Færslur fyrir júní, 2010

Föstudagur 18.06 2010 - 07:54

Dómkirkjan var öllum OPIN 17. júní!

Ég biðst afsökunar fyrir að hafa verið með uppþot að óþörfu á blogginu mínu síðdegis í gær! Fór tímavillt því ég taldi mig hafa séð þrjá mismunandi messutíma auglýsta. Þeir voru tveir, en það var ég sem var á vitlausum tíma. Það var bara helvítis kjaftæði í mér að kirkjan væri lokuð! Komst að því þegar [...]

Fimmtudagur 17.06 2010 - 01:39

17. júní ljóð eftir Ísak Harðarson

Til hamingju með daginn! Ég er ævinlega þakklát fyrir að búa í lýðveldi en ekki sátt við hvernig lýðveldinu var umsvifalaust breytt í ræningjabæli þar sem útbelgdir karlar og kerlingar hreiðruðu um sig og létu geipar sópa svo langt aftur sem ég man! Nú hillir undir þá tíð að þetta lið sé loksins á leið í söguSorpuna. Ljóðahugleiðing dagsins [...]

Miðvikudagur 16.06 2010 - 08:30

Pikk upp línur fjallkonunnar – í ljóðagöngu

Nú þegar borgin er komin í góðar hendur og nýtt lýðveldi einhversstaðar í pípunum (Er búið að selja helvítis drusluna hjá Orkuveitunni?) er ágætt að skoða hvernig fjallkonur Íslands hafa reynt að sjarmera þjóðina gegnum tíðina og taka á löpp! Í bók sem heitir Fjallkonur í fimmtíu ár er hægt að kanna þetta með broti [...]

Miðvikudagur 09.06 2010 - 01:07

Ljóðagangan – gengur af göflunum

SjálfstæðisFLokkurinn spilltasti flokkur Íslandssögunnar talar um meinta spillingu forsætisráðherra.  Að sjá styrkjarassgötin belgja sig úr á Alþingi  hljómar í mín eyru eins og englasöngur úr iðrum andskotans. Af þessu tilefni koma hér nokkur erindi sjöundu rímu úr:   Dómadagsræða Odds sterka   Elli sótti allt sitt lið, illt og ljótt, á heljar svið. Tregðan, óttinn, íhaldið æskuþróttinn [...]

Laugardagur 05.06 2010 - 21:10

Enn böðlast Ísraelsstjórn

Hugur minn er hjá því kjarkaða fólki sem reynir að koma hjálpargögnum til fólksins sem hefur verið lokað í gettóum á Gaza í tvö ár. Með aðgerðunum vekja þeir enn einu sinni athygli heimsins á grimmd Ísraelsstjórnar. Nú er vonandi að við hér og aðrar þjóðir hættum að horfa lamaðar á þessar útrýmingarbúðir Ísraelsmanna. Sameinuðu þjóðirnar hafa því miður verið algerlega getu- og [...]

Föstudagur 04.06 2010 - 19:43

Til hamingju Reykjavík!

Ég vona að nýja borgarstjórnin undir forystu Jóns Gnarr borgarstjóra komi með nýjar og skapandi starfsaðferðirinn inn í borgarstjórn. Skapandi sparnað: Ég heyrði brot úr viðtali við Benedikt Erlingsson í útvarpinu í morgun (Bylgjunni?) þar sem hann talaði um að nú þyrfti skapandi niðurskurð í ríkisfjármálum. Ekki dygði lengur að skera jafnt niður á línuna. Hann stakk [...]