félögin unnu að með ÍBR og borginni, var svo stungið undir teppið og tekin pólitísk ákvörðun um að framlengja samninginn frá 2008 með 5,59% lækkun að auki. Þetta getur ekki gengið og íþróttafélögin verða að fá bætta þá skerðingu sem þau hafa orðið fyrir.

Borgin bætir sínum eigin stofnunum, sviðum og starfseiningum aukinn kostnað sem þau verða fyrir t.a.m. vegna hækkunar launa, orkukostnaðar eða annars sem ekki er hægt að hafa áhrif á. En íþróttafélögin eiga enn að hagræða til þess að ná fram þeim kostnaðarauka sem þau verða fyrir.

Ég fullyrði að íþróttafélögin vilja allt gera til að halda úti öflugu og góðu starfi. Starfsfólk, forsvarsmenn og aðrir sjálfboðaliðar félaganna hafa lagt mikið á sig við að hagræða og gera breytingar á starfseminni til þess að veita góða þjónustu á þessum erfiðu tímum, en nú er svo komið að ekki verður meira gert nema það komi verulega niður á starfseminni. Ég trúi ekki að það sé ósk ráðamanna borgarinnar í dag.

Mín trú er sú að enn megi breyta þessu og vonast til þess að samningurinn sem búið var að gera og gilda átti 2011-2013 verði tekinn upp og staðið við þær áætlanir sem þar voru gerðar.

Flokkar: Óflokkað · Íþróttir