Hvarvetna sem ég kem hristir fólk höfuðið yfir sýndarmennsku Jóhönnu, Árna Páls og annarra í ríkisstjórninni.
Það hristir höfuðið þegar stjórnvöld halda því blákalt fram að mikið hafi verið gert fyrir lántakendur.
Hið sanna er að lántakendur eru látnir bera, af fullum þunga, afleiðingar forsendubrest lána. Og verðtryggingarhryllingurinn æðir áfram.
Það er enn ekki búið að leiðrétta þennan forsendubrest. Sama hvað reynt er að halda öðru fram.
Afleiðingin er sú að fólk skynjar ekki að það búi í réttlátu samfélagi. Og það er ekki uppskrift að farsælu sam-félagi.
Þess vegna var Austurvöllur troðfullur í dag.
Þegar alþingismenn gengu yfir í Dómkirkjuna rigndi eggjum yfir þá. Meirihluti fólksins á Austurvelli lét það hins vegar eiga sig, þar á meðal ég.
Ef alþingismenn hysja ekki upp um sig brækurnar og sýna í verki að þeir eru í umboði þjóðarinnar en ekki fjármálakerfisins mun grassera um sig áframhaldandi gremja. Það er ekki gott.
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir
Rita ummæli