Ég er áhugamanneskja um hótel. Þegar ég ferðast legg ég mikið upp úr því að hótel sem ég gisti á séu góð, vel staðsett og henti tilgangi ferðarinnar og ferðafélögum. Fátt finnst mér skemmtilegrea en að takast vel upp í vali hótels. Ég les alltaf vandlega ferðabæklinga fyrirtækja í ferðaiðnaði hér á landi og finnst þeir alltaf jafnlélegir. Hins vegar fylgist ég með hótelrýni á ýmsum stöðum í netheimum og það er auðvitað mis gott. Ég á nú ekki mörg áhugamál, en þetta kemst sennilega næst því – að spá og spekúlera í hótelum. Ég hef líka haldið saman punktum um hótel sem ég hef gist á síðustu ár og þau eru þó nokkur.
Ég hef því ákveðið að hafa hótel-rýni hér á síðunni – hér efst hægra megin – og vona að einhver geti nýtt sér.
Anna Sigrún Baldursdóttir
Rita ummæli