Fréttir af …

blogg á eyjan.is

Færslur fyrir: ágúst 2011

Árna Johnsen slátrað á Facebook

1.8 2011 | 37 athugasemdir

Árni Johnsen

Árni Johnsen. Misþyrmdi hlustum Þjóðhátíðargesta í gær, að sögn Önnu Bjarkar.

“Jæja, það er mesta furða að maður sé enn á lífi eftir brekkusönginn í gær! Hef aldrei áður, og mun aldrei aftur sitja og hlusta á allt draslið (fyrr en skipt verður um forsöngvara)…sjitturinn titturinn, blessaður maðurinn er með tónlistarhæfileika á við heyrnarlausan hamstur! p.s. fyrst textarnir eru nú sýndir á risaskjám í Dalnum, væri þá ekki í lagi að hafa þá allavega rétta??”

Svo ritar Anna Björk Birgisdóttir útvarpsmaður (1.792 vinir) í Facebookstatus en hún er gift tónlistarmanninum Stefáni Hilmarssyni og ætti að vita hvað tónlist er. Anna Björk hreinlega hraunar yfir Árna Johnsen á Facebookvegg sínum. Að hennar mati var Brekkusöngurinn algerlega óbærilegur með Árna sem forsöngvara: “Alltaf stemmari en fólk var komið með hnefana í eyrun á sér til að meika þetta:-/ Við hliðina á mér voru menn sem drukku eins og þeir fengju borgað fyrir það (til að ná úr sér aulahrollinum)….” skrifar Anna á vegg sinn og heldur áfram eftir að Eyrún Gunnarsdóttir spyr hver gæti tekið við af Árna: “Eyrún, það geta ALLIR tekið við af honum. T.d. apinn Níels….það er ekki hægt annað en að vera betri en Johnseninn… Persónulega myndi ég vilja sjá Eyfa þarna! Hann myndi rúlla þessu upp og allir færu óskaddaðir heim!” Og: “Þetta var kannski fyndið fyrir 20 árum en brandarinn er lööööööngu búinn!”

Anna Björk

Anna Björk. Brandarinn með Árna Johnsen er fyrir löngu búinn.

Ef einhver heldur að Anna Björk hafi látið við svo búið sitja í lýsingum á ömurlegri frammistöðu Árna þá er það ekki svo: “Það skiptir engu hve mörgum koddum maður treður í eyrun og hve mikið áfengi maður drekkur….þetta er svo VONT að það er varla hægt að lýsa því!” En, Anna Björk reynir þó: “Jahá, hann segist aldrei undirbúa sig. Það fer nú ekki framhjá neinum. Alger skandall að hann skuli ekki enn vera búinn að læra þessi lög sem hann tekur á hverju ári. Ekki eitt einasta lag var flutt skammlaust þarna í gær. Ekki eitt!!!! Eða jú annars…Úti í Eyjum var fínt enda tók Árni sér pásu þá og lét strákana um flutninginn. Og þá gat maður tekið hausinn úr rassgatinu á sér í smá stund.”

Flokkar: Óflokkað

Landamenn á Norðfirði

1.8 2011 | Engar athugasemdir

Stefán Pálsson

Stefán Pálsson. Drakk landa af bestu lyst.

Svo virðist, ef marka má sagnfræðinginn Stefán Pálsson (1.202 vinir), að Norðfirðingar séu býsna glúrnir við að brugga landa. Eða eins og segir í statusi hjá Stefáni: “drakk besta landa sem hann hefur fengið. Norðfirðingar kunna þetta.”

Flokkar: Óflokkað

Árni Pétur eltir konur í Færeyjum

1.8 2011 | 2 athugasemdir

Árni Pétur

Árni Pétur. Verður kvensamur í Færeyjum.

Árni Pétur Guðjónsson (1.791 vinir), sá vinsæli leikari, ætlar að reyna við færeyskar konur sem rófulaus hundur á næstunni. Þetta kann að koma vinum hans á óvart en fiskur liggur undir steini. Eða eins og segir í Facebookstatus hans: “er farin til Færeyjar í fyrramálið vegna Hæ Gosa vonandi verð ég ekki laminn ætla að reyna grimt við færeysku dömurnar til að villa á mér heimildir”.

Flokkar: Óflokkað

Statusar vikunnar

1.8 2011 | Engar athugasemdir

Eva Hauksdóttir

Eva. Finnur enga hormóna á Google plús.

Þeir voru ýmsir snillingarnir sem létu ljós sitt skína í vikunni sem var að líða með snjöllum statusum. Þeir eru eftirfarandi:

Sindri Freysson: Stormur að bresta á í Vestmannaeyjum – vonast er til að Árni Johnsen fjúki á haf út með gítarnum.

Lára Björg Björnsdóttir: þið getið tekið þessa helgi og troðið henni.

Einar Bárðarson: Stærsta Facebook Verslunarmannahelgi allra tíma framundan – grenjandi rigning og allir inni a Facebook í símum, laptops med pungsa og heima a borðtölvum !!! Enjoy

Auður Húnfjörð: skoðar Tekjublað DV með framtíðar makaval í huga !

Eva Hauksdóttir: Það einkennir gott partý að einmitt þegar maður er búinn að ná góðum kontakt og er virkilega farinn að fíla sig, fer einhver að tala um að fara eitthvert. Venjulega á hundleiðinlegan skemmtistað eða í slappara partý. Ég skil það því venjulega eru hormónar þar að verki. Ég skil hinsvegar ekki hversvegna þetta ágæta partý ætti að færa sig á google plús. Ég er búin að gá, það eru engir hormónar þar.

Flokkar: Óflokkað