Færslur fyrir júlí, 2010
ilm – ljóða – vöndur
Þú réttir mér ilmvönd Þú réttir mér ilmvönd úr íslenskum reyr, - ég atburðinn geymi. Hvert árið sem líður ég ann honum meir, þó öðrum ég gleymi. Mig greip einhver suðræn og seiðandi þrá að syngja hér lengur. Við íslenskan vorilm til viðkvæmni brá, svo vaknaði strengur. [...]
Ljóðagangan vasast í öllu
Ég nýt þess að fá ennþá þjónustu bensínafgreiðslufólks við að dæla bensíni á bílinn, ég leyfi mér þann munað. Það er líka liður í hljóðlátum mótmælum mínum gegn allri þeirri sjálfsafgreiðslu sem hefur verið neydd uppá mann; heimabankinn, pöntunartalstöðin á skyndibitastöðum, verslanir, bókasöfn, skiptiborð símanna, öll hjálpartækin o.fl. Ekki má gleyma pólitíkinni sem við lærðum af hruninu að við þurfum [...]
Barist með ljóðum
Þetta ljóð Ólafar Sigurðardóttur frá Hlöðum tileinka ég baráttunni fyrir náttúruauðlindunum okkar. Ef þú vilt mótmæla því að þær séu færðar vafasömum aðilum á silfurfati þá er það hér: http://orkuaudlindir.is/index.php Vont og verst Vont er að láta leiða sig, leiða og neyða. Verra að láta veiða sig, veiða og meiða. Vont er að vera [...]
Ljóðagangan – losar björgunarvestin
Hamingjan Í tilefni dagsins ferskur gustur sætin til reiðu aftur í skut Glíma við kaðla og kúnstugar rár er ekki fyrir prúðbúna Og ekki dugar áttaviti elskendum Leysum af okkur björgunarvestin! Fleytum þeim út á myrkrað hafið! Skærgul skilaboð til gamla heimsins Gerður Kristný. Úr ljóðabókinni Höggstaður [...]
Vilborg Dagbjartsdóttir í netljóðagöngu
Um Vilborgu; nýbakað afmælisbarn má lesa á bókmenntavef Borgarbókasafns: http://100.bokmenntir.is/rithofundur.asp_cat_id=119&author_id=99&lang=1 Spurning Skrifað stendur: Sá sem þegir yfir hatri sínu er lygari! En hvað er sá sem þegir yfir ást sinni? Ljóðabókin KLUKKAN Í TURNINUM frá 1992.
Orkan – í netljóðagöngunni
Takk fyrir; Björk, Jón og Oddný: http://www.dv.is/frettir/2010/7/13/bjork-gegn-magma-sendir-abendingu-umbodsmann/ Ljóð af þessu tilefni: Vaknaðu Vaknaðu! sungu vængir dagsins inn í vökudraum minn, sjáðu! heimur þinn sem liðin veröld lét í hendur þér og líf þitt, sál þín skóp, er brot af mér, því ég er allt; í andartaki því sem er að líða fæðist þú á [...]
Ljóðagangan – lærir á heiminn
Þetta var sú frétt dagsins sem situr mest i mér: http://www.barnaheill.is/barnaheill/frettir/364-10milljoniranmatarasahelsvaedinu.html en hér kemur ljóð dagsins: Á Þjóðarbókhlöðunni Þorkell les ritgerð um kúgun á afrískum konum. Kristína gáir hvort Leikur að stráum sé inni. Ólafur spyr sig hvort Margrét sé hrifin af honum. Hallgrímur reynir að festa sér ártöl í minni. Hólmfríður [...]
Lævarar – ljóða -lax
Innlegg í þjóðfélagsumræðuna: Portið Axar sax og lævarar lax og lundur skjalda. Þagnar magnar þofrið kalda þeir eru komnir í portið valda. Vísur Æra Tobba (1972) sem var Þorbjörn lifði á 17. öld (Gerði sér upp vitleysu sagði Dr. Jón Þorkelsson þjóðsagnasafnari), kallaður Þorbjörn vitlausi eða Æri Tobbi . Hann dó um [...]
Ljóðagangan – með fínt kjaftæði
Ættjarðarást og -rembingur er mikið til umræðu núna í sambandi við Evrópumálin og – lúpínuna http://www.visir.is/-reyr,-stor-sem-rosir-vaenar-%E2%80%A6-/article/2010228753323 og allt. Hér kemur innlegg í þá umræðu: Ættjarðarást Ættjarðarást – gef ekkert fyrir svoleiðis fínt kjaftæði sagði sjómaðurinn ungi og hellti í glasið Og þó – við höfðum verið að lóna dögum saman sá [...]
Skúli Helgason prentari – kveðjuorð
Skúli Helgason (1925 – 2010) prentari er látinn. Hann vann við prentverk stóran hluta ævinnar m.a. á Prentsmiðju Þjóðviljans, Kassagerð Reykjavíkur og Anilínprenti. Ég var svo heppin að fá að kynnast honum í gegnum Borgarbókasafnið/Ársafn þar sem við Elísabet dóttir hans höfum verið vinnufélagar síðastliðin ár. Mig langar til að bregða upp örfáum minningarbrotum: - Sælt [...]
Jónína Óskarsdóttir