Færslur fyrir júní, 2015
Út að borða með Katrínu Jakobsdóttur
Það er engum blöðum um það að fletta að Katrín Jakobsdóttir nýtur mikils persónufylgis. Það sannast nú síðast í könnun Fréttablaðsins sem spurði fólk með hvaða íslenskum stjórnmálaleiðtoga það myndi helst kjósa að fara út að borða. Að vísu gat þriðjungur ekki hugsað sér að fara út með neinum leiðtoganna, en af þeim sem tóku […]
Þegar ég varð hissa
Mín vitund og skilningur á jafnréttismálum mótaðist af tvennu. Annars vegar er ég alinn upp af einstæðri móður, mikilli kjarnorkukonu, og það hvarflaði hreinlega aldrei neitt annað að mér í æsku en konur stæðu körlum algjörlega jafnfætis. Enda var sama upp á teningnum hjá öfum og ömmum og í öðrum þeim hjónaböndum sem ég þekkti til […]
Hroki Brynjars Níelssonar
Það er ósköp eðlilegt að Brynjari Níelssyni skuli ekki þykja ástæða til að stjórnin fari frá (sjá hér) – þótt formaður hans Bjarni Benediktsson hafi að vísu krafist þess að Jóhanna Sigurðardóttir „skilaði lyklunum“ þegar stjórn hennar naut þó ef eitthvað var meira fylgis en stjórn Sigmundar og Bjarna gerir nú. En af hverju Brynjar telur […]
Má mótmæla á 17. júní?
Það er eitthvað skrýtið í gangi í samfélaginu. Annars vegar er einhvers konar grasrótarhreyfing fólks að byrja að rísa og krefjast raunverulegs lýðræðis og skárri stjórnarhátta. Við sjáum þetta í auknum mótmælum, fólk lætur ekki bjóða sér hvað sem er lengur – og við sjáum þetta í fylgi pírata í skoðanakönnunum. En hins vegar eru […]
Var þetta bara blekking?
Það er víst öruggast að taka fram strax að mér finnst berin ekkert vera súr. Þau drög að samningi við kröfuhafa sem kynnt voru í gær virðast bara vera ljómandi ásættanleg – þótt ég viðurkenni þá jafnóðum að þekking mín á svona samningum er í rauninni fjarska yfirborðskennd, og ég áskilji mér því rétt til […]
Þið farið með þeim
Sonur minn ungur var að útskrifast úr Austurbæjarskóla nú síðdegis og ég varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að halda ávarp fyrir hönd foreldra þegar skólanum var slitið. Í trausti þess að ávarpið segi einhverjum öðrum en bara foreldrum og starfsfólki Austurbæjarskóla eitthvað, þá birti ég ávarpið hér. – – – Hæ krakkar. Ég veit […]