Færslur fyrir maí, 2007
Bestu brjóstin í bænum
Þegar ég tók þátt í hálfmaraþoni fyrir all nokkrum árum fannst mér brjóstin mín bara þvælast fyrir. Óskaði þess heitt og innilega að þau þyrftu ekki að skellast niður með Newtónískum krafti í hvert sinn sem önnur löppin skall á malbikinu. Það er ekki enn búið að finna upp almennilegan íþróttabrjóstahaldara, trúið mér! Brjóstalausar kynsystur [...]
Kærleikur og kjarkur
Nýverið var ég beðin að koma og halda erindi um gott kynlíf í hjóna-og sambúðarmessu í Garðakirkju hjá söfnuði Séra Jónu Hrönn Bolladóttur. Þar hóf ég orð mín á því að segja að Jesús hafi verið kjarkaður maður. Hann var á tíðum líka afar hreinskilinn og spurði óþægilegra spurninga en skildi um leið kjarnann frá [...]
Aðalfundur Kynís var haldin í dag
Hvað er Kynís? Ég skal segja þér það; Kynís er skammstöfun fyrir Kynfræðifélag Íslands. Í hvert sinn sem ég skrifa niður skýrslu formanns yfir starfsveturinn fyllist ég gleði og stolti. Þrátt fyrir að mér líði stundum eins og ekkert sé að gerast í faginu hérlendis er það samt lítill en ötull hópur sem vinnur að [...]
Á bólakafi í tímanum.
Það er nú meira hvað þarf að setja mælistikur á alla hluti. Mín vegna mætti aðeins slaka á og bara vera eða njóta án þess að mælieiningar þurfi sífellt að koma við sögu. Ég veit ekki hvað oft ég hef verið spurð um hvað ég hafi hlaupið langt í kílómetrum þennan daginn eða þessa vikuna [...]
Föðurleg ábending
Elskulegur pabbi minn var í símanum í gærkvöldi. “Jóna mín, ætlar þú ekki að kjósa Framsóknarflokkinn á morgunn, þú kýst þá er það ekki, það má ekki gerast að við fáum vinstri stjórn því á hverju eigum við að lifa-fjallagrösum?!! Ég sagðist alveg treysta mér til að taka sjálfstæða ákvörðun. “Sjálfstæða ákvörðun?!”, hrópaði hann þá [...]
Örsögur af örum.
Nýlega flutti fjölskyldan í gamalt hús hér vestast í vesturbænum, á svonefndan Selsbæjarreit. Innflutningnum hefur fylgt ýmislegt möndl, mála, negla, skafa o.sfrv. Þá kemur rispa hér og rispa þar á kroppinn. Við fyrsta tækifæri var hóað í tengdó og múttu mína og þeim boðið í kvöldverð, fyrstu gestirnir, heiðursgestir hússins. Við það tækifæri tókst mér [...]
Regnboga stjórnmálaskoðun
Tók kosningaprófið sem finna má á vef nemenda á Bifröst og kem út sem mestan part hliðholl Samfylkingarpólitík http://xhvad.bifrost.is/ Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 18.75% Stuðningur við Framsóknarflokk: 20% Stuðningur við Samfylkinguna: 62.5% Stuðningur við Vinstri-Græna: 43.75% Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 44% Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 50%
Jómfrúin í búrinu
Sonur minn gefur mér stundum bækur, af hreinu örlæti, og ef honum langar að deila einhverju áhugaverðu með mér. Nýverið gaf hann mér tvær bækur, skrifaðar af sómalskri konu; Ayaan Hirsi Ali en hún var alin upp sem múslimi og flúði síðar til Hollands. Ayyan tekur með nokkuð sannfærandi hætti á ótta okkar Vesturlandabúa að [...]
Plokklögmálið
Tók mér það bessaleyfi að þýða Law of extraction sem Plokklögmálið, svona í beinu framhaldi af síðustu færslu. Takið eftir hvað liðir 7. og 8. bera mikinn keim af pýramídaleiðinni, alræmdri fjárplógsaðferð. The Nine Steps of the Law of Extraction 1. Promise people something they desperately want, no matter how ludicrous it may be. For [...]
Uppljómaður dagur
Verkefni dagsins eru frekar óerótísk svona miðað við ástarsögur Ellýjar hér á blogginu. Enda er ég ekki ófrísk. Samt geta einhverjir, með góðum vilja, lesið eitthvað blautlegt út úr þeim ævintýrum sem liggja fyrir. 0. Láta sem ég sé ekki með þessa kvefpest sem vill mér allt hið besta. 1. Dreifsá basilkryddinu í smærri potta. [...]
Jóna Ingibjörg Jónsdóttir
Nýlegar athugasemdir