Færslur fyrir febrúar, 2007

Miðvikudagur 28.02 2007 - 08:46

“Á ég svo að hleypa þér ÞANGAÐ?”

Næstu helgi skrepp ég á þing í útlöndum þar sem umræðuefnið verður limalasleiki (þú verður að lesa þetta orð hægt” lima-lasleiki”, annars er aldrei að vita hvað þú telur þig hafa verið að lesa!!) og hvernig best hægt er að hjálpa til í þeim efnum. Ef ráðstefnugestum verður leyft að dvelja á hótelinu (það er [...]

Þriðjudagur 27.02 2007 - 00:17

Hvers vegna lærði ég kynfræði (sexology)?

Einn kær bloggvinur, hún Katrín, spurði mig nýverið hvers vegna ég hafi valið að læra kynfræði. Áhugi á að læra sexology hófst formlega þegar ég var við nám í hjúkrunarfræði. Á þeim árum var inni að tala um heildræna hjúkrun (holistic nursing). Ég tók eftir því að kynferðislega hliðin var samt útundan og uppúr því [...]

Mánudagur 26.02 2007 - 09:09

Kvenhollir karlmenn og fólk í felum

Að undanförnu hef ég verið að lesa bókina “Strá í hreiðrið” eftir Bríeti Héðinsdóttur, barnabarn Bríetar Bjarnhéðinsdóttur kvenréttindafrömuðar. Í bókinni er dregin upp mynd af lífi Bríetar, mestmegnis í gegnum bréfaskriftir hennar við börnin sín, Laufeyju og Héðinn, meðan þau voru við nám á erlendri grund. Nafni Matthíasar Jochumssonar bregður oftar en einu sinni fyrir [...]

Sunnudagur 25.02 2007 - 09:31

Ich liebt dich, yeah, yeah, yeah!

Er öll lurkum lamin eftir fjör gærdagsins. Olga, hin rússneska, píndi hópinn grimmt í gærmorgunn og ég er með harðsperrur í vöðvum sem ég vissi ekki að ég hefði en er þó heilbrigðismenntuð. Fékk síðan hláturskast hið fyrra þegar ég reyndi að rifja upp heiti popplags. Ég hélt að það héti “Segðu mér allt” og [...]

Laugardagur 24.02 2007 - 12:10

Í kvöld…

Í kvöld ætla ég á árshátíð hjá góðum hópi fólks og “bregða undir mig betri fætinum” (alltaf fundist þetta hálf skondið orðatiltæki, líka “að fara á stúfana” ). Það verður suður-amerísk stemning, öll pörin búin að æfa tangó svo nú verður “slett úr klaufunum”. Hylla gúrmið; dansa, borða, drekka og grínast. Er jafnvel að hugsa [...]

Föstudagur 23.02 2007 - 08:24

Afturför

Það er eitthvað á seyði sem er ekki rétt. Það er eitthvað að. Baráttufólk, sem greinilega vill vel, hefur farið offari og náð að taka stjórnmálamenn kverkataki, á kosningavori. Hér á ég við þann atburð að úthýsa netklámframleiðendum sem ætluðu að funda hérlendis. Það hefur hvarflað að mér þetta orðatiltæki: “Vont er þeirra ranglæti, verra [...]

Fimmtudagur 22.02 2007 - 08:25

Hvaða áhrif hefur klám á fólk?

Fyrirhugaður klámframleiðandafundur í mars (sjá eftirmála neðst á þessari færslu) á Klakanum hefur sett myrkva einhliða umræðu yfir land og lýð. Ýmsir hafa spurt mig hvað í ósköpunum klám geti gert okkur, venjulegu fólki? Lítum fyrst á hvað klámi/erótík= kynferðislega opinskáu efni er ætlað að gera. Kynferðislega opinskátt efni er yfirleitt skilgreint sem efni sem [...]

Miðvikudagur 21.02 2007 - 12:13

Ég er hýr og ég er rjóð því Tóti er kominn heim…

Minn heittelskaði eiginmaður kom heim í nótt úr frægðarför með Sinfó til Evrópu. Hann leit við á heimili Sigmund Freud í Vín og færði mér forláta vínrauðan plusspúða, eftirlíkingu af einum púðanna sem karlinn átti og prýddi vinnustofu hans. “Ég er hýr og ég er rjóð því Tóti er komin heim…”

Þriðjudagur 20.02 2007 - 10:21

Jörð kallar á Jónu

Fátt kemur mér meira á niður jörðina en baðherbergisþrif. Nema ef vera kynni að aðstoða sjúklinga við “hægðastjórnun”. (Ég er að reyna að orða þetta allt eins pent og ég get). En hjá þessu báðu verður ekki komist. Gera þarf fleira en gott þykir, segir orðatiltækið. Ætli galdurinn við þetta venjulega sé ekki að gera [...]

Mánudagur 19.02 2007 - 20:59

Hugmynd að kvikmyndahandriti

Af og til poppa upp í kolli mínum hugmyndir að bók eða kvikmyndahandriti eða einfaldlega glúrnum bókatitli. Hér ein hugmynd að sögu og ég er nokkuð viss um að hún er ekkert einsdæmi, kannski hef ég meira að segja séð hana einhvers staðar og búin að gleyma því. Sem sé, ekki ný hugmynd og kannski [...]