Færslur fyrir október, 2007

Laugardagur 27.10 2007 - 10:32

Að tefla á tæpasta …

Þetta eru spennandi nefndir sem Guðlaugur hefur sett á fót – sér í lagi hef ég áhuga á nefndinni sem Vilhjálmur Egilsson stýrir og á að vera ráðherranum til ráðgjafar um stefnumótun Landspítalans. Það sem vekur í fljótu bragði fyrst eftirtekt að í nefndinni eru engir sem komið hafa nálægt rekstri spítalans um árabil nema [...]

Miðvikudagur 17.10 2007 - 15:20

Svona gerum við

Það virðist nokkuð útséð um pólitíska framtíð Vilhjálms. Hún er orðin fortíð. Nú snýst málið um að skera manninn mildilega úr snörunni og hjálpa honum á fætur með styrkri hönd. Eina leiðin til að koma Vilhjálmi frá er að finna honum viðeigandi útleið. Hvernig sem á málið er litið hefur Vilhjálmur lengi þjónað sínum flokki [...]

Mánudagur 15.10 2007 - 23:33

Neyðarlegt

Nú er þetta eiginlega bara orðið neyðarlegt. Og sorglegt. Hvernig sem á málið er litið brást Vilhjálmur samstarfsfólki sínu og borgarbúum. Hjá þeirri niðurstöðu verður ekki komist, hvort sem hann "man ekki" eða hreinlega skrökvar. Ég tók eftir því að Hegli spurði Vilhjálm að því hver staða hans væri sem kjörins fulltrúa eftir að tvisvar [...]

Mánudagur 15.10 2007 - 17:41

23.sept eða 3.okt – Hvort var það Vilhjálmur

Mikið ofboðslega ætlar Vilhjálmur að reynast margsaga í þessu máli. Í viðtali við Morgunblaðið um helgina talar Vilhjálmur um þennan samning eins og hann hafi ekki séð hann fyrir fundinn 3. október … en nú kemur í ljós að hann var lagður fyrir borgarstjórann 10 dögum áður! Það er í raun best að segja satt. [...]

Föstudagur 12.10 2007 - 17:37

Stubbaknús

Svakaleg knús hafa þetta verið undanfarna daga. Ég kemst bara nett við, eða þannig. Björn Ingi knúsar Villa, Björn Ingi knúsar Alfreð … En svona í alvöru … þá er mér nú eiginlega nóg boðið af heiftarlegum árásum af Björn Inga. Ég heiti nú ekki Anna Sigrún fyrir ekki neitt og snýst auðvitað til varnar [...]

Fimmtudagur 11.10 2007 - 21:09

Olé!

Brilljant. Hver er betur til þess fallin að hafa Framsókn í gjörgæslu en einmitt Doktor Dagur. Það þarf bönd á Binga.  Til hamingju öllsömul.

Föstudagur 05.10 2007 - 11:07

Mr. Slick og Villi vinur hans

Merkilegt hvað hljótt er um Björn Inga í þessu máli. Framsóknarmenn í ríkisstjórn kveinkuðu sér sárt undan því að þurfa að taka hitann af óvinsælum aðgerðum ríkisstjórnarinnar meðan Sjálfstæðismenn gátu verið rólegir. Þessu virðist vera öfugt farið þegar komið er í borgarstjórn. Nú er það gamli góði Villi sem fær að finna fyrir því meðan [...]

Fimmtudagur 04.10 2007 - 10:07

Kraftaverk, hamingja og afmæli

Það gerðist kraftaverk í fjölskyldunni í gær. Það kom beinlínis af himnum ofan. Þetta litla kraftaverk er rétt rúmar 14 merkur og rúmir 50 cm og kúrir nú hjá mömmu sinni og pabba á Akranesi. Hamingja okkar allra er áþreifanleg. Það er til Guð. Í morgun vaknaði stór stelpa. Filippía Þóra er 5 ára í dag [...]