
Hjálmar Gíslason. Merkileg staðreynd að í þá daga þótti Flosi Ólafsson, í hlutverki Sigurjóns digra, feitur.
Frumkvöðullinn Hjálmar Gíslason hjá DataMarket (1.002 vinir) horfði, líkt og svo margir á Facebook, á Stuðmannamyndina Með allt á hreinu í gærkvöldi. Og hann velkist ekki í vafa um hvað má heita athyglisverðast við myndina þessum árum og áratugum síðar eða eins og segir í status Hjálmars: “Stærsta uppgötvunin við að horfa aftur á “Með allt á hreinu”: Í þá daga þótti Flosi Ólafsson (í hlutverki Sigurjóns “digra”) feitur!”
Vinir Hjálmar, svo sem Guðlaug Ólafsdóttir, kveikja á því hvert Hjálmar er að fara: “Einmitt – hann myndi nú bara teljast slank á mælikvarða nútímans…”
Jakob Bjarnar Grétarsson