
Björn Þorláksson. Varar fólk við því að gefa sér klisjukenndan og ömurlegan stílista á borð við Yrsu í jólagjöf.
Björn Þorláksson (1.359 vinir), er ritstjóri nýs vikublaðs á Akureyri, og ef marka má nýjan Facebookstatus hans verður tekin upp gallhörð stefna í menningarskrifum þar á bæ: “las “Ég man þig” eftir drottninguna Yrsu. Hrós fær hún fyrir hluta plottsins og sitthvað fleira. En mikinn mínus fyrir klisjur, stíl og arfavonda ofnotkun lýsingarorða. Skil alveg hvers vegna svona bækur henta á sundlaugarbakkann – en ef eitthvert ykkar mun einhverju sinni gefa mér íslenska miðlungsreyfara, innbundna og í jólagjafapappír verður brugðist við! Það á líka við um Arnald og alla krónprinsana…”
Jakob Bjarnar Grétarsson
Rita ummæli