Færslur fyrir desember, 2008
Eyjan kvödd
Í bili a.m.k. Viðurkenni þó að eftir atgang gærdagsins íhugaði ég alvarlega að kveðjan yrði endanleg. Það byrjaði með því að ég fékk þá firru í höfuðið að óhætt væri að benda á að mögulega séu einhver ljós í þessu efnahagssvartnætti. Hér höfðu menn farið hamförum í yfirlýsingum um að meintir delikventar væru nú að fá [...]
Skipað gæti ég, væri mér hlýtt
Nú veit ég ekki hvað skal segja. Þakka auðvitað vísan Egils á auma síðu mína og ágæt orð í minn garð. Ég hefði sjálfsagt átt að geta vensla minna, eins og ég hef svo sem áður gert. En svona í grunninn er ég bara summan af sjálfri mér og ég held raunar að það sé [...]
Hystería
Það er kominn í gang dulítið hysterískur vítahringur í umræðuna um uppgjör brunarústa bankanna. Menn æpa á torgum, að ég nefni nú ekki bloggheimana, að nú sé verið að gefa gömlu eigendunum aftur eignir sínar, þvottekta af öllum skuldum eftir góða vindingu í þvottavél skattgreiðenda. Svona sé þetta bara, enginn sé að gera neitt til [...]
Britney, Davíð og Geir
Ég held að ég sé ekki ein um að velta fyrir mér hvaða ótrúlega sterku bönd binda þá Davíð og Geir. Þetta er bara orðið undarlegt, svo ég er farin að leita svara á ótrúlegustu stöðum. Nú hef ég verið að kafa djúpt í speki Britneyjar nokkurrar Spears, og held ég hafi fundið nokkuð. Þannig [...]
Brennuvargurinn
Ég ætla að gera játningu. Þetta var árið 1979 og við vinkonurnar 9 ára. Við vorum að leika okkur á Stóra-Höfða og fengum þá frábæru hugmynd á fallegum haustdegi, í brakandi blíðunni að safna sinu í nokkuð stóra laut. Við litum reyndar á þessa laut sem tilraunaeldhús, enda var hún yfrleitt brúkuð til drulluköku baksturs. [...]
Yfirlýsing
Ég lýsi því yfir að ef ég held ekki minni núverandi vinnu þá sný ég aftur í stúdentapólitíkina. Og hananú. E.s. Ég tilkynnti mínum yfirboðurum þetta áðan og var umsvifalaust æviráðin. Þetta virkar sumsé. E.s.s. Allt þetta upplýsti ég reyndar í austurþingeyskasnæfellska héraðsfréttablaðinu sem kemur út þegar mér hentar, enda tala ég ekki við [...]
Af hverju kjósið þið ekki bara?
Dóttir mín 9 ára hefur velt fyrir sér aðild að ESB um nokkurn tíma. Þetta hefur snúist talsvert um gjaldmiðilinn hjá henni og hún tók þétta stöðu með krónunni fyrir 2 árum. Þá vorum við á heimleið einn seinnipartinn og í útvarpinu glumdi umræða um krónuna og evruna. Gunna: Af hverju er alltaf verið að [...]
Anna Sigrún Baldursdóttir
og þá bætti einhver við …