Færslur fyrir september, 2007

Föstudagur 28.09 2007 - 12:17

Manneklan er mýta!

Má til með að endurbirta þennan pistil í tilefni umræðunnar. Ég held ég sé búin að leysa mannekluvandann á Landpítala-Háskólasjúkrahúsi. Eða þannig. Allavega er ég með nýjan vinkil á málið.Þessi tími árs er reyndar þannig að umræðan um manneklu á heilbrigðisstofnunum er hávær. Eðlilega. Miðað við hvað heyrst hefur og reyndar líka það sem rannsakað [...]

Fimmtudagur 20.09 2007 - 09:26

Já!

Þetta var frábær ákvörðun hjá heilbrigðisráðherra. Ég vona að hann láti nú kné fylgja kvíði og hætti við byggingu "Hátæknisjúkrahús", sem var sennilega slakasta hugmynd síðari ára í heilbrigðismálum. Grímseyjarferjan hvað!

Miðvikudagur 19.09 2007 - 11:53

Skipafréttir

Eru það fleiri en ég sem eru farnir að heyra suð þegar kemur að fréttum úr fjármálageiranum? Ég ætla ekkert að draga úr mikilvægi þessara frétta eða augljósu mikilvægi velgengi fjármálafyrirtækja fyrir þjóðarbúið. Neinei. Þetta er allt mjög mikilvægt og fyrir suma sérdeilis merkilegt. En mikið svakalega er þetta þreytandi. Minnir mann á hádegisfréttirnar hér [...]

Fimmtudagur 13.09 2007 - 10:25

Uppreisn D´Angleterre?

Vonandi ná þessir nýju eigiendur að endurreisa virðingu þessa fornfræga hótels. Það virðist sem fyrri eigendur hafi verið orðnir hundleiðir á rekstrinum og voru farnir að láta bæði vistarverur en þó sérstaklega þjónustu drabbast niður. Það kvað svo rammt að þessu að Leading Hotels of the World tóku D´Angleterre af sínum lista. Eins má lesa [...]

Miðvikudagur 12.09 2007 - 10:04

Salamonsdómur?

Heh. Svona fer fyrir þeim sem storka almættinu. Guðdómurinn grípur inn í og snýr á mammon. Eða hvað? Kannski bara fúlir Vodafonmenn sem lágu yfir snilld Símans og fundu gloppuna. Eða bæði. Hmm. Ég veit ekki hvort er fyndnara, auglýsingin sjálf eða þetta skemmtilega klúður. Segja má að auglýsingin lifi jú enn lengur fyrir vikið [...]

Sunnudagur 09.09 2007 - 11:56

Nú falla öll vötn til Hafnarfjarðar …

Afbragðs úttekt á þessu undarlega máli í Morgunblaðinu. Greinin er vel unnin og ansi ítarleg. Þeir sem ekki hafa tíma ættu allavega að lesa niðurstöðukaflann. Þvílíkt klúður.

Föstudagur 07.09 2007 - 21:22

Getur ekki verið

Sting upp á að mannabarnaúrtakið verði endurskoðað – færa sig ofar í aldursstigann. Ég er viss um að niðurstöðurnar myndu breytast. Annars er fyrirsögnin snilld.  Rétt er að benda á að þetta er aðeins vísbending … ekki endanlegar niðurstöður.

Föstudagur 07.09 2007 - 14:38

Enginn þrýstingur

Það er enginn þrýstingur á krónuna frá viðskiptalífinu. Ekki nokkur. Sprenghlægilegt.

Þriðjudagur 04.09 2007 - 00:17

Fánýtur fótbolti?

Fótbolti er nokkuð sem ég hef ekkert vit á og ennþá minni áhuga á. Ég er hins vegar kurteis og segi þess vegna til hamingju Fjölnir. Ég bý í vesturbænum og það er þegnskylda hér að halda með KR. Ég læt það nú vera samt. Gæti samt verið að maður tæki upp á því nú [...]

Mánudagur 03.09 2007 - 23:32

Þú VERÐUR að sjá þetta

Þetta myndskeið er algerlega ótrúlegt … mann setur hljóðan. Þvílík örlög. http://wwwc.aftonbladet.se/atv2/popup.html?id=categories/Nyheter/0707/4638