Nýji Glitnir
Nýji Landsbanki
Nýja Kaupþing
Já, jafnvel Nýja Ísland!
Og nú … Nýja Bloggið mitt, þar sem eftirleiðis munu aðeins birtast þær athugasemdir sem skrifaðar eru undir fullu nafni. Allt í anda gegnsærrar og upplýstrar umræðu, að sjálfsögðu. Practice as you preach og allt það
Trúi því ekki að nokkur maður, sér í lagi þeir sem lesa og predika hér á Eyjunni, séu mótfallnir þessu.
Mjög tvöþúsund og níu. Mjög svo.
Anna Sigrún Baldursdóttir
Það er fullt af rithöfundum sem skrifa undir dulnefni eða rithöfundarheiti. Er það glatað líka?
Mér finnst þessi umræða um þá sem kommenta undir öðru en sínu nafni á villigötum. Það eiga bara að gilda sömu reglur um þá og hina sem blogga undir eigin nafni. Ef þú getur ekki hagað þér eins og siðuð manneskja eða sem nemur standördum bloggareigenda þá er bara að -Eyða- þeim kommentum og blokkera ip-töluna sem notuð var.
Mér finnst þetta voðalega Stóra-Bróður -legt að krefjast nafnupplýsingar. Það getur heft málfrelsið.