Fréttir af …

blogg á eyjan.is

Helgi Seljan er æðislegur

28.7 2011 | 2 athugasemdir

Helgi Seljan

Helgi Seljan. Einhver greindasti, hugrakkasti og húmorískasti Íslendingur vorra tíma.

Ritstjóri hins væntanlega vikurits á Akureyri, Björn Þorláksson (1.362 vinir), er einlægur aðdáandi sjónvarpsmannsins Helga Seljan. Björn fer hvergi leynt með þessa hrifningu því hann skrifar í nýlegum Facebookstatus: “er á því að Helgi Seljan fréttamaður sé í hópi mikilvægustu Íslendinga landsins. Hann er bæði skarpur, húmorískur og hugrakkur. Slík mannlýsing er fágæt á Íslandi hinna síðari tíma…”

Flokkar: Óflokkað