Færslur fyrir júní, 2007

Föstudagur 29.06 2007 - 11:31

Til fyrirmyndar

Gott að heyra þetta frá bjargveiðimönnum í Eyjum. Ætisskortur virðist vera vandi víðar og vona ég að veiðimenn og þó sérstaklega blóðsportsveiðimenn  sem sækja í Breiðafjarðareyjar taki sér þetta til fyrirmyndar.

Fimmtudagur 28.06 2007 - 15:14

Æi nei!

Mikið skelfilega eiga sumir í miklum erfiðleikum með sjálfa sig! Ég vona svo sannarlega að hægt sé að leiðbeina gerendunum í þessu máli, þeir hljóti viðeigandi refsingu og átti sig gjörðum sínum. Mikið er ég líka fegin að það var ekki ég sem aldi þessa drengi upp!

Fimmtudagur 28.06 2007 - 15:07

Manneklan er mýta!

Ég held ég sé búin að leysa mannekluvandann á Landpítala-Háskólasjúkrahúsi. Eða þannig. Allavega er ég með nýjan vinkil á málið. Þessi tími árs er reyndar þannig að umræðan um manneklu á heilbrigðisstofnunum er hávær. Eðlilega. Miðað við hvað heyrst hefur og reyndar líka það sem rannsakað hefur verið snýst vandinn ekki endilega um laun heilbrigðisstétta. [...]

Þriðjudagur 26.06 2007 - 17:51

Ungabrenna í Flatey!

Þeir sem Flatey á Breiðafirði þekkja og sækja heim vita að þar stendur tíminn kyrr, róin og dýrðin er alger. Það varð svolítil tímabundin breyting þar á um síðustu helgi. Ég er sannfærð um að meiri hasar hefur ekki verið þar síðan rottan kom í eynna snemma á síðustu öld. Þannig háttar til að talsverðar framkvæmdir [...]

Miðvikudagur 20.06 2007 - 17:31

“Konur í okkar fjölskyldu eru ekkert fyrir húsverk”

… sagði hún nafna mín og amma heitin fyrir nokkrum árum. Mikið sver ég mig nú í ættina! Amma var reyndar þeirrar gerðar að þó hún væri nú kannski ekki að fíla húsverk í botn þá var hún alltaf að. Sérstaklega að láta fólk borða. Hún vissi alveg þetta með 6 máltíðir á dag. Það [...]